Hagskýrslur um manntöl - 01.01.1949, Blaðsíða 25
Mnnntalið 1940
23*
Spurningin um upprunann er ekki eins í skýrslum Kanada og Banda-
ríkjanna. í Kanada er spurt um uppruna allra, hversu langt sem um er
liðið siðan forfeður þeirra fluttust til Kanada, og er þá eingöngu miðað
við karllegginn. Allir þeir, sem í karllegg eru komnir af íslenzkum inn-
flytjendum, eru taldir af islenzkum uppruna. En í Bandaríkjunum eru
aðeins taldir af erlendum uppruna þeir, sem sjálfir eru fæddir erlendis
eða annaðhvort foreldranna er fætt erlendis. Með íslenzkt móðurmál eru
þeir taldir, sem eru frá heimilum, þar sem islenzka er töluð, og skilja
hana, enda þótt annað mál sé þeim tamara. í skýrslum Bandaríkjanna
1940 er íslenzka ekki tilfærð sérstaklega, heldur slengt saman við önnur
fátíð mál. Skýrslur þessar sýna, að jafnframt því sem þeim fjölgar í
Kanada, sem taldir eru af íslenzkum uppruna, fækkar þeim, sem taldir
eru með íslenzkt móðurmál.
Fæðingarstaðatöflurnar sýna flutningana innanlands, þvi að þær
sýna, hvaðan ibúarnir á hverjum stað eru upprunnir og hver niðurstaðan
hefur orðið af flutningum lieils mannsaldurs. Þá, sem engan fæðingar-
stað hafa tilgreint, verður að láta liggja milli hluta, enda eru þeir ekki
svo margir, að það valdi neinni verulegri skekkju. Þeir 119 866 manns,
sem töldust fæddir innanlands, skiptust þannig eftir fæðingarstað og
dvalarstað.
Fœddir
Dvöldu
í Reykjavik 19 770 16.3 % 37 206 31.i %
- öðrum kaupstöðum 13 760 11.5 — 20 278 16.9 —
- kauptúnum með yfir 300 íbúa 12 890 10.7 15 629 13.o —
- sveitum 73 446 61.3 46 753 39.o —
Samtals 119 866 100.o % 119 866 lOO.o %
Þessar tölur bera skýran vott um mannflutningana úr sveitunum til
kauptúnanna. I sveitum voru fæddir rúml. % hlutar landsmanna, en
tæpl. % hlutar þeirra áttu þar heima. Eftirfarandi yfirlit sýnir, hve mikið
hefur unnizt og misstst við flutningana innanlands í samanburði við tölu
fæddra i sveitunum og hverjum flokki bæjanna.
Aðfluttir umfram
burtflutta Af fœddum
Reykjavik ............................... 17 436 88.2 %
Aðrir kaupstaðir ......................... 6 518 47.4 —
Kauptún með yfir 300 ibúa ................ 2 739 21.s —
Sveitir .............................. -í-26 693 -t-36.3—
Fíutningarnir úr sveitunum til bæjanna eru tiltölulega meiri til kaup-
staðanna, og einkum Reykjavíkur, heldur en til verzlunarstaðanna, og
þeir eru meiri meðal kvenna heldur en karla. Af körlum fæddum í sveit-
um voru 39% komnir til bæjanna, en af konum fæddum í sveitum voru