Feykir - 18.12.2008, Blaðsíða 22
22 Feykir 48/2008
Úrsúla Árnadóttir er nýráóin sóknarprestur á
Skagaströnd. Úrsúla og fjölskylda munu nota
hátíóirnar til þess aó flytja og koma sér fyrir á
nýjum staö en ráóning Úrsúlu tekur gildi um
áramót. Feykir sendi hinum nýja sóknarpresti
tölvupóst og forvitnaðist örlítió um hana sjálfa
og ekki síst jólasiói hennar.
Elskar
boóskap
jólanna
Hver er konan? -Ég er Skaga-
maður í húð og hár, er fædd
þar og uppalin, en rætur mínar
liggja aðallega um Borgar-
fjörðinn. Síðast liðin tvö ár hef
ég verið skrifstofustjóri hjá
Neskirkju en búið á Akranesi
og inni í Hvalfirði.
Hverjar eru þínar fjölskyldu-
aðstæður? -Maðurinn minn
heitir Guðmundur Ágúst
Gunnarsson og er vélvirki og
frístundabóndi. Við eigum
þrjár dætur sem heita Arna
Dan 22 ára sem er sjúkraliði,
Ursula 21 árs og er nemi í
snyrtifræði og Margrét Helga
16 ára sem nemi í nuddfræðum.
Einnig eigum við litla 10
mánaða dótturdóttur og í
byrjun janúar er von á öðru
barnabarni. Við eigum einn
frábæran tengdason sem heitir
Sigurður Valgeir Eiðsson og er
bifvélavirki. Ég er næst yngst af
fimm systkinum. Móðir mín
býr á Akranesi og heitir
Sigríður Jóna Sigurbjörnsdóttir.
Pabbi minn hét Árni Örvar
Daníelsson, en hann lést árið
1985.
Hvernig leggst hið nýja starf í þig
og hvenær flytur þú á Skaga-
strönd? -Starfið leggst mjög vel
í mig. Stór hluti búslóðarinnar
er farinn norður, en við komum
um jólin og byrjum á að koma
okkur fyrir.
Hefur þú þjónað sem prestur
áður?-Nei, en ég vinn mjög
náið með tveimur frábærum
prestum sem ég hef lært mjög
mikið af.
Og aðeins að jólunum sem
framundan eru,ert þú mikið
jólabarn?
-Ég elska boðskap jólanna,
einnig friðinn og kærleikann
sem leggst yfir jörðina eins og
nýfallin mjöllkl. 18 aðfangadag.
En ég er frekar löt við
skreytingar og þess háttar og í
seinni tíð leiðist mér einnig
búðarráp. Ég kaupi oftast allar
gjafirnar á einum stað, í einni
ferð og gef bækur.
Er jólaskapið komið? -Vegna
mikilla anna hér í vinnunni
minni, sem ég er að reyna að
ljúka við sem fyrst, hef ég ekki
mátt vera að því að njóta
jólastemningarinnar í borg-
inni. En þegar ég kem norður
vonast ég til að jólaskapið
hellist yfir mig.
Hvað er það sem kemur þér í
jólaskap? -Aftansöngur í
troðfullri kirkju á aðfangadag.
Gönguferð í snjó. Ferð í
fjárhúsin að gefa ilmandi töðu.
Kertaljós, góð bók og heitt
súkkulaði með rjóma.
Hvernig eru hefðbundin jól hjá
þér? -Jólin mín hafa verið mjög
hefðbundin og lík jólum flestra
íslendinga. Fjölslcyldan fer í
kirkjugarðinn að setja ljós á
leiði látinna ástvina á
aðfangadag. Við borðum alltaf
reykt lambakjöt á jólunum,
hrygg eða læri, annað kjötmeti
kemur ekki til greina. Vegna
vinnu minnar í Neskirkju hef
ég farið flesta jóladagana í
kirkju. Einnig hef ég sungið í
kór Saurbæjarprestakalls í
Hvalfirði á jólum sem öðrum
guðsþjónustum. I ár er kominn
tími á nýjar hefðir sem mjög
gaman verður að skapa.
Hvað langar þig mest að fá í
jólagjöf, þá er ég að tala um af
veraldlegum hlutum? -Takk
fyrir tækifærið til að koma því
á framfæri að ég vonast til að fá
nokkrar bækur í jólagjöf, t.d.
