Feykir - 22.10.2009, Side 4
4 Feykir 39/2009
Hvammstangi
Fegrunarfélagið
endurvakið
Trjáræktin er mikil prýði við Heilbrigðisstofnuna á Hvammstanga. Mynd: Erla B Kristinsdóttir
Boðað var til kynningar-
fundar í gær hjá Fegrunar-
félagi Hvammstanga í
félags-miðstöðinni Orion og
blásið iffi f félagið að nýju.
Það var Erla Björg
Kristinsdóttir sem hafði
frumkvæði að því að
endurvekja Fegrunarfélagið
en það var stofnað árið 1957
og byggði upp sjúkrahús-
garðinn á Hvammstanga í
sjálfboðavinnu sem mikil
prýði er af. -Ég hef verið að
hugsa um þetta s.l. tvö ár og lét
verða af því núna, segi Erla.
-Ég er sjálf í skipulags-og
umhverfisrráði sveitarfélags-
ins en mér finnst vanta að fólk
almennt fái tækifæri til að
hittast og ræða þau mál. Erla
er með margar hugmyndir að
verkefnum á Hvammstanga
en segir að félagið muni fara
rólega af stað og veturinn verði
notaður til að skipuleggja
næstu skref félagsins m.a. að
skipa stjórn.
Alls eru skráðir tuttugu og
tveir í félagið sem væntanlega
bíða spenntir eftir komandi
sumri.
Skagafjörður
Góð stund hjá
Tómstundahópnum
Fjölmenni var á opnu húsi..
Það var góð mæting á Opið
hús hjá Tómstundahópi
Rauða krossins á
sunnudaginn var, tilefnið var
5 ára afmæli hópsins.
Þar var kaffihlaðborð og
ýmislegt smálegt til sölu, allur
ágóði af sölu dagsins rann til
styrktar hópnum í leik og
starfi. Tómstundahópur Rauða
krossins vill koma á framfæri
þakklæti til þeirra sem komu
og styrktu þá um leið. Takk
fyrir okkur. Myndirnar tók
Kristín Ármannsdóttir.
Skagaströnd
Hofóaskóli
70 ára
Höfðaskóli á Skagaströnd
varð sjötíu ára á
laugardaginn 17. október.
Árið 1939 var komið á fót
„fastaskóla” á
Skagaströnd. Fyrsta
skólaárið, 1939-1940, var
kennt frá 17. október til
10. maí, alls 135 daga.
Nemendur voru þá samtals
46 í 2 bekkjardeildum. Einn
kennari starfaði við skólann,
Páll Jónsson, og var hann
jafnframt skólastjóri.
í tilefhi af afmælinu verður
sett ýmis konar efni inn á
kapalkerfið um skólann sem
núverandi nemendur hafa
unnið.
Einnig hafa nemendur tekið
saman margvíslegt efni um
Höfðaskóla og sett á vef hans.
Ætlunin er að efna til
samkeppi um skólasöng og
merki skólans. Nánari
upplýsingar verður að finna á
vef skólans.
Sauðárkrókur_______
Víðimels-
bræður með
snjómokstur
áKrók
Umhverfis- og
samgöngunefnd
Skagafjarðar hefur
ákveðið að ganga að
tilboði Vfðmelsbræðra er
varðar snjómokstur og
hálkueyðingu á
Sauðárkróki.
Tilboð bárust frá
Steypustöð Skagafjarðar,
Vinnuvélum Símonar
Skarphéðinssonar og
Víðimelsbræðrum.
Eftir að hafa borið
saman tækjalista og til-
boðsupphæðir fyrirtækj-
anna var samþykkt að
ganga til samninga við
Víðimelsbræður á grund-
velli tilboðs þeirra sem var
hagstæðast
Hvernig væri að
kíkja ó Feykir.is
Hafðu samband
- Siminn er 455 7176
AÐSEND GREIN
Helga Margrét Guðmundsdóttir skrifar
Málið varðar okkur öll
Árlega er efnt til svokallaðrar
vímuvarnaviku með það að
markmiói að vekja athygli
landsmanna á mikilvægi
forvarna, einkum forvörnum
sem snúa að börnum og
unglingum. Verkefnið ber
yfirskriftina Vika 43 og
stendur að þessu sinni yfir
dagana frá 18. október til
24. október.
