Feykir - 07.04.2009, Qupperneq 5
14/2009 Feykir 5
íþróttafréttir
íþróttakeppni grunnskóla í Húnavatnssýslum
Húnavallaskóli bar sigur úr bítum
T /jr\
Frá íþróttakeppni grunnskóla í Húnavatnssýslum. Mynd: Húnavallaskóli
Skotfélagið Markviss
Skotmenn
áleiðá
sterkt
mótí
Danmörku
Fréttir af núverandi og
fyrrverandi félögum úr
Skotfélaginu Markviss
em þær helstar að tveir
þeirra taka þátt f skotmóti
f Holstebro á Jótlandi um
páskana.
Um er að ræða árlegt mót,
Holstebro Paske Grand Prix,
þar sem meðal keppenda eru
vanalega sterkustu skotmenn
Dana.
Þetta mun vera í fyrsta
skipti sem íslendingar eiga
fulltrúa á þessu móti. Þarna
verða þeir Guðmann Jónas-
son frá Markviss og Hákon
Þór Svavarsson, kenndur
við Litladal, ásamt þremur
öðrum keppendum frá
íslandi.
Fimmtudaginn 2. mars var
á haldið í Húnavallaskóla
hið árlega íþróttamót
grunnskólanna f
Húnavatnssýslum. Á
þessu móti koma saman
nemendur í 7.-10. bekk
í Grunnskóla Húnaþings
vestra, Grunnskólanum á
Blönduósi, Húnavallaskóla
og Höfðaskóla á
Skagaströnd.
Nágrannaskólarnir mættu
á staðinn klukkan 15:30 og
hófst keppnin klukkan 16:00.
Hart var barist og var kappið á
tímabili svo mikið að sumum
fannst nóg um. Húnavallaskóli
fór með sigur af hólmi með 17,5
stig, í öðru sæti varð Grunnskóli
Húnaþings vestra með 16 stig,
í þriðja sæti Grunnskólinn á
Blönduósi með 15,5 stig og í
fjórða sæti Höfðaskóli með 15
stig.
Hátíðinni lauk síðan með
sameiginlegu diskóteki og stóð
fjörið til klukkan 22:00.
veittan stuðning.
( ÁSKORENDAPENNINN )
Gunnar Andri Gunnarsson
skrifar frá Kaupmannahöfn
Barndómur og brennivín
Þær eru ófáar
minningarnar sem
poppa upp þegar
hugsað er heim
á Krók, þar sem
barnsskónum var slitið
og rúmlega það.
Það sem stendureinna
mest upp úr, er hversu
mikið frelsi maður
hafði, hversu miklum
ævintýraheimi maður
lifði í. Allur bærinn
var okkar leikvöllur og
bauð upp á endalausa
möguleika, án þess að
foreldrarnir þyrftu að
stressa sig sérstaklega
mikið yfir því hvað
krakkaskrattar eins og
ég vomm að aðhafast.
Á veturna djöflaðist
maður um í Grænuklauf
á snjóþotu eða skíðum,
eða maðurfann sér
góðan skafl í öllum
snjónum sem kom og
breytti honum í höll...
eða svoleiðis er það
allavega í minningunni.
Á sumrin flutti maður
gjarnan lögheimili sitt
upp á starfsvöll, þar
sem byggðir voru lúxus
sumarbústaðir sem
mynduðu lítið þorp sem
hafði allt til alls. Þar
á meðal vom reknar
veitingasölur sem seldu
popp, djús ogstundum
karamellur. Og snilldin
varjú, gjaldmiðillinn.
Sá þótti afar stabíll
á þeim tíma, en öll
verslun á vellinum fór
fram með gostöppum.
(íslendingar ættu ef
til vill að athuga hvort
að upptaka gostappa
væri möguleg í stað
krónunnar?)
Það sem haft hefur
mest áhrif á mig
frá tíma mínum á
Króknum eru þó þessar
endalausu ferðir niður
á bryggju, Sandana og
í Áshildarholtsvatnið,
þar sem mestum tíma
sumarsins vareytt við
veiðar.
Ævintýri veiðiferðanna
héldu áfram eftir því
sem árin liðu og er
þá ein sem er mér
sérstaklega minnisstæð,
og var það fyrsta
veiðiferð mín með
stórvini mínum og
veiðifélaga Jóhannesi
Inga. Þessi veiðiferð var
þó ein stysta veiðiferð
sem ég hef farið í.
