Feykir


Feykir - 12.11.2009, Blaðsíða 5

Feykir - 12.11.2009, Blaðsíða 5
42/2009 Feykir 5 Vísindi: Feykir mun á næstu mánuöum birta kynningar á þeim fyrirtækum og stofnunum sem stunda vísindarannsóknir á Norðurlandi vestra. Viö höldum nú áfram aó kynna til leiks þau fyrirtæki og stofnanir sem taka munu þátt í kynningunni. Kynningar vísindafólksins munu síóan birtast á þriggja vikna fresti eftir þaö. Eflum alla dáö! framfæri.Verið tekur einnig þátt í SAUÐÁRKRÓKUR (frh.) rannsóknarverkefnum. Veiðimálastofnun [4-5] www.veidimal.is Veiðimálastofnun sinnir rannsókn- um á ám og vötnumográðgjöf um nýtingu þeirra. Einnig vinnur stofnunin að selarann- sóknum, rannsóknum á lífsferlum laxfiska í sjó og fisktegundum sem nýta sér ósasvæði og eiga þannig vistfræðilegt samspil við ferskvatnstegundir. Á Norðurlandi starfa nú 4 sérfræðingar í starfsstöð á Sauðárkróki og einn í tengslum við hana við Selasetrið á Hvammstanga. Umhverfið þitt Þann l.desember 2008 var stofnuð sjálfseignarstofn- unin UMHVERFIÐ ÞITT SES. Stofn- unin hefur það markmið að stuðla að því að Skagafjörður verði í fararbroddi þegar kemur að umhverfismálum, að þar verði m.a. miðstöð menntunar og rannsókna á sviði umhverfisfræða á íslandi; með stuðningi við rannsóknir, kennslu og útgáfu námsefnis því tengdu. Fjölbreytt verkefni verða unnin í samvinnu við einstaklinga, fyrirtæki og stofnanir. Verið - Vísindagarðar www.veridehf.is Markmiðið er að reka kennslu- og rannsóknarað- stöðu ásamt því að skapa aðstöðu og vettvang til samstarfs milli vísindamanna og fyrirtækja á sviði nýsköpunar og frumkvöðlastarfsemi. í Verinu koma saman frumkvöðlar og fræðimenn sem leitast við að rannsaka og finna ný tækifæri og koma þeim á V. VERIÐ Vísindagarðar > Fiskeldis- og fiskalíffræðideild Háskólans á Hólum er til húsa í Verinu (sjá umfjöllun um skólann undir Hólar í Hjaltadal). > Matís [4] www.matis.is / * v I Líftæknismiðju Matís ohf. er sérhæfð rann- sóknastofa á sviði líftækni og lífefna og vinnslusalur þar semtilraunaverksmiðjalceproteinehf. hefur aðstöðu. Á rannsóknastofunni er unnið að mælingu á lífvirkum eiginleikum lífefna úríslenskri náttúm. í vinnslusalnum er m.a. aðstaða til að einangra og þurrka prótein. Unnið er með íslenskt hráefni s.s. fisk og mysu. Stefnan er m.a. að þróa nýjar vörur sem hafa heilsubætandi áhrif. > lceProtein [2] I ce p róte i n ficepratein ehf er í eigu V RSK Seafood hf og Matís ohf og er afsprengi rannsóknastarfs Matís á eiginleikum og nýtingamiöguleikum fiskipróteina. Helstu viðfangsefni lceprótein ehf hafa verið þróun einangraðra próteina, bæði blautpróteina til notkunar í unnar afurðir og þurrkaðra próteina fyrir heilsu- og fæðubótamarkað. Þótt prótein úr fiski hafi verið meginviðfangsefnið hingað til er einnig horft til annars hráefnis. Sérstaklega er horft til nýtingaraukaafurða í matvælavinnslu og horfir lceprótein til náins samstarf við matvælafyrirtækin í Skagafirði um verðmætaaukningu á þessu sviði. > Nýsköpunarmiðstöð íslands [2] www.nmi.is Impra veitir öllum fmmkvöðlumoglitlum og meðalstórum fyrirtækjum leiðsögn, sama í hvaða atvinnugrein þau starfa, hvort heldur á sviði iðnaðar, sjávarútvegs eða annarra greina íslensks atvinnulífs. Á Sauðárkróki er rekin starfsstöð Impm, sem til viðbótar hefðbundnum handleiðsluverkefnum vinnur að sérverkefnum innan trefjaiðnaðar, orkumála og að sjálfsögðu að uppbyggingu FAB LAB smiðju á Sauðárkróki. SKAGASTRÖND Biopol [5] . _ . Stefnumið BioPol, y^JjJOPOl sjávarlíftækni- * ' seturs, byggja á þremur meginstoðum: I. Rannsóknir á lífriki Húnaflóa með það að leiðarljósi að auka þekkingu á vistkerfi hans og landgmnnsins við ísland. Á þessum rannsóknum verður byggð markviss leit að auknum nýtingarmöguleikum auðlinda sjávar. II. Rannsóknir á vettvangi líftækni, nýsköpun og markaðssetning á afurðum líftækni úr sjávariífvemm. III. Fræðsla, á háskólastigi, ítengslum við fyrrgreindar rannsóknir. Menningarráð Norðurlands vestra [ij www.ssnv.is tá Zé Ifl Hlutverk