Feykir - 07.04.2009, Blaðsíða 3
14/2009 Feykir 3
Grunnskólinn austan Vatna
Skagafjörður
Nýsköpunar- og frumkvöðlaverðlaun
Félag íslenskra kennara í
nýsköpunar- og
frumkvöðlamennt veittu sl.
föstudag Ritu Didriksen og
Grunnskólanum austan
Vatna viðurkenningu fyrir
fyrirmyndarframboð á
nýsköpunar- og
frumkvöðlamennt í
skólanum. Rita og starfandi
skólastjóri grunnskólans
Jóhann Bjarnason tóku við
hvatningarverðlaununum.
í rökstuðningi félagsins
fyrir veitingu hvatningar-
verðlaunanna segir: „Undir
forystu Ritu hefur Grunn-
skólinn austan Vatna unnið að
uppbyggingu nýsköpunar- og
frumkvöðlamenntar við
skólann. Hún hefur með áhuga
sínum og krafti fengið flesta
kennara skólans og
stjórnendur til að vinna
sameiginlega að því að byggja
upp og sinna nýsköpunar- og
frumkvöðlamennt. Náms-
framboð skólans er ekki
einhver skrautíjöður sem
boðin er einu sinni í stuttan
tíma heldur úthugsuð samfella
og með góðan stíganda í
náminu.“
Þá segir að með því að
bjóða slíka menntun sýni
skólinn framsýni og metnað
til að mennta nemendur sína
til að takast á við nútímalíf,
styrkja þá til frumkvæðis og
nýsköpunar í eigin lífi,
atvinnulífi og samfélagi og
auk þess að búa þau á öflugan
hátt undir framhalds-
skólanám
Málþing
Mikilvægi rannsókna og
menntunar er ótvíræð
Fimmtudaginn 2. apnl var
haldið málþing í
Fnmúrarahúsinu á
Sauðárkróki um mikilvægi
Háskólans á Hólum f
samfélaginu.
Áhersla var lögð á þrjú
meginefni þ.e. hvernig
starfsemi Hólaskóla geti
verið þungamiðja í þróun í
samfélaginu ekki síst
búsetuþróunin. Hvernig
mikilvægi nýsköpunar
kemur fram í samfélaginu í
sambandi við háskóla og
háskólamenntun. Og i þriðja
lagi mikilvægi þess að pólitísk
öfl sameinist um að greiða
fyrir því að starfsemi háskóla
á landsbyggðinni fái að
dafna.
Á ráðstefnunni kom fram
að sterk byggðaleg rök lægju
fyrir þvi að háskólar störfuðu
á landsbyggðinni hvað varðar
mikilvægi til búsetu og
atvinnuþróunar og marg-
vísleg efnahags-, félags- og
menningarleg áhrif eru sterk.
Gæði náms á Háskólanum á
Hólum er talið mjög gott og
er öflug leið fyrir fólk að
skapa sér atvinnugrundvöll
og má þar nefna þá sem hafa
útskrifast af hestafræðibraut
en þar hefur þróunin í
reiðmennsku verið mjög
mikil og þekkt út um allan
heim. í sambandi við fiskeldi
kom fram að útflutningur á
bleikju skili tekjum í
Skúli Skúlason rektor Háskólans á Hólum.
Panellinn var vel skipaður.
þjóðarbúið um allt að
milljarði króna á ári.
Nýsköpun er mikil í
ferðamálum og aukning á
gjaldeyristekjum í þeirri
grein er gríðarlega mikil. Þar
skiptir máli rannsóknir og
menntun og ráða jafnvel
úrslitum um hvernig gengur
í þeirri grein. Þeir sem
útskrifast sem ferðamála-
fræðingar frá Hólaskóla hafa
átt greiða leið i góð störf á
sviði ferðamála.
Að sögn Skúla Skúlasonar
rektors Hólaskóla er ráðstefna
sem þessi ætluð til þess að
koma á framfæri málefnum
er skipta samfélagið máli og
að fólk ræði þau mál og ekki
síst núna á þeim tímum sem
við lifum á í dag.
Mikið um framkvæmdir
Þegar skoðuð er fundargerð
Skipulags- og bygginga-
nefndar Skagafjarðar má sjá
að mikil framkvæmdagleði
nkir meðal Skagfirðinga eru
hefur umsóknum um fram-
kvæmdaleyfi sfst fækkað.
Meðal umsókna á síðasta
fundi nefndarinnar er umsókn
Guðmundar Guðlaugssonar,
sveitarstjóra, sem sækir fyrir
hönd byggingarnefndar Verk-
námshúss FNV, um leyfi til að
byggja 579.0 m2 viðbyggingu
við Verknámshúsið.
TAKK fVRIR HIG
StyrktarKvöld
Þuríðar Hörpu
Fyrsfí hlutí söfnunarinnar Styrktarkvöld í
Relðiiöllínní Svaðasfööum er að baki
Ég Dakka öllum Deim sem lagt hafa mér
lið í söínuninní, Deim sem gerðu Detta
kvöld að veruleika með Kramlagi sínu
svo og Deim fjölmörgu sem komu á sjálíu
kvöldinu, sýndu mér stuðning og nutu
kvöldsins með mér.
Alls hafa nú safnast kr. 5.5 milljónir
Hann pabbi minn Siguröur Björnsson færöi mér
Ijóð í tilefni af söfnuninni, Ijóðiö er fallegt og það
segir allt sem mig langaði til að segja við ykkur.
Með þökk í hjarta
Brostu móti blómunum
og berðu þig vel
því bráðum vaknar vorið
af vetrarskel.
Mundu, mæti vinur
er meiðir lífsins böl
að þá er hjartahlýjan
heimsins besta völ.
Er harpa lög sín leikur
um loftin blá
ber þeyrinn þakkir vinum
Þuríði frá.
Sigurður Bjömsson
Landsbankinn:
161-15-550165
Sparisjóður Skagafjarðar:
1125-05-250067