Vel upplýstir foreldrar eru
góð forvörn og mikilvægt er
að foreldrar eigi gott samstarf
um vímuvarnir sín í milli og
við skólann. Nú hafa verið
stofnuð foreldrafélög við
framhaldsskólana og þar starfa
foreldraráð samkvæmt nýjum
menntalögum. Forvarnarfúll-
trúar og náms- og starfsráð-
gjafar í framhaldsskólum eru
lykilfólk í samstarfi heimila og
skóla um aldurshópinn 16-18
ára.
Foreldrar kannabisneyt-
enda hafa lýst þeirri reynslu
sinni að hafa grandalausir
sofnað á verðinum og ekki
þekkt þau einkenni sem koma
fram við upphaf kannabis-
neyslu hjá ungu fólki. Hvernig
byrgjum við brunninn?
Það er brýnt að efla fræðslu
til foreldra um einkenni
neyslunnar, umfang og
afleiðingar sérstaklega í ljósi
þess að kannabisneysla ungs
fólks hefur aukist. Talað er um
að neytendum kannabisefna
sem leita sér meðferðar hafi
fjölgað um helming síðustu ár
á íslandi. Sjónum manna er
nú í Viku 43 beint að
kannabisneyslu ungs fólks og
foreldrar hvattir til að vera vel
á verði gagnvart þeim vágesti
sem fíkniefni eru. Unga fólkið
þarf stuðning sinna nánustu
og foreldrum er mikið í mun
að styrkja sjálfsmynd barna
sinna og undirbúa þau sem
best til að takast á við þau
áreiti sem beinast að þeim.
Komið hefur fram í íslenskum
rannsóknum að eftirlit for-
eldra, stuðningur þeirra, og
tengsl og foreldra við aðra
foreldra og vini barna þeirra
dregur úr líkum á vímu-
efnaneyslu.
Foreldrasamstarf í skólum
er því liður í forvörnum.
í raun eru allar vikur ársins
vímuvarnavikur í þeim skiln-
ingi að forvarnir eru ekki
afmarkað, tímabundið verk-
efni. Forvarnir eru miklu
heldur samfeUt og víðtækt
viðfangsefni, sem varðar allt
samfélagið, rétt eins og uppeldi
og velferð barna. Heimil og
skóli - landssamtök foreldra
miða alla starfsemi sína við að
styðja foreldra í uppeldis-
hlutverkinu. Foreldrar kynnið
ykkur málið og láti það til
ykkar taka.
Sjá nánar: heimiliogskoli.is
og naumattum.is
Helga Margrét
Guðmundsdóttir
verkefnastjóri
hjá Heimili ogskóla
landssamtökum foreldra
Frá árinu 2004 hafa Heimili og skóli
- landssamtökforeldra tekið þátt í
Samstarfsráði umforvarnir, SAMFO
Svínaflensa
Forgangshópar bólu-
settir frá 2. nóvember
Samkvæmt tilkynningu frá
Landlækni verður byrjað að
bólusetja sjúklinga í
tilgreindum forgangshópum
og þungaðar konur á
heilsugæslustöðvum um
land altt mánudaginn 2.
nóvember.
Eru sjúklingar í þessum
hópum beðnir að hafa samband
við heUsugæslu næst lögheim-
Uum sínum ífá og með
fimmtudegi 22. október.
Gert er ráð fyrir að það taki aUt
að fjórar vikur að bólusetja
nefnda hópa fólks en í
framhaldinu verður almenningi
boðin bólusetning og verður
hún auglýst sérstaklega í
nóvember.