Hagskýrslur um manntöl - 01.01.1949, Blaðsíða 40
38'
Manntalið 1940
Forstöðu- Skrifstofu- Afgreiðslu- Annað
menn fólk fólk stnrfsfólk Samtals
Landbúnaður - - 169 169
Fiskveiðar 22 60 - 926 1 008
Iðnaður 132 257 28 107 524
Samgöngur 34 245 5 314 598
Verzlun 191 790 1 346 201 2 528
Persónuleg þjónusta 10 19 22 1085 1 136
Opinber þjónusta ... 67 430 1 1 671 2 169
Samtals 456 1 801 1 402 4 473 8132
Af starfsfólkinu eru tæpl. 6% forstöðumenn, rúmlega % (22%) skrif-
stofufólk, rúml. Ve (17%) afgreiðslufólk og rúml. helmingurinn (51%)
annað starfsfólk. Skrifstofufólk og afgreiðslufólk er langflest við verzlun,
en allmargt skrifstofufólk er einnig við opinber þjónustustörf. Við fisk-
veiðar og samgöngur eru skipstjórar og aðrir yfirmenn á skipum, svo og
bátafonnenn, taldir í dálkinum „annað starfsfólk“. Undir þann lið falla
i landbúnaði ráðunautar o. fl., í iðnaði ýmiskonar sérfræðingar, við
persónuleg þjónustustörf ráðskonur og við opinber þjónustustörf ýmis-
konar opinberir starfsmenn.
Til verkafólks töldust, að meðtöldum heimilishjúum, 33 811 fram-
færendur, og skiptust þeir þannig á atvinnuvegina.
Verkstjórar Yerkafólk Samtnls
Landbúnaður 5 9 871 9 876
Fiskveiðar 22 5 528 5 550
Iðnaður 243 9 202 9 445
Samgöngur 18 3 248 3 266
Verzlun 20 740 760
Persónuleg þjónusta . 2 4 298 4 300
Opinber þjónusta . . . 2 612 614
Samals 312 33 499 33 811
Töluvert meir en helmingur verkafólksins, eða um 57%, skiptist
á landbúnað og iðnað, og er hlutur landbúnaðarins beldur drýgri, en þar
með teljast börn bænda, er vinna heima að landbúnaði, um % kemur á
fiskveiðar, % á persónuleg þjónustustörf (aðallega vinnukonur) og 5/ío
á samgöngustörf (aðallega hafnarverkamenn).
í töflu XIV (bls. 70—75) er sýnd skipting þjóðarinnar eftir vinnu-
stétt í bæjum og sveit og í töflu XVI (bls. 128—132) i hverjum kaupstað
og liverri sýslu.
4. Atvinnugreiningin.
Groupement professionnel.
Landbúnaður er mesti atvinnuvegur landsmanna. 1940 taldist til
hans 37 123 manns eða tæplega 30%% af landsbúum, en 1930 taldist til