Feykir


Feykir - 12.11.2009, Blaðsíða 2

Feykir - 12.11.2009, Blaðsíða 2
2 Feykir 42/2009 Kraftur 2009 í Reiðhöllinni_ Tryllitæki af öllum hugsanlegum gerðum Undirbúningur útivistar og sportsýningarinnar Krafts 2009 sem fram fér í Reióhöllinni á Sauóárkróki um næstu helgi, er f fullum gangi og segir Eyþór Jónasson framkvæmdastjóri margt spennandi verða í gangi. -Skotfélagið Ósmann ætlar að koma með góða flóru af skotvopnum sem verða til sýnis í anddyri Reiðhallarinnar og Indriði bogamaður kennir fólki sem náð hafa 16 ára aldri að skjóta af boga, segir Eyþór. Miklar pælingar hafa farið fram með uppröðun bíla inni í húsinu og segir Eyþór að björgunabílarnir þurfi greiða leið út ef útkall verður. -Þarna verða ýmis tryllitæki til sýnis, allt frá verulega heimasmíðuðum Rússa '57, og heimasmíðaðri torfærugrind og upp í nýja Land Crusera og hinn margfrægi og víðförli Dali verður með rallý-Trabantinn sinn á staðnum. Svo koma bílar úr Húnavatnssýslum og Akureyri. Vélhjólaklúbburinn ætlar að lyfta hulunni af splunkunýju heimasmíðuðu apparati sem þeir ætla að nota við að ryðja snjó af svellum sem þeir ætla að spæna á í vetur og Smaladrengirnir verða með ótrúlega glæsileg hjól til sýnis. Sleðamenn verða með gamla og nýja sleða til sýnis og einhverjir þeirra verða heltjúnnaðir, segir Eyþór og greinilegt að það verður eitthvað í að líta á sýningunni Krafti 2009 á laugardaginn. Leiðari Vísindarannsóknir ný stóriðja Þráttfyrir að hugtakið stóriðja hafi síðustu ár orðið hálfgert klámyrði hjá íslensku þjóðinni eru engu að síður vinsælt aðfá stóriðju í sína heimabyggðþví stóriðju fylgijú störf Hér á Norðurlandi vestra hefur ekki orðið til stóriðja í eiginlegri merkingu þess orðs síðustu ár eða hvað? í kynningu á þeimfyrirtækjum sem starfa að vísindarannsóknum á Norðurlandi vestra kemurfram að á svæðinu vinna um 170 einstaklingar við rannsóknir. Yrðu þeir allir settir á einn vinnustað myndum við berja okkur á brjóst og segja: „Hér er okkar stóriðja“. Sauðjjárbú í Skagafirði og í Húnavatnssýslum eru mörg hver meðþeim stærri á landinu. Um 100 einstaklingar hafa atvinnu í kringum íslenska hestinn á svæðinu. Svona gæti ég haldið áfram. Ég vil þó leyfa mér aðfullyrða að okkar stóriðja erfólgin ífrumkvöðlakrafti, vísindarannsóknum og gömlum og góðum gildum. Það er okkar íbúanna að standa vörð um þessi störfsvo sú gríðarlega uppbygging sem hefur átt sér stað síðustu ár geti haldið áfram. Guðný Jóhannesdóttir ritstjóri Feykis Óháð fréttablad á Nordurlandi vestra - alltaf á fimmtudögum Feykir Útgefandi: Ritstjóri & ábyrgdannadun Áskriftarverð: Nýprent eht Guðný Jóhannesdóttir 275 krónur hvert tölublað Borgarflöt 1 Sauðárkróki 1eykir@nyprent.is © 455 7176 með vsk. Póstfang Feykis: Blaðamenn: Lausasöluverð: Box 4,550 Sauðárkrókur Páll Friðriksson palli@nyprent.is © 8619842 325 krónur með vsk. Blaðstjórn: Óli Arnar Brynjarsson Áskrift og dreifing Árni Gunnarsson, oli@nyprent.is Nýprent ehf. Áskell Heiðar Ásgeirsson, Lausapenni: Sími 4557171 Herdís Sæmundardóttir, Ólafur Sigmarsson og Páll Örn Þórarinsson. Umbrot og prentun: Dagbjartsson. Prófarkalestun KarlJónsson Nýprent ehf. Húnavatnshreppur____ Fær ekki tekju- jöfnunarframlag Á fundi hreppsnefndar Húnavatnshrepps fyrir helgi kom fram aó úthlutun til þeirra á tekjujöfnunar- framlagi og aukaframlagi Jöfnunarsjóðs árið 2009 hafi lækkaó um 12 milljónir króna frá fyrra ári og veróur því 10.5 millj. kr. Húnavatnshreppur fékk ekki úthlutað tekjujöfnunar- framlagi í ár, en það var rúmar 4 millj. kr. árið 2008. Á fundinum gerði sveitarstjóri grein fyrir þeim breytingum sem gerðar hafa verið á fjárhagsáætlun ársins 2009 og var endurskoðuð