Hagskýrslur um kosningar - 01.01.1934, Blaðsíða 13

Hagskýrslur um kosningar - 01.01.1934, Blaðsíða 13
Alþingiskosningar o. fl. 1933 11 aði af heimakosningunum. Bréfleg atkvæði vegna fjarveru voru þá í hæsta lagi tæpl. 4 °/o. Bréfleg atkvæðagreiðsla af þeim ástæðum hefur farið sívaxandi, einkum í kaupstöðunum, enda er það nú orðin venja þar, að þeir, sem búast við að verða fjarverandi á kjördegi, kjósa bréf- lega áður en þeir fara burtu. I töflu I (bls. 23) er sýnt hve mörg bréfleg atkvæði voru greidd í hverju kjördæmi við kosningarnar 1933 og í töflu III (bls. 25—31) hvernig þau skiftast niður á hreppana. En í 1. yfirliti (bls. 8) er samanburður á því, hve mörg koma á hvert 100 atkvæða í hverju kjördæmi. Lang- hæstur er Isafjarðarkaupstaður. Þar hefur nál. J/5 hluti greiddra atkvæða (19.0 o/o) verið bréfleg atkvæði. Þar næst er Reykjavík (16.6 °/o). Akur- eyri (15.6 °/o), Hafnarfjörður (14.2 o/o) og Vestmannaeyjar (12.5 °/o). Aðeins 1262 eða 37 o/o af bréflegu atkvæðunum voru frá konum, en 2167 frá körlum. Af hverju 100 karla og kvenna, sem greitt hafa atkvæði, hafa kosið bréflega Karlar Konur Karlar Konur 1916 2.2 o/o 1.0 % 1927 .. . . . . 8.7 % 3.7 o/o 1919 3.0 — 1.8 — 1931 ... . . . 9.4 — 5.5 — 1923 8.7 — 17.6 — 1933 ... . .. 10.9 — 7.4 — 5. Ógitd atkvæði. Bulletins nuls. Síðan alþingiskosningar urðu skriflegar hafa ógild atkvæði við kjördæmakosningar orðið 1908 333 eða 3.9 % 1923 ... .. . 784 eöa 2.5 »/o 1911 438 — 4.3 — 1927 . . . . .. 919 — 2.8 — 1914 135 — 1.8 — 1931 ... ... 1064 — 2.7 — 1916 680 — 4.8 — 1933 .. . ... 1091 — 3.0 — 1919 429 — 3.0 — Nokkrir kjósendur hafa skilað auðum seðli og því sjáifir ætlast til að atkvæði sitt yrði ónýtt. Við kosningarnar 1933 voru 266 atkvæða- seðlar- auðir eða 24.4 °/o af þeim seðlum, sem ógildir voru metnir. Allur þorri ógildu seðlanna er aftur á móti svo til kominn, að kjósendunum hefur mistekist að gera atkvæðaseðil sinn svo úr garði sem kosninga- Iögin mæla fyrir. Hve mörg atkvæði urðu ógild í hverju kjördæmi við kosningarnar 1933 sést á töflu IV (bls. 32—38), en á 1. yfirliti (bls. 8) er sýnt, hve mikl- um hluta þau námu af öllum greiddum atkvæðum í kjördæminu. Tiltölu- lega flest ógild atkvæði voru í Eyjafjarðarsýslu (6.7 °/o), en tiltölulega fæst í Borgarfjarðarsýslu (l.oo/o).

x

Hagskýrslur um kosningar

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Hagskýrslur um kosningar
https://timarit.is/publication/1173

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.