Hagskýrslur um kosningar - 01.01.1924, Page 27
Alþingiskosningar 1919—1923
25
einhverju leyti verið breytt á 492 atkvæðaseðlum Framsóknarflokksins
(15.4 %), á 434 atkvæðaseðlum kvennalistans (16.2 %) og á 396 at-
kvæðaseðlum Heimastjórnarmanna (12.1 %), en að öðru leyti var röðin
á listunum óbreytt og breytingar þær sem gerðar voru ekki nægilega
miklar til þess að geta í neinu haggað henni. Hlutu því kosningu sem
landsþingmenn efstu mennirnir á þessum listum, en þeir næstefstu sem
varamenn. í töflu VIII (bls. 49) er skýrt frá, hverjir hlutu kosningu.
Enginn af hinum kjörnu þingmönnum og varamönnum höfðu setið
á þingi næst á undan kosningunni, en einn af þingmönnunum og einn af
varamönnunum (Jón Magnússon og Sigurður Sigurðsson) höfðu þó setið
á þingi áður. Allir þingmennirnir og varamennirnir voru búsettir í Reykja-
vík. Meðaldur þeirra var 49.2 ár eða heldur hærri heldur en kjördæma-
kosnu þingmannanna. Einn af varamönnunum, Hallgrímur Kristinsson,
andaðist árið eftir kosninguna.