Feykir - 12.11.2009, Blaðsíða 11
42/2009 Feykir 11
( MATGÆÐINGAR VIKUNNAR )
Ingunn María og Sighvatur kokka
Grafin gæs og
hreindýrasteik
Villibráðin er þema vikunnar hjá Ingunni Manu Björnsdóttur
og Sighvati Steindórssyni á Blönduósi enda margir sem
kunna að meta þann góða mat.
Ingunn María og Sighvatur skora á Þórunni Jónsdóttur og
Jakob Jóhannsson að koma með næstu uppskriftir úr
Húnaþingi.
Grajin gœs
Bringurnar huldar í gróíú salti í
ca. 3 klst. Saltið síðan skolað af
með vatni og bringurnar síðan
þerraðar.
Krydd blanda:
1 hluti sinnepsjrœ
1 - basil
1 - timian
1 - rósmarin
1 - salt
1 - svartur pipar
‘A - oregano
1 -sykur
1 - dilljrœ
1 - rósapipar
Bringurnar þaktar í kryddblönd-
unni og geymdar í kæli í 2
sólahringa. Gott er að ffysta
bringurnar áður en þær eru
sneiddar svo betra sé að sneiða
þunnar sneiðar.
Sósa:
4 msk. bláberjasulta
1 msk. hvítvínsedik
Sinnepsjrœ (má sleppa)
Hreindýravöðvi
Einfóld oggóð uppskrift af
hreindýrasteik
Villibráðarkrydd (Prima)
Villijurtir (Pottagaldrar)
Salt
Olía
Smjör til steikingar
Villibráðarkryddi og villijurtum
blandað saman. Smá olía sett
saman við kryddið og síðan
penslað á kjötið. Smjör og olía
hitað saman á pönnu. Þegar
pannan er orðin snarpheit er
kjötið brúnað á báðum hliðum og
sett í eldfast mót. Smá salti stráð
yfir kjötið og síðan sett inn í ofn á
180° í ca. 13 mín. Tíminn fer þó
eftir þykkt vöðvans. Ef notaður er
kjöthitamælir þá er kjötið eldað
þar til mælirinn sýnir 48 til 50°.
Láta kjötið standa í nokkrar mín.
áður en það er skorið.
Sósa:
Smjör
Hveiti
Mjólk eða rjómi
Villibráðarkraftur
Villijurtir
Salt
Rifsberjasulta
Sósan bökuð upp og smökkuð til.
Bakaðar kartöflur:
Kartöflur settar í eldfastmót og vel
af grófú salti stráð yfir. Lok sett á
formið eða álpappír. Formið sett
inn í ofn í 50 mín. á 180°
Annað meðlæti eftir smekk hvers
og eins.
Döðluterta
1 bolli saxaðar döðlur
100 gr. saxað suðusúkkulaði
‘A bolli sykur
‘A bolli hveiti
2stk. egg
1 tsk. lyftiduft
1 tsk. vanilludropar
Öllu blandað saman, sett í eldfast
mót og inn í ofn í 25 mín við
180°.
Borið fram með þeyttum rjóma
og góðu kaffi.
Verði ykkur að góðul
( GUÐMUNDUR VALTÝSSON )
Vísnaþáttur 510
Heilir og sælir lesendur góðir.
Áffam skal haldið með að rifja upp ágætar,
og margar vandaðar visur sem ortar voru
í ferð kvæðamannafélagsins Iðunnar á
Hveravelli. Við gömlu Hvítárbrúna urðu
allir að fara úr bílnum og ganga yfir.
Ringdi þá meira en noklcru sinni fyrr.
Magnús Jónsson frá Barði orti.
Við höfumfengið skírnarskúr
úr skýjaruðning hranna.
Ersketnmir ekki skemmtitúr
skálda og listamanna.
Öllu því sem guð oss gaf
gjarnan yfir vökum.
Vatnið hrynur ætíð af
andans vœngjatökum.
Þegar komið var í Svartárbotna rofaði til
og Ingþór yrkir svo.
Teigirskaut í himinn heiðan
heimurfjalla brattur skín.
