Hagskýrslur um manntöl - 01.01.1949, Blaðsíða 52
50'
ManntallB 1940
G. Trúarbrögð.
Confessions.
Við manntalið 1940 skiptust menn þannig eftir kirkjufélögum.
Þjóðkirkja Önnur trúfélög .. Utan trúfélaga ... Karlar 58 818 391 1 116 Konur 59 797 611 741 Samtals 118 615 1002 1857 Af þúsundi 976.5 8.2 15.3
Samtals 60 325 61149 121 474 1000.5
1940 voru 3 frikirkjusöfnuðir á landinu, einn i Revkjavík og grennd,
annar í Hafnarfirði og Garðahreppi og hinn þriðji í Suður-Múlasýslu.
Þar sem fríkirkjuna greinir ekkert á við þjóðkirkjuna í trúarefnum,
eru þessir söfnuðir taldir með þjóðkirkjunni. Utanþjóðkirkjumenn
töldust því aðeins 2 859, eða 23.5 af þúsundi hverju. Þetta er þó miklu
hærri tala en við undanfarandi manntöl. Við manntalið 1930 töldust þeir
aðeins 1 503 eða 13.8 af þúsundi, 1920 463 eða 4.9 af þúsundi, 1910 288
eða 3.4 af þúsundi og 1901 159 eða 2.o af þúsundi. Af utanþjóðkirkjumönn-
um við manntalið 1940 voru karlar heldur fleiri en konur (1 507 karlar,
en 1 352 konur), en þó var sá munur á, að næstum helmingur kvenn-
anna taldist til annarra trúfélaga, en nál. % karlanna voru utan allra
trúfélaga. Þeir, sem töldust til annarra trúfélaga, skiptust þannig á ein-
trúfélög. 1940 1930
Karlar Konur Alls Alls
ABventistar 176 323 499 429
HvítasunnusöfnuSur 33 43 76 7
Sjónarhæðarsöfnuður1) 16 39 56 70
Kristnir bræður 1 2 3 12
Baptistar - 1 1 5
Enska kirkjan 7 2 9
Independent Assembly of God 6 2 8 , 7
Kvekarar 2 2 4
Aðrir mómælendur 1 2 3
Mótmælendur alls 242 416 658 530
Kaþólskir 143 192 335 191
Gyðingar 6 3 9 . “
Samtals 391 611 1002 721
Af þeim, sem töldust til þessara trúfélaga 1940, voru 520, eða rúm-
lega helmingur, í Reykjavík, en af þeim, sem töldust utan trúfélaga, voru
1 258, eða rúmlega %, í Reykjavík.
Nánara yfirlit um utanþjóðkirkjumenn er í töflu XXV og XXVI
(bls. 174—175), og er þar sýnt, hvernig þeir skiptast eftir heimilisfangi,
aldri, hjúskaparstétt og atvinnu.
1) Þ. e. söfnuður A. Gook’s á Akureyri.