menning- * ® ■ ■ arráðs er að efla menningarstarf á Norðurlandi vestra og beina stuðningi ríkis og sveitarfélaga við slíkt starf í einn farveg. Auk þess að úthluta verkefnastyrkjum þá er áhersla lögð á samstarf, nýsköpun og þróunarstarf í menningarmálum og menningarferðaþjónustu. HOFSÓS Vesturfarasetrið á Hofsósi [5] www.hofsos.is - Vesturfarasetrið VESTURFARASETRIÐ ^ þjÓnUStU" Og tengslamiðstöð fyrir fólk af íslenskum ættum sem búsett er í Norður Ameríku. Hlutverk setursins er ma. að fræða almenning um ferðir íslendinga tíl Vesturheims, safna heimildum um málefnið, starfrækja ættfræðiþjónustu og viðhalda góðu sambandi við afkomendur fólks af íslensku bergi brotið í Kanada og Bandaríkjunum. ÍSVEITINNI! Byggðasafn Skagfirðinga [4] www.skagafjordur.is Safnið safnar munum og heimildum um líf og sögu Skagfirðinga og miðlar upplýsingum um þann menningararf í formi sýninga og útgáfu. Rannsóknir og útgáfa skipa stóran sess í starfsemi safnsins. Má þar nefna sagnfræðilegar rannsóknir, rannsóknir tengdar torfi og fomum byggingaarfi, munum, þjóðfræði og minjaumhverfinu. Fomleifadeild hefur verið starfrækt við safnið síðan 2003 og er höfuðhiutverk hennar að stunda frumrannsóknir í fomleifafræði á Norðurlandi vestra með áherslu á starfssvæði safnsins. Ætlunin er að skapa þekkingagrunn í héraði með áherslu á fmmrannsóknir á menningararfinum með sem víðtækustu samstarfi við aðila sem einnig stunda slíkar rannsóknir. HVAMMSTANGI Selasetur íslands [3] www.selasetur.is ■ AtTU R ls,. Rannsóknadeild Rannsókna- og fræðasetur um seli við ísland og náttúrutengda ferðaþjónustu. setursins sinnir ýmsum rannsóknav-erkefnum, bæði innlendum og alþjóðlegum, en að auki heldur setrið útí fræðslusýningu um seli og árlegum listsýningum. Setrið sinnir einnig margs konar ráðgjöf. BLÖNDUÓS Háskólasetur Háskólans á Hólum á Blönduósi [2] Setrið var stofnað fyrr á árinu. Þar eru stundaðar rannsóknir á sviði strandmenningar og hafíss á Norðurslóðum og á sviði textílfræða. Við setrið skal stutt við uppbyggingu hvers kyns rannsókna- og fræðslustarfa í héraðinu. Starfsemi setursins tengist ferðamáladeild Háskólans á Hólum. Textílsetur íslands ses [ í ] www.textilsetur.is Setrið er til húsa f Kvennaskólanum á Blönduósi. Stofnuninni er ætlað að efla rannsóknir á íslenskum textíliðnaði og menntun í textíliðnaði, handverki á sviði klæðagerðar og textíllistum og skapa fræði- og listafólki starfsaðstöðu og aðstöðu fyrir vettvangsnám háskólanema. Jafnframt að vera alþjóðlegt fræðasetur sem heldur ráðstefnur, málþing og námskeið um textíl á eigin vegum og annara. Hafíssetur www.blonduos.is/hafis/ OHafíssetrið á Blönduósi var stofnað árið 2006 og hefur það að markmiði að miðla fróðleik og upplýsingum um hafís og norðurslóðir. Helstu frumkvöðlar að stofnun setursins vom Veðurstofa Islands, Náttúrufræðistofnun íslands og Þór Jakobsson, veðurfræðingur ásamt Blönduósbæ. Hafíssetrið erstaðsett í Hillebrandtshúsi á Blönduósi sem er talið eitt af elstu húsum landsins. Hafíssetrið stendur fyrir ráðstefnum og er samstarfsaðili að Háskólasetrinu á Blönduósi. Háskólinn á Hólum____________________ Nemendur Sjávarútvegsskóla SÞ Nemendur við Háskóiann á Hólum. Fimm nemendur úr Sjávar- útvegsskóla Háskóla Sameinuóu þjóðanna dvelja á Hólum nú f vetur og stunda nám í fiskeldis- og fiskalíffræðideild. Við Sjávarútvegsskólann stunda 19 nám hérlendis og völdu fimm að sérhæfa sig á Hólum. Þetta er í annað sinn sem hingað kemur hópur til svo langrar dvalar. í gegnum árin hafa nemendur Sjávarútvegs- skólans notið kennslu og leiðsagnar sérfræðinga við Háskólann á Hólum þó í minna mæli sé. Á myndinni eru frá vinstri: Godfrey Kawooya Kubiriza frá Úganda, Isac Abel Chirindza frá Mozambík, Cletus Feyeh frá Kamerún, Adeleen Cloete frá Suður- Afríku og Belemane Semoli frá Suður-Afríku.

x

Feykir

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Feykir
https://timarit.is/publication/1151

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.