Hagskýrslur um kosningar - 01.01.1934, Page 9
Alþingiskosningar o. fl. 1933
7
t*ar sem atlíuæöa- Á öllu Þar sem atkvæöa- Á öllu
greiðsla fór fram landinu greiösla fór fram landinu
1908 .... 75.7 o/o 72 4 o/o 1919 . . . 58.7 % 45.4 o/o
1911 ... 78.4 — 78.4 — 1923 ... 756 — 70.9 —
1914 .. . 70.o — 55.8 - 1927 .. . 71.5 - 71.5 —
1916 . . . . 52.6 — 49.2 — 1931 .. . 78.2 — 78.2 —
1918 .. . . 43.8 — 43.8 — 1933 . . . 71.2 — 70.1 —
Árið 1908 var fyrst farið að kjósa skriflega í hverjum hreppi, en
áður var kosið munnlega á einum stað í hverju kjördæmi. Var þá auð-
vitað erfiðara að sækja kjörfund og kosningahluttaka því fremur lítil. Þó
komst hún upp í um og yfir helming kjósenda við síðustu munnlegu
kosningarnar um og eftir aldamótin. En þegar farið er að kjósa í hverj-
um hreppi vex hluttakan mikið og mest var hún 78.4 o/o við kosningarn-
ar 1911. Síðan varð hún minni, einkum 1916, er kvenfólkið bættist við
í kjósendatöluna, og 1918, er atkvæðagreiðsla fór fram um sambands-
lögin. Þá varð hluttakan aðeins 43.8 o/o af kjósendatölunni og stafaði það
af því, hve mótstaðan gegn þeim var lítil. Síðan 1923 hefur hluttakan
aftur verið miklu meiri. Með lögum 1923 var leyft að kjósa bréflega
heima hjá sér vegna elli og vanheilsu, en sú heimild var feld burt árið
eftir. Aftur á móti var með lögum 1925 leyft að hafa fleiri en einn
kjörstað í hreppi og hefir sú heimild verið notuð á ýmsum stöðum svo
sem sjá má á töflu I (bls. 20). Við kosningarnar 1933 var kosninga-
hluttakan töluvert minni heldur en 1931, eða 71.2 o/o á móts við 78.2 o/o,
en þá var hún líka næstum jafnmikil eins og hún hefur mest verið
áður (1911).
Þegar litið er sérstaklega á hluttöku karla og kvenna í kosning-
unum, þá sést, að hluttaka kvenna er minni en hluttaka karla. Við
kosningarnar 1933 greiddu atkvæði 80.4 o/o af karlkjósendum í þeim
kjördæmum, þar sem kosning fór fram, en ekki nema 63.2 o/o af kven-
kjósendum. Við kosningarnar 1931 voru bæði þessi hlutföll hærri (84.7
og 72.3), en afturförin er töluvert meiri meðal kvenna en karla.
I töflu I (bls. 23) sést, hve margir af kjósendum hvers kjördæmis
hafa greitt atkvæði við kosningarnar 1933. Hve mikil kosningahluttakan
var hlutfallslega í einstökum kjördæmum sést á 1. yfirlitstöflu (bls. 8).
Mest var kosningahluttakan í Hafnarfirði (92.9 o/o), en minst var hún í
Eyjafjarðarsýslu (51.5 o/o). í Hafnarfirði var kosningahluttakan mest bæði
meðal karla og kvenna (97.i °/o og 89.3 °/o), en minst í Eyjafjarðarsýslu
(64.6 o/o og 38.1 °/o). í einu kjördæmi aðeins var hluttaka karla í kosn-
ingunum minni en 70°/o, en í 16 kjördæmum var hluttaka kvenna þar
fyrir neðan.