Hallgrím eftir Úlfar
Þormóðsson, Orðspor eftir
Gunnar Hersvein og Eigi
stjörnum ofar eftir Sigurbjörn
Einarsson og fleiri og fleiri.
Nú eru margir sem eiga um sárt
að binda um jól og áramót, hafa
misst ástvin eða lent í erfið-
leikum á árinu. Hvað getur þú
sagt við þetta fólk? -Aðstæður
fólks í þjóðfélagi olckar eru
mjög mismunandi og margir
eiga um sárt að binda um þessi
jól. Ég vil samt hvetja fólk til að
horfa fram til jólanna, reyna að
njóta þeirrar hátíðar sem
fagnar því að Guð varð maður,
orðið varð hold. Jólin eru hátíð
sem játast mennskunni,
jarðlífinu, heiminum sem Guð
skapar og elskar. Náunga-
kærleikur, umhyggja, misk-
unnsemi, eru grundvallarþætt-
ir kristinnar trúar. Trú okkar
krefst því þess að við auðsýnum
frumkvæði til góðs fyrir
náungann, líf og heim. Hlúum
að þeim sem eiga um sárt að
binda. Að við leitumst við að
( MITT LIÐ
Liðið mitt;
Arsenal fc
Nafn: Árni Þór Friðriksson (Árni
Malla).
Heimili: Hvannahlíð 1 Sauðár-
króki.
Starf: Starfsmaður á Meðferð-
ar- og skólaheimilinu Háholti.
Hvert er uppáhaldsliðið þitt í
enska boltanum og af hverju?
Arsenal hefur alltaf verið
númer eitt í enska boltanum
eða frá því að ég fór að fylgjast
með boltanum, pínu polli, þá í
opinni dagskrá fyrir alla eins og
var í þá daga. Svo skiptust lið
nokkuð niður á skólaárganga,
t.d. 65 voru Leeds, 64
Arsenal, 63 Liverpool, 62
Manchester. Margir sögulegir
leikir voru háðir á skólalóðinni
og á Wembley. Oft enduðu
leikirnir með framlengingu
og vítaspyrnu en þá sættust
menn ekki á jafntefli.
Hefur þú einhvern tímann
lent í deilum vegna aðdáunar
þinnar á umræddu liði?
Nokkuð oft sérstaklega þó
í gamla daga en þá voru
rifrildi vegna fótbolta daglegt
brauð og var Alli Munda alltaf
erfiðastur í þá daga en hann
hefur eitthvað linast síðan.
Enn í dag heldur Alli að jafnaði
með þremur efstu liðunum
til að tryggja sig. Hann tekur
enga sénsa enda orðinn mjög
lífsreyndur.
Hver er uppáhaldsleikmað-
urinn fyrr og síðar? Þeir eru
nokkrir en Charley George og
Alan Ball voru fyrstu hetjurnar
en síðan hafa komið fleiri góðir
og erfitt að gera mikið upp á
milli þeirra.
Hefur þú farið á leik með
liðinu þínu?Mér var gefin ferð
á bikarleik á Highbury ásamt
mági mínum þegar ég var
fertugur, en hann heldur með
Chelsea og þarna áttust við
Arsenal og Chelsea. Leikurinn
var góður og úrslitin enn betri
eða tvö eitt fyrir Arsenal og sló
Reyes í gegn í þessum leik og
gerði bæði mörkin. Stemningin
var ólýsanleg en þarna syngja
menn allan leikinn lofsöngva
um hetjurnar sínar.
Áttu einhvern hlut sem
tengist liðinu? Að sjálfsögðu,
t.d. búninga og aðra leikmuni.
Hvernig gengur að ala aðra
fjölskyldumeðlimi upp í
stuðningi við liðið? Bara
vel. Það er bara ein leið í
boltanum.
Hefur þú einhvern tímann
skipt um uppáhalds félag?
Neibbb!
vera með einhverjum hætti
uppfylling fyrirheitanna um
heim þar sem fjötur syndar og
sjálfselsku er rofinn, þar sem
myrkur eigingirnis og
kaldlyndis víkur fyrir kærleika,
umhyggju og miskunnsemi. Ég
vona að þeir sem eiga um sárt
að binda finni að við erum öll
ein fjölsky'lda í Kristi og að
kærleikur umvefji þau á
erfiðum tímum. Guð gefi þann
dag á dimma jörð.
Eitthvað að lokum? -Ég óska
Norðlendingum gleðilegra jóla
og góðs nýs árs.