Feykir - 15.10.2009, Qupperneq 8
8 Feykir 38/2009
( TÖLVUPÓSTURINN )
Ásdísi Guömundsdóttur er margt
til lista lagt. Ásdís vinnur á daginn hjá
Vinnumálastofnun á Sauóárkróki en upp
á síókastið hefur hún eytt kvöldunum
vió söng og æfingar fyrir sýninguna
Multi mucika sem haldin veróur þann
24.október, á fyrsta vetrardag og kvenna-
frídaginn, í Menningarhúsinu Miógarói í
Skagafirói. Feykir sendi Ásdísi línu.
Heimsreisa í fylgd
tónlistarinnar
Sæl og blessuð, hvað er nú helst
að frétta frá Sauðárkróki? -Af
Króknum er bara allt ágætt að
frétta, lífið gengur sinn vanagang
hér eins og lög gera ráð fyrir.
En af þér sjálfri? -Síðustu vikur
hafa farið í að undirbúa þessa
tónleika að mestu þannig að ég
hef haft það mjög gott! Þetta hefur
verið einstaklega skemmtilegur og
gefandi tími.
Þetta er mjög spennandi verk-
efni, hvernig kom það til? -Hug-
myndinni laust niður í kollinn á
mér einn daginn þegar að ég sat
og var að flokka geisladiskana
mína en ég á ágætt safn af tónlist
héðan og þaðan úr heiminum.
Hugmyndin var sú að setja saman
tónlistardagskrá sem hefði það
einkenni að vera alþjóðleg, fjöl-
breytt og skemmtileg og flutt af
konum eða samin af þeim.
Þá var bara að henda sér í að
sækja um styrki og ég var svo
heppin að fá góðan stuðning frá
Menningarráðinu til verkefnisins
og þá var eiginlega ekki aftur
snúið. Einnig hef ég fengið styrki
frá Sparisjóði Skagafjarðar og
Ólafshúsi.
Sást þú ein um að velja tónlistina
eða voru einhverjir í því með þér?
-í aðalatriðum er tónlistin valin
af mér en einhverjar breytingar
urðu á æfingatímabilinu. Þarna
er tónlist frá Mexíkó, Argentínu,
Chilé, Brasilíu, Spáni, Kúbu,
Kenýa, ísrael, Rúmeníu, S-Afríku
og Indlandi. Salsa, tangó, þjóðlög
og sígaunalög, allt mjög fjölbreytt
tónlist, bæði hress ogskemmtileg
en inn á milli angun/ærirtónar.
Það hefur ekki verið vandamál
að fá tónlistafólk með þér í
verkefnið? -Nei, það voru allir
mjög jákvæðir að taka þátt og
við erum 10 manns á sviðinu, allt
frábærir tónlistarmenn.
Við höfum líka skemmt okkur
konunglega á æfingum, ég held
ég tali fyrir hönd okkar allra þegar
ég segi það. Tónlistin er líka svo
skemmtilegað annað erekki hægt!
í hljómsveitinni eru Sorin Lazar,
sem er jafnframt tónlistarstjóri,
Rögnvaldur Valbergsson, Jóhann
Friðriksson, Sigurður Björnsson,
Sveinn Sigurbjörnsson, íris
Baldvinsdóttir, Jóhanna Marín
Óskarsdóttir, Ólöf Ólafsdóttir og
Þórunn Rögnvaldsdóttir.
Verður bara um þessa einu
sýningu/tónleika að ræða?
-Þessir tónleikar eru það sem við
emm að einbeita okkur að núna en
ef vel gengur þá munum við skoða
möguleika á því að halda aðra
tónleika og jafnvel að fara víðar með
dagskrána. Svo fer það auðvitað líka
eftir viðtökum áheyrenda hvernig
framhaldið verður.
Þið eruð með nokkra samstarfs-
aðila - segðu mér aðeins frá
þeim? -Skagafjarðardeild RKI
hefur skipulagt 10 landa smakk
í hléinu en þá munu samlandar
okkar af erlendum uppruna
bjóða gestum upp á mat frá
þeirra heimalöndum.
UNIFEM og Félag kvenna af
erlendum uppruna munu
einnig kynna starfsemi sína
í hléinu en þar sem þetta er
kvennafrídagurinn og við að
flytja lög eftir konur fannst okkur
tilvalið að bjóða þeim þátttöku.
Hver er markhópurinn? -Mark-
hópurinn er breiður - fólk sem
hefur gaman af tónlist almennt.
