Feykir - 14.05.2009, Blaðsíða 11
19/2009 Feykir 11
( MATGÆÐINGAR VIKUNNAR )
Jón og Margrét kokka
Blöndulaxinn
klikkar aldrei
-Við erum svoddan fiskætur hjónin svo við ákváðum
að gefa þrjár fiskuppskriftir: graflax, spánskættaðan
saltfiskrétt og steinbft, segja þau Jón Sigurðsson og
Margrét Einarsdóttir á Blönduósi.
Þau vilja helst hafa laxinn úr Blöndu en ekki kemur fram
hvort hinar tegundimar eigi að vera úr Húnaflóanum, en það
sakar ekki og kartöflurnar eru bestar gjaman úr Selvík. Jón og
Margrét skora á þau hjónin Erlu Björgu Evensen og Guðmund
Haraldsson sem margir þekkja sem Árbakkahj ónin á Blönduósi,
en þau ráku veitingahúsið við Árbakkann um 9 ára skeið.
Graflax (bestað
hann sé úr Blöndu)
4 mskfíntsalt
‘á msk. hvítur pipar
1 msk. þriðja kryddið
1 tskfennikel
3 msk. dill (þurrkað)
1 tsk. saltpétur (má slepp)
Laxinn flakaður ogbeinhreins-
aður. Kryddinu stráð yfir,
flökin lögð saman og pakkað
í álpappír og plastpoka og haft
í ísskáp amk. 3 sólarhringa,
fer eftir stærð laxins, en
kryddmagnið hér að ofan
miðast við ca. 8 punda lax.
Graflaxsósa:
250gr. majones
1 msk. sœttsinnep
1 msk. hunang.
1 tsk. dill
Örlítið salt og pipar og ögn af
sósulit. Borið fram með ristuðu
brauði.
Spánskur saltfiskur
900gr. saltfiskhnakkar
600 gr. soðnar kartöflur
(gjarnan úrSelvík.)
2 ‘á dl. hvítvín eða mysa
6 msk. ólifuolía
3 msk. brauðrasp
2 msk.ferskt rósmarín
3 stórir þroskaðir tómatar
Saltogpipar
Ofninn hitaður í 180°c.
Kartöflurnar skornar í sneiðar.
Beinhreinsið saltfiskinnogsetjið
hann ofan á kartöflurnar. Stráið
svo rósmaríni og brauðraspi
yfir. Skerið tómatana í sneiðar
og leggið ofan á. Hellið restinni
af olíunni og hvítvíninu yfir
og kryddið með salti og pipar.
Bakið í 20 mínútur.
Meðlæti; ferskt salat eftir
smekk.
Steinbítur með
fetaosti
1 kg. steinbítur
1 stk. blaðlaukur
2 stk. hvítlauksgeirar
3 msk. gróft sinnep
1 msk. grœnmetiskraftur
Nýmalaður pipar
200gr.fetaostur í kryddolíu.
Roð- og beinhreinsið stein-
bítsflökin og skerið þau í ca.
3 cm. bita. Skerið blaðlaukinn
í fernt eftir endilöngu og
síðan þvert í sneiðar. Pressið
síðan hvítlaukinn saman
við sinnepið og hrærið
grænmetiskrafti og pipar
saman við. Blandið svo öllu
þessu vel saman og setjið í
smurt eldfast mót. Dreifið
fetaosti yfir og bakið í ofni við
180°c í ca. 15 mínutur.
Meðæti: Salatogeðakartöflur.
Allt eftir smekk.
EFTIRRÉTTUR
Heimabakaður
púðursykurmarengs
Heimabakaður púðursykur-
marengs brotinn í flotta
skál og ferskum ávöxtum
og þeyttum rjóma blandað
saman við að viid.
Klikkar aldrei.
Verði ykkur að góðul
( GUOMUNDUR VALTÝSSON 1
Vísnaþáttur 498
Heilir og sælir lesendur góðir.
Tryggur lesandi þessa þáttar og góður
visnaunnandi sendir leiðréttingar á
tveimur vísum sem birtst hafa á síðasta
ári. I þætti nr. 482 er vísa um aðferðir
kvenna til að dytta að útliti sínu. Telur
þessi lesandi að hún sé rétt þannig.
Mœrin keypti meðalið
sem miklarfegurð líkamans.
Hugðist mundi hressa við
hrákasmíði skaparans.
