Hagskýrslur um manntöl - 01.01.1949, Blaðsíða 35
Manntalið 1940
33*
lifir aðeins Mo íbúanna á fiskveiðum. Iðnaðurinn er þar langfjölmenn-
asti atvinnuvegurinn, þar sem rúml. þriðjungur íbúanna lifir á honum,
en samgöngur og verzlun eru þar líka tiltölulega fjölmennir atvinnu-
vegir. Til þeirra beggja teljast 29% af íbúunum. Á opinberum þjón-
ustustörfum lifir Yio ibúanna í Reykjavik, eða heldur fleiri en á fisk-
veiðum. Til opinberrar og persónulegrar þjónustu telst tiltölulega fleira
fólk í Reykjavik heldur en annars staðar á landinu, en það er því færra,
sem bæirnir eru minni, og tiltölulega fæst í sveitunum, og líku máli er
að gegna um óstarfandi fólk (eftirlauna- og eignafólk, styrkþega o. fI.).
í töflunum eru, eins og áður segir, innanhúshjú talin sem sérstak-
ur atvinnuflokkur, en þar sem kaup þeirra er tekið af afrakstrinum af
atvinnu húsbænda þeirra, má líka segja, að þau lifi á þeim atvinnuvegi
alveg eins og húsmæður og annað skyldulið, sem vinnur að heimilisstörf-
um. Ef innanhúshjúum er bætt við atvinnuflokk húsbænda þeirra, þá
verður tala allra þeirra, sem lifa á hverjum atvinnuvegi þannig:
Landbúnaður .............................. 38 383
Fiskveiðar ............................... 19 793
Iðnaður .................................. 26 570
Samgöngur ................................ 10 853
Verzlun ................................... 9 380
Persónuleg þjónusta ....................... 2 268
Opinber þjónusta .......................... 7 510
Óstarfandi fólk ........................... 6 495
Ótilgreind atvinna .................... 222
Samtals 121474
31.o %
16.3 —
21.0 —
8.e —
7.7 —
1.9 —
6.2---
5.3---
0.2---
lOO.o %
2. Framfærendur og framfærðir.
Soutiens et personnes soutenues.
Þegar taldir eru allir þeir, sem lifa á einhverri atvinnu, eins og gert
er í 11. yfirliti, þá er aðeins nokkur hluti þeirra starfandi að atvinn-
unni, en allir hinir eru framfærðir af þeirn, sem að atvinnunni starfa.
Hvernig fólk í ýmsum atvinnugreinum skiptist eftir framfærslu, sést i
XIV—XVI töflu (bls. 76—133). Hafa allir verið taldir framfærendur, sent
algerlega sjá fvrir sjálfum sér, að svo miklu leyti sem það var sýnilegt
á manntalsskránum, eða að minnsta kosti ekki hafa að neinu leyti getað
talizt framfærðir af öðruin einstaklingum. Þeir, sem njóta styrks af al-
mannafé eða lifa á eftirlaunum, hafa því verið laldir framfærendur, ef
styrkurinn eða eftirlaunin eru veitt þeim sjálfum, en skvldulið þeirra,
konur og börn, talið framfært af þeim. Framfærðir hafa verið taldir gift-
ar konur, börn og annað skyldulið, sem ekki hefur tilgreint neina atvinnu.
Börn innan 15 ára liafa almennt verið talin sem framfærð, nema sérstök
ástæða hafi verið til að breyta frá því.
í 12. yfirliti (bls. 34*) sést, hvernig mannfjöldanum var skipt eftir
framfærslu við mannlalið 1940 og til samanburðar teknar tölur frá 1930.
e