Feykir - 18.12.2008, Qupperneq 7
48/2008 Feykir 7
Höskuldur Þórhallsson, skrífar
CB
C
Sí
Samvinna og samstillt átak
er næst á dagskrá
Að þessu sinni heilsa
jólin okkur við ólíkar
aðstæður eins og alla
tíó fyrr. Þjóðin í heild
býr við erfiðari kjör nú
en oft áður og því
miður hefur samdrátturinn
sennilega bitnað fyrst á
þeim sem sfst skyldi.
Margir horfa fram á erfiða
tíma.
Tímabundnir erfiðleikar
breyta samt engu um hvað það
er gott að búa í þessu landi. Með
samvinnu og samstilltu átaki
munum við á ný snúa gæfunni
okkar í hag. Við búum við
ríkulegar auðlindir til sjávar og
sveita og ef okkar farnast að nýta
þær skynsamlega landi og þjóð
til gagns og heilla þá verða okkur
allir vegir færir.
Nýjir tímar kalla vissulega á
breytt viðhorf og við sem þjóð
þurfum sífellt að meta stöðu
okkar gagnvart öðrum, gagnvart
sjálfum okkur og gagnvart lífinu
yfirleitt. Efnahagsþrengingarnar
geta líka verið upphaf að nýjum
tímum, nýjum skrefum sem
verða stigin þjóðinni til farsældar.
Við íslendingar erum nefnilega
alltaf að velja okkur nýja framtíð.
Breyttar forsendur kalla á nýjar
lausnir og ný skref sem verða
stigin þjóðinni til farsældar. Ef
við lítum okkur nær þá búum
við yfir metnaði og styrk til að
koma landinu okkar aftur í
fremstu röð þjóða hvað
lífsskilyrði varðar.
í mínum huga eigum við ekki
að leita langt yfir skammt að
lausninni á vandanum. Erlendir
straumar og stefnur munu ekkert
gagnast okkur frekar í
framtíðinni en þeir gerðu í
fortíðinni nema við yfirfærum
þá á íslenskt samfélag, íslenskan
raunveruleika. Þannig hefur
frjálshyggjan beðið jafn mikið
skipsbrot og kommúnisminn
gerði í lok síðustu aldar og ljóst
að upptaka hvorrar leiðarinnar
um sig mun ekki verða þjóðinni
til framdráttar.
Ef síðustu atburðir hafa kennt
okkur eitthvað þá er það fyrst og
fremst það að hin sjálfhverfa
einstaklingshyggja er búin. Tími
ofurlauna er liðinn. Samvinna,
samstillt átak er næst á dagskrá. f
samvinnuhugssjóninni fellst
ekkert annað en að skapa
umhverfi þar sem allir geta keppt
innan sanngjarns ramma og
útiloka einokun og fákeppni.
Þannig munum við fram-
sóknarmenn ávallt beita okkur
fyrir því að atvinnulífið verði
frjálst en að leikreglurnar séu
skýrar og að þeim sé gætt af
öflugu íjármálaeftirliti og
samkeppniseftirliti.
Öflug fyrirtæki verða
nefnilega að standa undir
velferðarkerfi sem á að vera fyrir
alla óháð búsetu, stöðu og
efnahag. Aðeins þannig munum
við búa til samfélag þar sem allir
njóta grunn mannréttinda og
hvernig sem ástatt er hjá fólki þá
á enginn að þurfa að líða skort í
landi sem er jafn ríkt af
auðlindum og okkar.
Við eigum alltaf að taka mið
af íslensku aðstæðum. Við erum
fámenn þjóð í stóru landi og
áherslur og kröfur fólks geta
verið mismunandi milli
landshluta. Þess vegna verðum
við á hverjum tíma að taka
ákvarðanir sem tryggja það að
lífsskilyrði og lífskjör séu
sambærileg hvar sem er á
landinu.
Brýnasta verkefnið sem
þjóðin stendur frammi fyrir er
að heimilin í landinu komist í
gegnum þann vanda sem þjóðin
glímir nú við. í raun eiga
ákvarðanir stjórnvalda nú sem
aldrei fyrr fyrst og fremst að
miða að því að styrkja
undirstöður samfélagsins með
þvi að hlúa að þeim sem eiga um
sárt að binda og styrkja
heimilin.
íþróttafréttir
Subway-bikarinn í körfuknattleik_
Tindastóll úr leik
Tindastóll og IR léku f
síðustu viku í 16 liða
úrslitum Subway
bikarsins. Ekki náðu
Stólarnir að hefna fyrir
tapið í deildinni á
dögunum og lágu aftur
fyrir heimamönnum f
Hellinum. Voru lokatölur
leiksins 69-56.
í umfjöllun um leikinn á
körfunni.is segir að gestimir
frá Sauðárkróki hafi framan af
verið með frumkvæðið en hafi
leikið án Darrels Flake og
munað hafi um minna. Flake
fór í hnéaðgerð sl. föstudag og
verður frá næsta mánuðinn.
Félagarnir Friðrik Hreinsson
og Óli Barðdal voru að nýju
komnir með KS merkið á
bringuna og fékkst ekki betur
Hyötsérum jólapóstinn
séð en að kapparnir verði
fljótir að finna taktinn með
Stólunum.
Stólarnir leiddu í hálfleik
31-32þarsem Helgi Viggósson
var kominn með 14 stig fyrir
Stólana.