Þá er í þætti nr. 484. Fyrri hluti vísu er
þar birtist að mati bréfritara, réttur svo
breyttur.
Ég hefi þyrstur kelað kysst
kvenna misst og notið.
Bestu þakkir fyrir þessar upplýsingar. Það
er Erlendur Hansen sem yrkir svo.
Ljósin hvarma brunnu um kveld
þú kveikir hjá mér Ijóð.
Við aftanstund, við arineld
brann ástarinnarglóð.
Svo kemur vor og veturflýr
og vorperla í tún.
Ogjörðin grœn, afgleði býr
viðgyllta morgunbrún.
Um skvísu sem tengist sveitinni yrkir Elli.
Þú komst eins og kallað vœri
í kvöldheimsins blíðasta þey.
Ert framsóknar fyrirbœri
þaðfmnst ekki sœtari mey.
Skarphéðinn Einarsson kenndur við
Tungukot í Blöndudal, mun hafa ort
þessa fallegu vorvísu.
Varmann raka vorið bjó.
Viðjur klaka slakna.
Vœngir blaka blítt í ró
blómin taka að vakna.
Þá langar mig að spurja lesendur hvort þeir
viti höfund að þessari fallegu hringhendu.
Allt er hljótt um óttuskeið
yndi ersótt til baka.
Sumarnóttin helg og heið
heillar drótt að vaka.
Þar sem allt stefnir nú í að gaddur fari
að víkja, og grænki ísafoldin, er ágætt
að rifja næst upp þessa vísu Sigurðar
Magnússonar.
Grœna hjalla gyllir ól
grös í halla skína.
Upp tilfallafann égskjól
fyrirgalla mína.
Benjamín Sigvaldason leggur okkur til
næstu vor og sumarvísu.
Vorið blíða hjartahlýtt
hugans léttir meinum.
Og alltaf vekur eitthvað nýtt
innst í sálarleynum.
Allt er rótt við ystu strönd
enginnflótti skýja.
Sígur að óttu sveipar lönd
sumarnóttin hlýja.
Gísli Jónsson bóndi í Saurbæ í Vatnsdal
mun hafa ort þessar.
Ég vil syngja um sumarið
sólarkynngi og alheimsfrið,
blómadyngju, bárunið
og bjarmann kringum jjœrstu mið.
Röðulfingur roða ský
röddin klingir spóa.
Allt í kringum iðar ný
indœl syngur lóa.
Held endilega að þessi ágæta vísa sé
einnig eftir Gísla.
Einstœð vísa, örstutt tal
eykur náin kynni.
Hún e rfrábœrtfylgiskjal
fyrir hugsuninni.
Á búnaðamámskeiði er margir bændur
sóttu veturinn 1936, sagði Pálmi Einarsson
ráðanautur ffá tilraunum sem hann hafði
gert við ræktun á kartöflun. Séra Gunnar
Ámason prestur á Æsistöðum sem var
meðal þátttakenda orti að erindi loknu.
Yfirsöng þarf engan þá
ekki heldur sálma.
En kartöflu ég kasta á
kistuna hans Pálma.
Á sama námskeiði sagði Guðmundur
Jósafatsson bóndi á Brandsstöðum
frá tilraun sem hann hafði gert til
kornræktar. Lét þess jafnframt getið að
hann hefði slegið akurinn á sunnudegi.
Það taldi séra Gunnar alvarleg helgispjöll
og orti Pálmi af því tilefni.
Hart er lögmál himnum á
hlýðið drottins lögum.
Upp hér skera enginn má
arð á sunnudögum.
Ekki líkaði Æsustaðaklerki umræðan og
mun hafa ort þessa svarvísu.
1 þessum dölum þrauta og kífs
það ergert að lögum.
Allir sá til eilífs lífs
eiga á sunnudögum.
í lok námskeiðs kvaddi Páll Sófaníasson
viðstadda og bað þá að bera kveðju sína
til þeirra sem gert hefðu fjósverkin á
meðan þeir voru í burtu. Séra Gunnar
var fljótur að snúa þessum skilaboðum
Þegar þú heldur héðan frá
hlýddu eggjan minni.
Farðu strax ífangið á
fiósakonu þinni.
Óska églesendum
gleðilegra páska
og bið þá að vera
sœla að sititii.
Guðmundur
Valtýsson
Eiríksstöðum
541 Blönduási
Sími 452 7154