Hagskýrslur um kosningar - 01.01.1934, Page 15
Alþingiskosningar o. fl. 1933
13
í töflu IV (bls. 32—38) er getið um fæðingarár og dag hvers fram-
bjóðanda við kosningarnar 1933. Eftir aldri skiftust þeir þannig:
Fram- Fram-
bjóöendur Kosnir bjóðendur Kosnir
25- -29 ára ... . . .. 13 2 50- —59 ára . . . . 18 9
30- -39 — .... ... 35 4 60 -69 - . ... 6 2
40- -49 — .... ... 41 19 Samtals ... 113 36
Elstur frambjóðendanna var Þorleifur jónsson, 68 ára, og náði hann
kosningu, en yngstur var Magnús Magnússon, 25 ára, og náði hann ekki
kosningu. Vngstur þeirra, sem kosnir voru, var Eysteinn Jónsson, 26 ára.
Meðalaldur allra frambjóðenda við kosningarnar var 44.7 ár, en meðal-
aldur þeirra, sem kosnir voru, nokkru hærri, 46.4 ár.
Aftan við nöfn frambjóðendanna í töflu V (bls. 39) eru bókstafir,
er tákna til hvaða flokks þeir töldust, þegar kosningin fór fram. Eftir-
farandi yfirlit sýnir, í hve mörgum kjördæmum hver flokkur hafði fram-
bjóðendur við kosningarnar 1933 og hve marga, og hversu margir af
þeim náðu kosningu.
í hve mörgum Tala
kjördæmum frambjóö-
frambjóöendur enda Kosnir
Sjálfstæðisflokluir (S) . . 26 35 17
Framsóknarflokkur (F) 19 25 14
Alþýðuflokkur (A) 18 24 4
Kommúnistaflokkur (K) 17 25 ))
Utan flokka 3 4 1
Samtals 27 113 36
Sjálfstæðisflokkurinn hafði frambjóðendur í öllum kjördæmum, nema
Strandasýslu. Framsóknarflokkurinn hafði ekki frambjóðendur í kaup-
stöðunum, en í öllum öðrum kjördæmum, nema Norður-ísafjarðarsýslu
og Norður-Þingeyjarsýslu. En í Norður-Þingeyjarsýslu var frambjóðandi
utan flokka studdur af Framsóknarflokknum, enda hafði hann verið
þingmaður Framsóknarflokksins á næsta þingi á undan og var einnig í
þingflokknum á næsta þingi eftir kosninguna.
7. Urslit atkvæðagreiðslunnar.
Répartition des bulletins.
3. yfirlit (bls. 14) sýnir úrslit kosninganna í hverju kjördæmi,
hvernig atkvæðin skiftust á flokkana og hve margir atkvæðaseðlar voru
auðir eða ógildir. Tala greiddra atkvæða í hverju kjördæmi, sem tilfærð
er í þessari töflu, kemur sumstaðar ekki nákvæmlega heim við tölurnar
í töflu I (bls. 23), og stafar það ósamræmi af því, að sú tafla er tekin