Hagskýrslur um kosningar - 01.01.1934, Síða 12
10
Alþingiskosningar o. fl. 1933
3. Atkvaeðagreiðsla utanhreppsmanna.
Votants hors de leur district.
Samkvæmt kosningalögunum má kjörstjórn leyfa manni, sem ekki
stendur á kjörskránni, að greiða atkvæði, ef hann sannar það með vott-
orði sýslumanns, að hann standi á annari kjörskrá í kjördæminu og að
hann hafi afsalað sér þar kosningarrétti. Við kosningarnar 1933 greiddu
356 menn atkvæði í öðrum hreppi heldur en þar sem þeir stóðu á kjör-
skrá, eða l.oO/o af öllum þeim, sem atkvæði greiddu við kosningarnar.
Við undanfarnar kosningar hefur þetta hlutfall verið:
1916 1.0 % 1927 1.4 %
1919 1931
1923 l.i — 1933 1.0 —
Af þeim, sem notuðu sér þennan rétt árið 1933, voru 155 konur
eða rúml. 44 °/o. í töflu I (bls. 20) er sýnt, hve margir kusu á þennan
hátt í hverju kjördæmi á landinu, og í 1. yfirliti (bls. 8) sést, hve margir
það hafa verið í samanburði við þá, sem atkvæði greiddu í hverju kjör-
dæmi. Tiltölulega flestir hafa það verið í Vestur-Skaftafellssýslu (4.6 o/o
af öllum, sem atkvæði greiddu).
4. Bréfleg atkvæði.
Votes per lettre.
Sjómenn og aðrir, sem staddir eru utan þess hrepps eða kaup-
staðar, þar sem þeir standa á kjörskrá, þá er kosning fer fram, og ekki
neyta hins almenna réttar til þess að greiða atkvæði á öðrum kjörstað
í sama kjördæmi, mega greiða atkvæði bréflega, þannig að þeir sendi
hreppstjóra eða bæjarfógeta á þeim stað, þar sem þeir standa á kjörskrá,
fyrir kjörfund atkvæðaseðil í bréfi. Við kosningarnar vorið 1933 neyttu
3429 menn þess réttar að kjósa bréflega, eða 9.3 °/o af öllum þeim, sem
atkvæði greiddu. Við undanfarandi kosningar hefur þetta hlulfall verið
1916 1.9 % 1927
1919 2.6 — 1931 7.5 —
1923 13.0 — 1933 9.3 —
Bréfleg atkvæðagreiðsla var langmest notuð árið 1923, því að þá
var þeim leyft að kjósa bréflega, sem ekki voru ferðafærir á kjörstað
sakir elli eða vanheilsu, en með því að menn voru hræddir um, að þessar
heimakosningar hefðu verið misnotaðar, var þessi heimild aftur úr lög-
um numin árið 1924. Langmestur hluti bréflegu atkvæðanna 1923 staf-