Feykir - 14.05.2009, Síða 12
Ertu með fréttaskot? Hafðu samband! feykh@feykir.is ogsími 455 7176 / 898 2597 / 861 9842
Dægurmálablaðið á Norðurlandi vestra
14. maí 2009 :: 19. tölublað :: 29. árgangur
Óskar og stelpurnar á góðum nótum.
Söngvararnir stóðu sig frábærlega.
Oskar af Alftagerði klikkar sjaldnast.
Mikió líf í Menningarhúsinu Miðgarði
Sönglög í Sæluviku
Það var hátíðarstemning í Varmahlíð í byrjun Sæluviku
þegar félagsheimilið Miðgarður var tekið í notkun að
nýju eftir mjög svo tímabærar endurbætur og viðhald.
Þetta glæsilega hús, sem margar vinnufúsar hendur
eyddu ótöldum vinnustundum í að byggja fyrir rúmum
fjörutíu árum og eða gáfu til þess með öðrum hætti,
hefur skipað stóran sess í vitund Skagfirðinga og
skemmtanalífi þeirra og nú eru tímamót.
Því var ekki laust við því talið var í og svörin fengust
að það gætti verulegrar
eftirvæntingar ef ekki óþreyju
meðal tónleikagesta sem fylltu
Miðgarð fimmtudagskvöldið
30.apríl þegar hljómsveit
Stefáns Gíslasonar ásamt
úrvali söngvara gekk fram á
sviðið. Hvernig virkar húsið
fyrir svona tónlist? Hvernig er
hljóðkerflð? Lengra komust
menn ekki í hugrenningunum
jafnharðan. Hvert lagið á
fætur öðru hljómaði undur
vel í flutningi þessa frábæra
listafólks sem við höíum á að
skipa nánast á hverjum bæ.
Pétur Pétursson sem öðrum
betur kann þá list að vera
skemmtilegur kynnir var síðan
óborganlegur á milli laga í
umfjöllun sinni um flytjendur
og uppruna þeirra.
Fyrri hlutinn var borinn uppi
af gömlum dægurperlum í
flutningi Sigurlaugar Vordísar,
Dúa og Óskars P, en eftir hlé
tóku ABBA mágkonurnar úr
Blönduhlíðinni þær Kolla og
Lína öll völd og sýndu svo um
munaði að það er alveg óþarfi
að hóa gamla ABBA flokknum
saman á ný.
Sönglög í Sæluviku er hugar-
fóstur Stefáns Gíslasonar og
Einars Þorvaldssonar tónlistar-
kennara sem af þekktum
dugnaði og færni komu á
laggirnar þessari skemmtun.
En það er ekki nóg að fá
hugmyndir, að framkvæma
þær er annað. Með koflega
sínum úr tónlistarskólanum Jóa
trommara og að ógleymdum
Sigga í Ketu á bassa var hljóm-
sveitin gríðargóð og nýja
hljóðkerfið í Miðgarði fékk sína
eldskírn. Strákar... og sólóin í
Vegir liggja til allra átta voru
ekkert smá flott.
Þetta kvöld var meira en
skemmtilegt, það var viðburður
sem sýndi okkur og sannaði
fyrir það fyrsta að breytingarnar
eru vel heppnaðar, en ekki
síður að vatnið er bara betra
hémamegin við lækinn.
Hafið þökk fyrir!
Gunnar Rögnvaldsson
Kristján Búi og Sigurlaug Vordís.
Sigurlaug Vordís, Sigurlfna og Kolbrún sungu afinnlifun.
Úrbi.syínahryggur
Svínalæri 498
Svínalundir 1698
Svínahnakkirúrb. 898
Purusteik 598
Svína kótilettu r 798
Svínagúllas 998
Svínasnitsel 978
Svínabógur 359,
Sfcaqfii-.ðinqahúð-