Hagskýrslur um manntöl - 01.01.1949, Blaðsíða 51
Manntalið 1940
49'
karlar eða 15.4% af öllum körlum, sem voru framfærendur, og 1 181 kon-
ur eða 6.9% af öllurn kvenframfærendum.
Af öllum framfærendum í bæjum og sveit töldust menn með auka-
atvinnu svo sem hér segir:
í Reykjavik ......... 4.5 % í verzlunarstöðum ........ 23.i %
- kaupstöðum ........ ll.s— - sveitum ........... 17.i —
Tiltölulega langmest er um það 1 verzlunarstöðunum, að menn hafi
tilgreint aukaatvinnu, en langminnst í Reykjavík.
Eftirfarandi tölur sýna, hve mikill hluti framfærenda hverrar at-
vinnustéltar í hverjum atvinnuflokki hafði jafnframt aðra atvinnu til
styrktar.
Landbúnaður
Fiskveiðar
Iðnaður ....
Samgöngur .
14.7 % Verzlun ................... 10.7 %
15.6— Persónuleg þjónusta ....... 6.8 —
13.o— Opinber kjónusta .......... 21.o —
ll.o— Óstarfandi fólk ........... 4.8 —
Af þessu sést, að það er tiltölulega tíðast, að þeir, sem eru í opin-
berri þjónustu, hafi aðra atvinnu að auki.
Rúmlega % af öllum, sem tilgreindu fleiri en eina atvinnu, höfðu
landbúnað að aðalatvinnu, % iðnað og tæpl. % fiskveiðar. Landbúnaður
var líka oftast tilfærður sem aukaatvinna (af rúml. %), þar næst iðn-
aður (líka af rúml. %) og fiskveiðar (af rúml. %).
Giftar konur eru sjálfar aðeins taldar framfærendur, ef sýnilegt er,
að maðurinn er óstarfhæfur eða hefur enga atvinnu, t. d. vegna veik-
inda, eða hjónin búa ekki saman eða konan gegnir ekki húsmóðurstörf-
um. Giftar konur, sem eru húsmæður, eru yfirleitt taldar framfærðar
af atvinnu mannsins. Þær hafa þó stundum sjálfstæða atvinnu jafnhliða
húsmóðurstörfunum, og átti að geta um það í manntalsskránum. í töflu
XXII (bls. 170—171) er yfirlit um þessi störf. Alls hafa það verið 1 131
giftar konur, eða 6.0% af öllum giftum konum, sem taldar eru hafa haft
slík atvinnustörf með höndum. Hjá 244 er þetta starf talið aðalstarf, og
konan er talin framfærandi, en hjá 887 er það talið aukastarf jafnhliða
húsmóðurstarfinu. í töflu XXII er konunum skipt bæði eftir sínu eigin
starfi og eftir atvinnu mannsins. Mest er um slík aukastörf i kaupstöð-
uin og verzlunarstöðum, einkum við fiskverkun. Allmargar giftar konur
hafa opinber störf að aukaatvinnu, og eru það einkum Ijósmæður og
kennarar.
g