Feykir


Feykir - 12.11.2009, Blaðsíða 6

Feykir - 12.11.2009, Blaðsíða 6
6 Feykir 42/2009 Hafsteinsstaðir er ræktunarbú Skagafjarðar 2009 Spennandi tímar í hrossaræktinni Skapti Steinbjörnsson ásamt Isaki stóöhestsefni á 4. vetur. Fyrir skömmu var haldin uppskeruhátíð hestamanna í Skagafirði og þar veittar viðurkenningar fyrir hin ýmsu afrek hestamennskunnar. Sem ræktunarbú Skagafjarðar 2009 urðu Hafsteinsstaðir fyrir valinu en þar ráða ríkjum Hildur Claessen og Skapti Steinbjörnsson. Þau eiga þrjá syni Steinbjörn Arent, Jdn Hauk og Skapta Ragnar. Hvað sýslar þú í dag? -Það hefur gengið vel, það verður að segja það, segir Skapti þegar hann er spurður hvernig árið hafi verið hjá þeim hjónum. -Þessi viðurkenning eru útreikningar á árangri kynbóta og keppnishrossa á íslandsmótum í hestaíþróttum, heimsmeistaramótin og landsmótin eru tekin inn í líka þegar þau eru, en telur eitthvað misjafnlega. Þetta er aldurstengt þannig að það telur meira þegar yngri hross ná árangri í kynbótadómi. Frá Hafsteinsstöðum hafa komið mörg hross sem náð hafa langt og Skapti verið þekktur knapi í gegn um tíðina og þau hafa mikinn áhuga á hestamennskunni. -Það hefur alltaf verið áhugi til staðar á hrossum. Þetta byggist á því að rækta og ala upp hrossin og þá er spennandi að temja þau líka. Kannski er það eitt af mikilvægustu atriðunum í hrossaræktinni að þekkja hrossin sín frá upphafi, fylgjast með þeim frá því að þau eru folöld og þangað til við byrjum að temja þau. Feykir er okkar fyrsta hross sem verður eitthvað þekkt og nær verulegum árangri og það hafa komið undan honum mörg góð hross sem heldur nafni hans á lofti en hann er vel þekktur utan landsteinanna þar sem fjöldi hrossa undan honum hafa farið út. Svo er hægt að nefna Fána og Huga en þeir eru stóðhestar sem hafa náð langt. Það hafa komið mörg keppnishross undan Feyki og Fána og svo fékk Hugi heiðursverðlaun fyrir afkvæmi á Landsmótinu 2006 en Fáni var hæst dæmda kynbótahrossið á landinu Í995. En það eru sveiflur í þessu. Stundum gengur vel og stundum ekki. Hjá þeim Skapta og Hildi fæðast frá átta og upp í tólf folöld á ári svo það er eitthvað í að líta í tamningunum. Temur þú allt sjálfur? -Við byrjum yfirleitt á þessu sjálf, það hefur nú verið þannig en aðeins höfúm við sent hross í burtu í framhaldsþjálfun en það hefúr nú ekki verið mikið. Það hefúr verið svona eitt og eitt hross, segir Skapti en þau eru ekki ein. -Síðasta vetur var Egill Bj arnason yngri hj á okkur og var út maí þá kom Skapti Ragnar og tók við og var í sumar. Egill kom í október þegar Skapti Ragnar fór aftur suður í Sandhólaferju að temja. Hann er að ná sér í meiri reynslu og svo er stefnt á Hólaskóla eftir því sem ég best veit. Hvernig er verkaskiptingin á búinu? -Hún er einföld, ég ræð segir Hildur og hlær og Skapti tekur undir og segir að þá sé ekki um annað að ræða en að hlýða. -En í alvöru er ekkert skýr verkaskipting þannig. Ég kannski byrja meira með hrossin en svo hjálpumst við með þetta þegar þau eru lengra komin, segir Skapti en bætir við að Hildur sjái alfarið um tölvumálin. -Þau eru nú svo sem ekki mikil en það þarf að svara fyrirspurnum en umsjón með heimasíðunni okkar hafsteinsstadir.is hefur Svava Jensdóttir, við reynum að hafa