Hagskýrslur um manntöl - 01.01.1949, Blaðsíða 12
10*
Manntalið 1940
átti heima annars staðar í sama kaupstað, og 2 840 eða 71% af þeini,
sem staddir vorn i sýslunum, áttu heima í sömu sýslu, sem þeir voru
staddir í.
Af stöddum og fjarverandi voru miklu fleiri karlar en konur. Að-
eins rúml. þriðjungur var konur, liitt voru allt karlar.
Við manntölin 1870—1910 var tala viðstaddra á hverjum stað lögð
til grundvallar fyrir töflum þeim, sem unnar voru úr manntalinu, en
siðan 1920 hefur verið farið eftir heimilismannfjöldanum á hverjum
stað, eins og á undan 1870. Þeir, sem staddir voru hér á landi við mann-
talið 1940, en áttu heima í útlöndum, koma því hvergi fram i manntals-
töflunum, en aftur á móti eru þeir, sem staddir voru um stundarsakir
utanlands, taldir með.
2. Vöxtur mannfjöldans.
Accroissement de la population.
Skýrslur um mannfjöldann á íslandi ná nærri hálfa þriðju öld aftur
í tímann, því að fyrsta opinbert manntal var tekið hér að tilhlutun Árna
Magnússonar og Páls Vídalíns árið 1703. Næsta almennt manntal fór
fram 1762 og síðan 1769, 1785, 1801 og 1835. Síðan var manntal tekið
5. hvert ár fram til 1860, en þar eftir 10. hvert ár.
Mannfjöldinn við hvert manntal hefur verið talinn sem hér segir:
1703 .. 50 358 .. 66 987
1762 .. 44 845 1. október 1870 .... .. 69 763
15. ágúst 1769 .. 46 201 1. október 1880 .. 72 444
1785 .. 40 623 70 927
1. febrúar 1801 .. 47 240 1. nóvember 1901 .... .. 78 470
2. febrúar 1835 .. 56 035 1. desembcr 1910 . ... .. 85 183
2. nóvcmber 1840 .... .. 57 094 ]. clescmber 1920 .... .. 94 690
2. nóvember 1845 .... .. 58 558 2. descmber 1930 .... .. 108 861
1. febrúar 1850 .. 59 157 2. desember 1940 .... .. 121474
1. október 1855 .. 64 603
!
Á 18. öldinni fækkaði landsmönnum af landfarsóttum og óáran, en
á 19. öldinni var sifelld fjölgun milli manntala, nema á árunum 1880—
90, er landsmönnum fækkaði nokkuð vegna þess, hve Vesturheimsferðir voru þá miklar. Síðan í byrjun 19. aldar hefur árleg fjölgun að meðaltali
verið svo sem hér segir:
1801—1840 . 0.49 % 1901—1910 .. O.oi %
1840—1860 0.81 1910—1920
1860—1880 . 0.40 1920—1930 .. 1.40 —
1880—1890 -i- 0.21 1930—1940
1890—1901 . 0.02
Síðasta áratuginn hefur vöxtur mannfjöldans verið l.i% á ári að
meðaltali. Er það svipað eins og 1910—20, en töluvert minna heldur en