fjárhags- áætlun samþykkt samhljóða. Framlög frá Jöfnunarsjóði Mikið tjón varð í minkabúum á Sköróugili og Ingveldar- stöóum í Skagafirði fyrir skömmu þegar lungnapest gaus upp með þeim afleiðingum að minkar drápust. Sýnu verra ástand skapaðist á Skörðugili en þar drápust nokkur hundruð dýr á dag þá rúmu viku sem veikin geisaði og engin lyf til í landinu sem slegið gátu á veikina. Tjónið er talið vera um tíu milljónir sem ekki verður bætt með trygg-ingum. Á Ingveldarstöðum varð veikin ekki eins skæð, þar sem innan við tíu dýr drápust á dag. Tjónið var líka mun minna, Af 27 tilnefningum til Umhverfisverðlauna Ferðamálastofu koma flórar af Norðurlandi vestra. Þar em tilnefnd; Brekkulækur í Miðfirði, Drangeyjarferóir, Selasetur íslands og Sveitarfélagið Skagaströnd. Tilgangur verðlaunanna er að beina athyglinni að þeim ferðamannastöðum eða fyrir- tækjum í ferðaþjónustu sem lækka eins og áður sagði um 4% frá fyrri áætlun. Rekstur málaflokka hækkar í heild um 4,5% og skýrist það aðallega af áætluðum hækkunum vegna félagsþjónustu, fræðslumála, hreinlætismála og atvinnu- mála. Gert er ráð fyrir að vaxtatekjur lækki frá fyrri áætlun. Samkvæmt endurskoðaðri fjárhagsáætlun ársins 2009 er áætlað að rekstur samstæðu verði neikvæður um 13.3 millj. kr. Reiknað er með að afborganir lána verði 7 millj. kr. og að tekin verði ný lán að upphæð 25 millj. kr. í fjárfestingar eru áætlaðar um 35 millj. kr. þar sem pestin kom seinna upp og skinnin komin í feld, en komið var að sláturtíð og því hægt að nýa þau. Um bráðsmitandi pest var að ræða sem orsakast af bakteríu sem algeng er í umhverfinu en verður hættuleg þegar vissar aðstæður skapist s.s. mikill raki og stillt veður. Einar Einarsson bóndi á Skörðugili gagnrýndi það að ekki væru til lyf í landinu sem spornaði við veikinni þar sem þessi pest hafi komið upp bæði árið 2007 og 2008 og þá hafi minkabóndi staðiði frammi fyrir sama vanda og nú sé uppi í Skörðugili. sinna umhverfismálum í starfi sínu og framtíðarskipulagi. Þau geti með því orðið hvatning til ferðaþjónustuaðila og við- skiptavina þeirra að huga betur að umhverfi og náttúru og styrkja þannig framtíð grein- arinnar. Verðlaunin hafa verið af- hent árlega frá árinu 1995 og er þetta því í 15. skiptið. Hvammstangi Mælt með séra Magnúsi Mælt hefur verið með séra Magnúsi Magnús- syni sem næsta sóknar- presti á Hvammstanga en staðar var laus frá og með 1. nóvember sl. Magnús er fæddur og uppalinn á Staðarbakka í Miðfirði og má því segja að hann sé að snúa til baka heim á æskustöðvarnar. Eiginkona Magnúsar er Berglind Guðmundsdóttir, tanntæknir, og eiga þau þrjú börn. Blönduós____________ Kæru Kráks vísað frá Kærunefnd útboðsmála hefur vfsað frá kæru Kráks ehf, á hendur Blönduósbæ vegna útboðs á 2. áfanga sundlaugarbyggingar á Blönduósi. Var úrskurður þessi lagður fram til kynningar á síðasta fundi bæjarráðs Blönduósbæjar. Skagfirðingar á Skagaströnd Gospel- sveifla í Hólanes- kirkju Þriðjudagskvöldið 17. nóvember næstkomandi verður létt dagskrá í tali og tónum í Hólaneskirkju á Skagaströnd kl. 20:30. Kirkjukór Glaumbæjar- prestakalls í Skagafirði syngur undir stjórn Stefáns R Gíslasonar. Einsöngvari er Ásdís Guðmundsdóttir en undirleikarar með kórnum eru auk Stefáns Gíslasonar; Margeir Friðriksson og Víglundur Rúnar Pétursson. Kynnir verður Sr. Gísli Gunnarsson. Allir velkomnir - Að- gangur ókeypis! Fréttatilkynning Skagafjörður Minkar drepast úr lungnapest Norðurland vestra Fjórir tilnefndir til umhverfisverðlauna

x

Feykir

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Feykir
https://timarit.is/publication/1151

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.