Feykir


Feykir - 12.11.2009, Blaðsíða 10

Feykir - 12.11.2009, Blaðsíða 10
10 Feykir 42/2009 Mergjaðir kroppar og magnað rapp Menningarkvöld NFNV Menningarkvöld NFNV var haldið fimmtudaginn 5. nóvember. Mætingin var alveg framúrskarandi og húsið fylltist. Kynnar kvöldsins voru Birgir Þór Guðmundsson og Helga Sjöfn Pétursdóttir og stóðu þau sig framúrskarandi vel og voru m.a. með lagið „Gestalistinn“ sem Ingó og veðurguðirnir gerðu frægt, en voru þau með frumsaminn texta í laginu þar sem ýmsir nemendur og velunnarar skólans komu fram - þetta vakti mikla lukku rneðal áhorfenda í sal. Dómarar kvöldsins í dragi og bodypaint voru Auður frá Capello, Árni Gísli frá Húsi Frítímans, Erla Einars förð- unarfræðingur, Guðbrandur Ægir listamaður og Obba frá snyrtistofunni Wanitu. Dómararnir stóðu frammi íyrir því að dæma þau 3 lið sem tóku þátt í dragshowinu og heil 12 lið sem tóku þátt í bodypaint. Jón Þorsteinn byrjaði kvöldið og sýndi snilli sína í harmonikkuleik og lék 2 lög sem vöktu mikla kátínu áhorfenda. Næst var komið að draginu og þar vann hópurinn „Bylgja og fórnarlömbin1. Bylgja er mjög indæl og gjafmild stúlkukind. Henni fmnst mj ög gaman aðspreðaástog umhyggj u á alla sem hún umgengst og þar af sérstaklega karldýrinu, eins og stendur í dagskránni. Næst stigu Hugrún Lilja og Fúsi á svið og tóku lögin „Sunday Morning" og „Use somebody". Næst á dagskrá var nýr liður þetta árið og var það ljóðalestur en Hildur Sólmundsdóttir las upp frumsamið ljóð sem hún samdi eftir þá reynslu að hafa farið til Danmerkur á tónleika. Eftir ljóða- lesturinn kom atriði frá kennurum við FNV og var það mjög svo skemmtilegt glæru-show þar sem kennararnir voru skemmtilega persónugervðir. Næst á dagskránni var aðalatriði kvöldsins en það er bodypaint keppnin. Þar voru veitt verðlaun íyrir frumlegasta atriðið, 3. sæti, 2. sæti og 1. sæti. Hópurinn sem hreppti verðlaunin fyrir frumlegastaatriðiðvar„Prestaflokkarnir 24“ og þemað þeirra var „tónlist". í 3. sæti var hópurinn „Buck Angel“ og þemað þeirra var „haute couture“. í 2. sæti var hópurinn „Grjónin“ og þemað þeirra var „Asía“. Seinast en ekki síst þá lenti hópurinn „Séra Jón“ í 1. sæti með þemað „Grísk stríðsgyðja á leið sinni heim úr stríðinu“. Þar sem svo mörg lið voru að keppa í bodypaint þetta árið rappaði Sveinn Rúnar 2 frumsamin lög, þ.á.m. vinningslagið úr Rimnaflæði 2008 í litlu hléi sem gert var á keppninni. Meðan dómnefndin var að gera upp hug sinn spilaði stórhljómsveitin Fúsaleg Helgi fyrir áhorfendur. Vinningarnir voru gefnir frá ýmsum íyrirtækjum í bænum og vill NFNV þakka þeim fyritækjum kærlega fyrir stuðninginn. Söngleikurinn Sódóma Reykjavík Frumsýning á leikritinu Sódóma Reykjavik er flmmtudaginn 19. nóv- ember. Miðasala byrjar mánudaginn 16. nóvember. Tekið verður á móti pöntunum í síma 455 8070 og 843 9130 kl. 16:20 til 19:30 alla daga fram að loka- sýningu.

x

Feykir

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Feykir
https://timarit.is/publication/1151

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.