hana lifandi, segir Hildur. -Sala á hrossum fer töluvert í gegnum heimasíðuna og koma margar fyrirspurnir, svo er mikið hringt og spurt hvort við eigum til hross sem henta viðkomandi. Svo eru einhverjir sem skoða hrossin í Feng þannig að þessi mál verða að vera í lagi. -En það má eiginlega segja að langflestir sem kaupa, koma á staðinn og prófa hrossin en þá hefúr að sjálfsögðu verið einhver forsaga að því ýmist í gegnum tölvu eða síma. Hildur er dugleg að taka myndir og þá sendum við þær til viðkomandi kaupenda. Langmest er spurt eftir keppnishrossum alla vega hér hjá okkur, hross sem geta farið í íþrótta- og gæðingakeppni og skeið, segir Skapti en þau hafa reynt að selja mest tamin hross en verið að opna meira fyrir sölu á ótömdum hrossum þar sem eftirspumin hefúr aukist eftir þeim. -Á hverju ári selst eitthvað svoleiðis og þá aðallega vel ættaðar unghryssur. Reyndar fara alltaf eitt og eitt hesttryppi líka og seldum við veturgamalt hesttryppi undan Rökkva frá Hárlaugsstöðum nú um mánaðarmótin. Tuttugu og fimm hross eru á járnum í hesthúsinu á Hafsteinsstöðum í dag og flest úr heimaræktuninni og nóg að gera. -Núna erum við með fimm hross fyrir aðra en höfum samt lítið gert af því en þá er það aðallega eitthvað okkur tengt. Haustmánuðirnir er sá tími þar sem fólk er að leita sér að hrossum sem það ætlar að vera með eftir áramót. Svo eru einhverjir farnir að leita fýrir sér með hross fyrir Landsmót á næsta ári. Það komu ungar stúlkur hér í gær að leita sér að hesti en þær ætla að reyna að komast á Landsmót, önnur í unglingaflokk en hin í ungmennaflokk þannig að það er metnaður hjá fólki. í miðri kreppu skyldi maður ætla að eftirspurn eftir hestum minnkaði. Hefúr það ekki reynst svo? -Eðlilega áttum við von á að svokölluð kreppa myndi setja stærra strik í reikninginn, en maður finnur engan mun frá því í fyrra, segir Skapti. -Það er minna spurt um þæga fjölskylduhesta, en eftirspurn eftir keppnis- og kynbótahrossum hefúr síst minnkað. Eru þið með einhver hross sem þið stefnið með á Landsmót? -Jú, jú, er maður ekki alltaf að gera sér vonir, segir Skapti og hlær. Það eru hross sem gekk ágætlega með í sumar og við vonum að geti bætt sig á næsta ári. Það gekk vel með Hróarskeldu til dæmis á Kaldármelum, svo Gæfa klárhryssan hennar Hildar sem reyndar veiktist s.l.vor en er komin í lag núna, og svo eru nokkur tryppi sem okkur líst vel á. Ungir graðhestar, Bláskjár undan Dimmblá og Sær frá Bakkakoti og svo tveir folar undan Kjarna frá Þjóðólfshaga, Isak undan Gnoð og Hárekur undan Sýn, svo eru tveir aðrir, Hrólfur og Hamar báðir undan Hróari. Tvær hryssur undan Smára og ein undan Adam og svo erum við með eina hryssu sem við byrjuðum með í fyrra sem er undan Kylju gömlu og Hvin frá Egilsstaðakoti. Þetta eru þau hross sem komin eru af stað og ef allt gengur vel stefnum við á að sýna þau í vor, segja Skapti og Hildur. Þrátt fyrir að nú sé rekið myndarlegt hrossabú á Skapti ásamt Huga 15vetra gömlum ÍHeiðursverðlaunaafhendingunni LM2006. Hafsteinsstaðahópurinn sem vann Ræktunarbúkeppnina á LM2006.

x

Feykir

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Feykir
https://timarit.is/publication/1151

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.