Hagskýrslur um manntöl - 01.01.1949, Side 14
12*
Manntalið 1940
Yfirlitið sýnir greinilega, hve geysimikill munur er á mannfjölgun-
inni í kaupstöðunum og sýslunum. í kaupstöðunum fjölgar fólkinu óð-
fluga, en í sýslunum stendur það i slað. Hefur fólksfjölgunin í kaup-
stöðunum þó verið tiltölulega minni síðastliðinn áratug (1930—40)
heldur en næsta áratug á undan, 2..-,% að meðaltali á móts við 4.5% á
áratugnum á undan, og á fyrsta áratug aldarinnar var fjölgunin í kaup-
stöðunum ennþá meiri tiltölulega eða um 6.o%.
Við manntalið 1940 voru i kaupstöðunum (8) 58 760 manns, en
46 095 við manntalið 1930, svo að fjölgunin 1930—-40 hefur verið alls
12 665 manns. I sömu kaupstöðum var mannfjölgunin næsta áratug á
undan (1920—30) 16 269 manns. Fólksfjölgunin i kaupstöðunum hefur
síðastliðinn áratug verið tiltölulcga mest á Siglufirði (rúml. 3x/2% að
meðaltali á ári) og litlu minni í Reykjavík og á Akureyri (um 3%). A
ísafirði var fólksfjölgunin rúml. 1%, en í Vestmannaeyjum og Hafnar-
firði var hún mjög lítil (% og %%) og í kaupstöðunum á Austurlandi
(Neskaupstað og Seyðisfirði) varð jafnvel nokkur fólksfækkun.
í sýslunum var mannfjöldinn við manntalið 1940 alls 62 714. Hafði
hann lækkað um 52 manns síðan 1930. Er það ekki mikil fækkun miðað
við næsta áratug á undan, er fólkinu fækkaði í sýslunum um nál. 2 100
manns. í helmingi sýslnanna hefur orðið nokkur mannfækkun, en í
hinum helmingnum hefur fólki fjölgað. Þó hefur fjölgunin alls staðar
verið lítil, nema i Borgarfjarðarsýslu (2% á ári að meðaltali) og i
Strandasýslu (1.2%). En í Borgarfjarðarsýslu hefur öll fjölgunin lent
á Akranesi og í Strandasýslu hafa % hlutar hennar lent á Hólmavík.
Tiltölulega mest mannfækkun hefur á þessu tímabili orðið í Dalasýslu
(1.3% á ári að meðaltali) og i ísafjarðarsýslu (1.2%).
3. Mannfjöldi í bæjum og sveit.
Population urbaine et rurale.
í sveitarstjórnarlögunum frá 1905 var svo ákveðið, að hvert kaup-
lún, sem hefur yfir 300 ibúa, hafi rétt til að vera hreppur út af fyrir
sig, og hafa ýmis kauptún nolað sér þá lieimild og gerzt sérstök sveit-
arfélög. Þetta er ástæðan lil þess, að lcomizt hefur á sú venja hér á landi
að telja kauptún með yfir 300 ibúa til bæja, en þá, sem minni eru, til
sveita. Við tvö síðustu manntöl hefur mannfjöldinn samkvæmt því
skipzt þannig milli bæja og sveita:
Reykjavik Aðrir kaupstaðir Kauptún (með vfir 300 ibúa) Beinnr 1930 28 304 17 791 13 289 tölur 1940 38196 20 564 15 730 Hlutfallstölur 1930 1940 26.o % 31.4 % 16.3 16.9 — 12.2— 13.o —
Bæir samtals 59 384 49 477 74 490 46 984 54.5 % 45.5 — 61.3 % 38.7 —
Allt landið 108 861 121 474 lOO.o % lOO.o %