Hagskýrslur um kosningar - 01.01.1934, Síða 14
12
Alþingiskosningar o. (1. 1933
6. Frambjóðendur og þingmenn.
Candidats et représentants élus.
Við kosningarnar 1933 voru alls í kjöri 113 frambjóðendur. Eru
það fleiri frambjóðendur en nokkru sinni áður. I einu kjördæmi var að-
eins einn frambjóðandi. I 3 kjördæmum var frambjóðendatala Ivöföld á
við þingmannssæli, í 1 kjördæmi var hún 2V2-föld, í 14 kjördæmum
þreföld, í 1 kjördæmi 3V2-föld og í 7 kjördæmum fjórföld.
Af 36 kjördæmaþingmönnum, sem sátu á alþingi veturinn 1933,
buðu 32 sig fram aflur í sama kjördæmi, og voru 26 þeirra endur-
kosnir, 1 bauð sig fram í öðru kjördæmi og náði kosningu, en aðeins 3
drógu sig alveg í hlé. Við kosningarnar 1933 voru kosnir 9 nýir kjör-
dæmaþingmenn. Af þeim höfðu 5 aldrei setið á þingi fyr, einn hafði
verið landkjörinn þingmaður á næsta þingi á undan (Pétur Magnússon),
en 3 höfðu verið þingmenn áður, þótt ekki hefðu þeir átt sæti á næsta
þingi á undan kosningunni (Eiríkur Einarsson, Gísli Sveinsson og Jón
Sigurðsson).
Eftirfarandi yfirlit sýnir, hve margir af frambjóðendunum við 5 síð-
ustu kosningarnar bjuggu í kjördæminu, sem þeir buðu sig fram í, og
hve margir utan þess: Frambjóöendur alls Kosnir
1919 1923 1927 1931 1933 1919 1923 1927 1931 1933
Innanhéraös 53 51 57 61 60 27 24 24 26 22
Utanhéraðs 15 26 34 43 53 7 12 12 10 14
Samtals 68 77 91 104 113 34 36 36 36 36
Við kosningarnar 1933 hafa tiltölulega fleiri utanhéraðsmenn boðið
sig fram heldur en áður. Meiri hluti þeirra, 38 af 53, var búsettur í
Reykjavík, og náðu 11 þeirra kosningu.
Eftir atvinnu skiftust frambjóðendur og þingmenn þannig:
Frambjóöendur Þingmenn
1919 1923 1927 1931 1933 1919 1923 1927 1931 1933
Bændur 28 30 29 19 22 12 14 16 n 10
Sjávarútvegsmenn 2 3 4 6 5 )) 3 4 3 4
Iðnaðarmenn 2 1 3 3 2 )) 1 )) )) »
Verslunar- og bankamenn 9 11 9 15 17 8 5 7 6 9
Verkamenn og verkltfðsfél. starfsmenn )) )> 3 6 18 » )) 1 )) ))
Blaðamenn og embættisl. mentamenn . 5 10 8 20 14 3 5 2 2 2
Embættis- og sýslunarmenn 22 22 35 35 35 11 8 6 14 11
Samtals 68 77 91 104 113 34 36 36 36 36
Bændur og embættismenn eru fjölmennastir bæði meðal frambjóð-
enda og þingmanna. Við kosningarnar 1933 fjölgaði verkamönnum meðal
frambjóðenda, en engir þeirra náðu kosningu.