Feykir - 04.06.2009, Blaðsíða 8
8 Feykir 22/2009
Skólaslit Tónlistarskóla Skagafjarðar
Blómlegu
skólaári
lokiö
Birgir Þór Ingvarsson gítarnemandi og Eiöur Guðvinsson.
Tónlistarskóla Skagafjarðar
var slitið þann 20. maí sl. en
að venju var skólanum slitið
með glæsilegum tónleikum í
Frímúrarasalnum á
Sauðárkróki. Fram komu
stigsnemendur frá hinum
ýmsu deiidum auk þess sem
fluttar voru ræður og
styrkir veittir.
Að venju var veittur styrkur
úr Minningarsjóði Jóns Björns-
sonar en það er Eiður
Guðvinsson sem á veg og vanda
að sjóðnum. Að þessu sinni
hlaut Birgir Þór Ingvarsson,
styrk úr sjóðnum, en Birgir
spilar á gítar. Birgir heíúr
stundað nám við Tónlistaskóla
Skagaíjarðar frá unga aldri.
Þá var veitt úr Minningar-
sjóði Aðalheiðar Erlu Gunnars-
dóttur, frá Syðra Vallholti.
Venjan er að nemendur sem
hljóti styrkinn séu að ljúka 10.
bekk, séu með góða mætingu og
hafi verið að ná árangri í sínu
námi. Þar hlutu styrk Reynir
Snær Magnússon, gítar- og
trommuleikari, Margrét Árna-
dóttir sem spilar á þverflautu og
píanó og Bjarnveig Rós
Bjarnadóttir, þverflautunem-
andi.
í ræðu Sveins skólastjóra
kom hann inn á fyrirhugaðan
niðurskurð í skólanum en í
þessari efnahagskreppu sem nú
gengur yfir hefur sveitarstjórn
tekið ákvörðun um að huga
ffekar að námi barna og
unglinga og mun því styrk-
veitingum við söngnám full-
orðinna verða hætt. Þar af
leiðandi verður söngdeild
skólans ekki í sömu mynd og
verið hefúr. -Samkvæmt
gjaldskrá okkar fyrir næsta vetur
verður engin söngdeild en við
ætlum þess í stað að reyna að
bjóðauppástyttrisöngnámskeið,
segir Sveinn. -Gjöldin án
niðurgreiðslu yrðu svo
gríðarlega há að það gæti enginn
staðið undir þeim, bætir hann
við.
Flvað stunduðu margir nám
við skólann í vetur? -Það voru
293 nemendur. Skiptust
nemendurnir í blásaradeild,
strengjadeild, píanódeild, slag-
verksdeild, gítardeild og söng-
deild. Kennt var á fimm stöðum
í firðinum og vorum við með 13
kennara í fúllu starfi, svarar
Sveinn.
Tónleikahald
veturinn í gegn
AIls voru haldnir 24 tónleikar á
vegum tónlistarskólans sl. vetur.
-Við vorum með stóra
strengjatónleika í íþróttahúsinu
í Varmahlíð í janúar í samvinnu
við tónlistarskólann á Akureyri.
Þetta var í þriðja sinn sem við
höldum tónleika sem þessa í
samstarfi þessara tveggja skóla.
Tónleikarnir voru afar vel
heppnaðir þar sem nemendur
skólanna tveggja komu ffam
auknemenda frá öðrum skólum
á Norðurlandi sem einnig tóku
þátt í tónleikunum. Þá vorum
við með opið hús í Varma-
hlíðarskóla sem gekk gríðarlega
vel. Síðast en ekki síst þá tókum
við þátt í opnum á Menn-
ingarhúsinu í Varmahlíð þar
sem atriði okkar vakti mikla
lukku., segir Sveinn.
-Eins megum við ekki
gleyma söngdeildinni sem var
með tónleika í Árgarði 5. maí
og var kvöldið tileinkað Shubert
og Mozart. Þar komu fram 11
nemendur söngdeildar auk
gestasöngvara. Það má því ætla
að þarna hafi komið fram hátt í
16 manns á glæsilegum
tónleikum þar sem Kristján
söngkennari las upp sögur úr
Tofraflautunni sem sungið var i
kringum. Á þessum tónleikum
var húsfyllir áhorfenda. Það má
þvi segja að söngkennsla hér
hafi verið í miklum blóma en
með fyrirhuguðum niðurskurði
þá er búið að loka á möguleika
þeirra sem hér hafa stundað
söngnám að ljúka sínu námi,
segir Sveinn.
Þrátt fyrir niðurskurð þá er
mjög góð aðsókn í nám við
skólann fyrir næsta vetur og
útlit fyrir að nemendur skólans
verði um 300 talsins.
Strengjatónleikar i Frímúrarahúsinu 17. maí.
Fteynir Snær Magnússon og Birgir Þór Ingvarsson lengu styrki.
Blásarasveit á nemendatónleikum 11. mai i Frímúrarahúsinu.