ÍR náði forystunni í þriðja
leikhluta og leiddu að honum
loknurn 50-45. Heimamenn
höfðu frumkvæðið í fjórða
leikhluta en gestirnir voru
aldrei langt undan. Maður
leiksins, Hreggviður Magnús-
son, gerði svo út um leikinn
þegar rétt rúm mínúta var til
leiksloka. Hreggviður sökkti
þá þriggja stiga skoti og breytti
stöðunni í 68-54 og það
reyndist gestunum ofviða og
lokatölur eins og fyrr greinir
69-56.
Borið út á aðfangadag
Ungmennafélagið Hvöt
mun að vanda sjá um
jólapóstinn á Blönduósi.
Búið er að gera samning
við jólasveina um útburð bréfa
og pakka á aðfangadag en þeir
munu síðan halda heim á leið
fljótlega eftir það. Verðið
verður sanngjarnt og inn-
koman fer til íþrótta-,
forvarna- og æskulýðsstarfs á
Blönduósi. Hægt verður að
skila inn umslögum og
pökkum í íþróttamiðstöðina
eins og venjulega.
Með þessi gildi að leiðarljósi
munum við framsóknarmenn
leggja okkur fram við að leggja
grunn að farsælli framtíð þessa
lands. Og höfum eitt hugfast nú
um jólahátíðina - tímabundnir
erfiðleikar breyta engu um hvað
það er gott að búa í þessu landi.
Höskuldur Þórhallsson
Höfundur er alþingismaður og íframboði til
formanns Framsóknarflokksins.
Jón Bjarnason skrifar
Jólakveðja
íslenskt samfélag
stendur á tímamótum
eftir efnahagshrun og
skipbrot þeirrar
frjálshyggjustefnu sem
hér hefur verið rekin
undanfarin sautján ár.
Nú tekur við nýtt
tímabil í sögu lýðveldisins
og þjóðin á mikilvægar
ákvarðanir fyrir höndum.
Hvarvetna er kallað eftir
nýjum og breyttum vinnu-
brögðum: Opnum og lýðræðis-
legum vinnubrögðum, heiðar-
leika, réttlæti og gagnsærri
stjórnsýslu og ákvarðanatöku.
Með slík vinnubrögð að
leiðarljósi eigum við að vinna
saman að endurreisn íslensks
samfélags. Slíkt samfélag hlýtur
að byggjast á jöfnuði, jafnrétti,
lýðræði, sjálfbærni og sjálfstæði,
þar sem fjölbreytt og kraftmikið
atvinnulíf er hlekkur í keðju
samfélagsins alls en ekki spilaviti
gróðahyggju og sjálftöku.
Endurreisn kallar okkur öll til
starfa. Fyrsta verk okkar ætti að
vera að styrkja sérstaklega stöðu
ungmenna og ungs fjölskyldu-
fólks. Við verðum að leggja allt í
sölurnar til að unga fólkið okkar
sjái framtíð sína best geymda hér
heima og byggi hér það samfélag
sem þau vilja helst sjá.
Forgangsverkefnið er jafnframt
að halda uppi atvinnustiginu því
engin meinsemd er jafn alvarleg
nokkru samfélagi og böl
atvinnuleysis. í þeim efnum
verðum við að fara skapandi,
nýjar leiðir og læra af reynslu
annarra landa. Auk margvíslegra
atvinnusköpunarverkefna, sem
við getum tekið upp að erlendri
fýrirmynd, er nauðsynlegt að
hækka atvinnuleysisbætur,
húsaleigubætur og vaxtabætur.
Við þurfum að dreifa
skattbyrðinni á miklu réttlátari
hátt en við höfum gert hingað til,
og skera niður öll tilgagnslaus
hernaðarútgjöld og bruðl.
Fjármagni þarf að beina þangað
sem þess er þörf, inn í
velferðarsamfélagið og burt frá
spillingunni.
Á tímum heimskreppu þar
sem matvælaskortur herjar og
viðskiptaleiðir rofna sjáum við
enn betur en áður hversu
gríðarlegt hagsmunamál það er
okkur öllum að hér sé öflugur
landbúnaður og innlend
framleiðsla á heilsusamlegri og
fjölbreyttri fæðu. Auk land-
búnaðarins og matvælaiðnaðar í
heild sinni þurfum við nú að
treysta og efla sjávarútveginn og
útflutning honum tengdum,
ásamt ferðaþjónustu og öðrum
gjaldeyrisskapandi útflutningi.
Nú er einnig tíminn til að huga
sérstaklega að smáfyrirtækjum,
ekki síst fyrirtækjum í umhverf-
isvænum rekstri, sprotum og
nýsköpun. Við íslendingarbúum
að gríðarlegum auði allt í kring,
og ef við ekki kaffærum okkur og
komandi kynslóðum í óyfir-
stíganlegu skuldafeni, þá eru
okkur allir vegir færir til betri
framtíðar.
Umfram allt á tímurn sem
þessum ríður á að efla lýðræði,
styrkja og treysta aðkomu, áhrif
og völd almennings. Við verðum
að hafa hugrekki til að stokka
upp á nýtt, hreinsa út
græðgisvæðinu, spillingu og
valdapólitík, og leggja af stað til
framtíðarinnar með heilbrigðara
gildismat í farteskinu. Þar sem er
vilji þar er vegur, og viljinn til
betra samfélags er skýr.
Ég óska lesendum Feykis og
íbúum Norðurlands vestra sem
og landsmönnum öllum gleði-
legra jóla og farsæls komandi árs.
Megi Guð blessa landið okkar og
megi okkur bera gæfa til að vinna
því gagn á komandi misserum.
Jón Bjarnason