Þarna geta flestir fundið eitthvað
við sitt hæfi. Þó þetta séu lög
sem kannski ekki heyrast oft þá
eru þar innan um lög sem flestir
þekkja og ég nefni sem dæmi
Guantanamerafrá Kúbu, Besame
Mucho frá Mexíkó og Pata Pata
sem Miriam Makeba frá Suður-
Afríku gerði frægt. Þarna ættu
allir að geta skemmt sér með
okkur, kvatt sumar og heilsað
vetri með glæsibrag. Gestir geta
setið við borð og geta keypt
sér hressingu en vínveitingar
verða á tónleikunum. Sviðið og
salurinn verða einnig skreyttur
með munum frá Afríku og Suður
Ameríku sem vinir mínir hafa
verið svo vinsamlegir að senda
mér. Hugmyndin er að bjóða
áhorfendum upp á heimsreisu í
fylgd tónlistarinnar. Á milli laga
verður svo fluttur ýmis fróðleikur
frá viðkomandi löndum.
Þessi dagurerennfremurkvenna-
frídagurinn og lögin eiga það
sameiginlegt að vera flutt af eða
samin af konum.
Nú er svolítið síðan þú varst að
syngja svona opinberlega síðast
þú ert ekkert að hugsa um að
söðla um? -Ég er nú fyrst og
fremst með þessu að láta gamlan
draum rætast og er bara mjög
ánægð með að það sé að takast.
Mér finnst gaman að gefa af
mér og deila þessari dásamlegu
tónlist með öðrum.
Eitthvað að lokum? -Mig langar
að þakka öllum sem hafa lagt
hönd á plóginn með undirbúning,
allir hafa verið svo jákvæðir og
tilbúnir að hjálpa. Mér finnst
frábært að fá tækifæri til að flytja
dagskrána í okkar glæsilega
menningarhúsi, Miðgarði, sem
við getum svo sannarlega verið
stolt af.
Ég vonast til að sjá Skagfirðinga
og Húnvetninga á laugardaginn,
já, og alla sem vilja koma og sjá
okkur. Við leggjum mikinn metnað
í þessa dagskrá ogvonum að sem
flestir komi og njóti hennar með
okkur. Það ergaman að geta kvatt
sumarið og haldið inn í veturinn
með þessum hætti. Hægt er að
panta miða í síma 899-9845.
Sjáumst fyrsta vetrardag I!
ÍJ lfl ITIenningarráð
M II Norðurlands vestra
Sigri i Músíktilraunum fagnað.
Bróðir Svartúlfs er á mikilli siglingu
Fyrsti
diskurinn
kominn út
Drengjabandið Bróðir
Svartúlfs sem kom sá og
sigraði í Músíktilraunum sl.
vor var að fá í hendurnar
sinn fyrsta geisladisk sem
ber heitið því frumlega nafni
Bróðir Svartúlfs. Strákarnir
stefna á útgáfutónleika á
Mælifelli föstudagskvöldið
23. október og hefjast
tónleikarnir hálf níu.
Hvernig diskur er þetta? -
Þetta er 6 laga hádramatískur
diskur, fullur af fegurð og
ljótleika sem vellur af munni
Arnars Freys. I raun fundust
okkur textarnir svo góðir að
við ákváðum að gefa þá út í
sér hefti sem fylgir disknum,
útskýrir Helgi Sæmundur.
-Textarnir eru nefnilega
eins flottir og þeir eru
svolítið óskiljanlegir í hljóði
og því vildum við sjá til þess
að boðskapurinn skilaði sér
alla leið, bætir Sigfús við.
Hvar verður hægt að kaupa
diskinn? -Hann verður
fáanlegur í öllum helstu
plötubúðum en fyrir fólkið
okkar hér fyrir norðan
verður hægt að nálgast hann
í verslun allra Skagfirðinga,
Skagfirðingabúð, auk þess
sem hægt verður að kaupa
hann á sérstöku tilboðsverði
á útgáfutónleikunum. Allt
fyrir aðdáendurna.
Hvað með Fúsalega helgi,
verður hún ekkert útundan
þessi misserin? -Heyrðu
nei við reynum að troða
henni að inn á milli. Fúsaleg
helgi mun hita fólk upp fyrir
Bróðir Svartúlfs auk þess
sem bandið verður með
tónleika á Mælifelli fljótlega
bara svona til þess að halda
okkur við, svarar Helgi
Sæmundur.
Nú er kominn diskur og
þið enn þá bara hér heima
í sveitinni, stefnið þið
eitthvað lengra með Bróðir
Svartúlfs. -Við Helgi erum
reyndar bara tveir hérna
núna, hinir þrír eru allir
fluttir suður. Þannig að
bandið er í fjarbúð þessa
dagana og við hittumst bara
þegar við erum að spila. Ætli
það endi ekki með því að við
Helgi eltum hina suður.
í leit að frægð og fram þá?
-Já, ekki spurning.