Faðminn opnar bjartan breiðan
býðurgestum heim til sín.
Jóhannes frá Asparvík sá gróðurnál í
Svartárbotnum og orti þessa.
Bíllinn veginn áfram ekur
allt er hér í kyrrð og ró.
Auðnin hverfuryndi vekur
ofurlítil mosató.
í Hvítárnesi var áð og sagði fararstjóri ffá
draug sem ríkti þar og vildi sofa hjá þeim
er þar gistu. Adolf yrldr.
Hér er inni ekkert spaug
eftir að húma tekur.
Þar kynnast menn við kynjadraug
sem kynúðina vekur.
Er haldið var úr Hvítárnesi hætti loks að
rigna. Andrés Valberg yrkir þá.
Áðanflœddi allt í kaf
erþað vert að muna.
Við höfum kveðið okkur af
alla rigninguna.
Nú sá til sólar og Ólafur Þorkelsson yrkir
svo fallega.
Meðan éghef sólarsýn
ogseytla óðar góðir.
Alltafber ég ást til þín
Islandfóstra og móðir.
Þegar nálgast Hveravelli yrkirAdolf.
Nú er ekið inn á Kjöl
er þar vegur greiður.
Hann er eins og hefluðjjöl
hlykkjóttur og breiður.
Er komið var á Hveravelli var byrjað á
að reisa stórt samkomutjald. Kölluðu
félagarnir það baðstofuna. Adolf yrkir.
Baðstofan er burstahá
en brestur skör og þilin.
Þó vanti Ijóra og vindskeið á
veitirhún skjól ogylinn.
Fóru nú gestir að hita sér kaffi og koma
sér betur fyrir. Þórhildur frá Hóli sá
Ingþór vera að höndla með vökva í glasi
og orti svo.
Ingþór Ijóðin lipru kvað
leysti margan vanda.
En nú erfarið nett íþað
nú er hann að blanda.
Síðar kom í Ijós að Ingþóri hafði dottið í
hug að hita sér kaffi. Eftir að hafa hresst
sig á því rann honum í brjóst og effir að
Þórhildur komst að því, kom þessi.
Friður ríkir, fjörið dofnar
faldar œvi-vefurinn.
Andinn vakir, Ingþór sofnar
ilmar kajfi-þefurinn.
I ferðinni voru meðal annarra tvær
ljósmæður vel hagmæltar án þess að
flíka því. Magnús frá Barði taldi rétt að
örva hjá þeim andann og orti.
Ég heffregnað að hér vceru
yjirsetukonur tvœr.
Yrkja kannski að þœr fœru
ef við bara vermum þœr.
Adolf komst að því að Magnús fylgdist
grannt með tjaldi þeirra og orti.
Þegar „Ijósan“ Ijós á brá
leit hann hýrum augum.
Ósköp varð hann eitthvaðþá
óstyrkur á taugum.
Eftir að hafa gantast við Magnús um grín
þetta orti Adolf.
Nú er Magnús alveg orðinn
ástfanginn í „Ijósunum".
Hefur bláeyg hringaskorðin
honumfórnað rósunum.
f þeim svifúm ákváðu ljósmæðurnar að
bjóða Magnúsi inn í tjald þeirra, upp á
hressingu. Orti þá Adolf.
Gœfan leggurgleði lið
geislar eggjun töfravaldsins.
Ástir beggja unir við
innan veggja sumartjaldsins.
Talcið lesendur góðir eftir snilld þessarar
vísu. Oft hefúr heyrst að reimt sé á
Hveravöllum. Ingþóri þótti rétt að yrkja
þessa áður en hann fór að sofa. Hef lengi
kunnað þessa vísu en ekki vitað um
tilurð hennar, gaman að sjá hana hér nú.
Þegar allt er orðið hljótt
og á bœn vér fóllum.
Gef oss öllum góða nótt
Guð á Hveravöllutn.
Verið þar með
sœl að sinni.
Guðimnidur
, Valtýsson
I Eiríksstöðum
541 Blönduósi
Sími 452 7154