Við vorum nokkrir
félagar sem ákváðum
að skella okkur í veiði
ívötnunum hjá Bjama
á Hvalnesi. Seinni part
föstudags var brunað
af stað og þegar að
komið var á staðinn
vartekið höndum við
aðtjalda. Þegar tjöldin
voru komin upp var
kjöti skelltá grillið,
sósa í pott, og svo var
skálað oft og mikið fyrir
verðandi veiði. Þarsem
að við Jóhannes erum
óþreyjufullir veiðimenn
ákváðum við að bieyta
aðeins færin áður en að
sestvaraðsnæðingi.
Við trítluðum þá af stað
ogreyndumfyrirokkur
í góðan klukkutíma,
eða þangað til að
hungrið var veiðiþörfinni
sterkari, enda veiðin
fremurdræm. Þegar
við komum aftur í
búðirnarvaraðkoman
þó öðruvísi en búist var
við. Dautt var í grillinu,
tjöldin horfin og bilarnir
líka. Bara einn af
félögunum var eftir, og
tilkynnti hann okkur að
slagsmál hefðu brotist
út og hópurinn farinn
inn á Krók að leita sér
læknisaðstoðar.
Hvort sem það var kjötið
eða sósan sem olli
þessu fengum við aldrei
aðvita!
£g skora á þennan
kæra vin minn og
veiðifélaga, Jóhannes
Inga Hjartarsson,
verðandi Akureyring, að
taka við pennanum.
Úrvalshópar unglinga FRÍ
Fimm valin úr UMSS
Nýráðinn unglingalands-
liósþjálfari FRÍ, Karen Inga
Ólafsdóttir, hefur tilkynnt
val sitt í úrvalshópa FRÍ.
Þessir hópar eru valdir
á grundvelli ákveðinna
viðmiða um árangur
síðastliðið sumar og í
vetur.
I Afrekshóp unglinga FRÍ eru
valdir þeir unglingar, 15-22 ára,
sem taldir eru eiga möguleika
á að komast í allra fremstu röð
í heiminum í framtíðinni. Að
þessu sinni eru 11 unglingar
valdir í þennan hóp.
Nú um helgina, 4.-5. apríl
eru þessir hópar kallaðir saman
til æfingabúða í Reykjavík, Þar
munu ýmsir góðir þjálfarar líka
verða kallaðir til leiks.
( MITTLIÐ)
Nafn: Þónjnn Elfa Sveinsdóttir
Heimili: Laugatúni 10,
Sauðárkróki
Starf: Aðalbókari hjá
Sveitarfélaginu Skagafirði
Hvert er uppáhaldsliðið þitt í
enska boltanum og af hveiju?
Mitt uppáhaldslið er að sjálf-
sögðuManchesterUnited. Bróðir
minn (Binni Rögg) heldur með
þeim, mamma líka og bömin
mín, þannig að ég hef tileinkað
mér það að halda með þeim.
Svo em þeir iíka langbestir.
Hefur þú einhverntímann lent í
deilum vegna aðdáunar þinnar
á umræddu liði? Já, já. Það
eru nokkrir „Poolaraf ívinnunni
og það er bara gaman að gera
gn'n að þeim þegar þeirtapa.
Hvereruppáhaldsleikmaðurínn
fyrrogsíðar? RyanGiggs. Hann
er bara flottur. Hann er búinn að
vera í þessu liði frá því að ég
fór að horfa á leikina með öðru
auga þegar bróðir var lítill.
Hefur þú faríð á leik með liðinu
þínu? Nei. Ekki ennþá. Það
mun samt gerast.
Attu einhvern hlut sem tengist
liðinu? Ég á handklæði, sonur
minn á svo flagg, sænguiver,
eggjabikarog nokkra búninga.
Hvernig gengur að ala aðra
fjölskyidumeðlimi upp í
stuðningi við liðið? Þetta er
svo sannkölluð liðsheild, nema
Ingvar maðurinn minn. Hann
flýr hús þegar enski boltinn er í
sjónvarpinu og við að horfa, og
öskra.
Hefur þú einhvern tímann skipt
um uppáhalds félag? Nei. Það
gerir maður ekki. Þú getur skipt
um vinnu, maka, bíl og hús. En
maður skiptir ekki um félag.
Uppáhalds málsháttur?
„Sjaldan er ein báran stök í 12
vindstigum" og „Það dugar ekki
að drepast"
ÆSm
I
Þaö dugar ekki
aö drepast