Hagskýrslur um kosningar - 01.01.1934, Qupperneq 21
Alþingiskosningar o. fl. 1933
19
4. Atkvæðagreiðsla í öðrum hreppi.
Votants hors de leur district.
Við bannatkvæðagreiðsluna var fylgt sömu reglu eins og við lands-
kosningar um atkvæðagreiðslu manna á öðrum kjörstöðum, þannig að
menn gátu greitt atkvæði á hvaða kjörstað sem var, ekki að eins í sinni
sýslu, heldur hvar sem var á landinu, ef menn sýndu vottorð um, hvar
þeir stæðu á kjörskrá og að þeir hefðu afsalað sér atkvæðisrétti þar.
Við bannatkvæðagreiðsluna greiddu 229 menn atkvæði á kjörstað utan
þess hrepps eða kaupstaðar, þar sem þeir stóðu á kjörskrá, og er það
0.8 o/o af öllum þeim, sem atkvæði greiddu á landinu. Er það töluvert
lægra hlutfall heldur en tíðkast hefur við landskosningarnar. Við síðustu
landskosningar var hlutfallið 2.3 o/o. Það virðist því svo, sem þeir sem
staddir hafa verið utan heimilis síns, hafi gert sér minna far um að missa
ekki af þessari atkvæðagreiðslu heldur en af landskosningunum.
Af þeim, sem notuðu sér þennan rétt til þess að greiða atkvæði á
öðrum kjörstað, voru 63 konur eða 27.5 °/o af þeim, sem þannig greiddu
atkvæði. Hafa því tiltölulega miklu færri konur en karlar notað sér
þennan rétt, 0.6 °/o af konum er atkvæði greiddu, en l.oO/o af körlum.
í töflu II (bls. 24) er sýnt, hve margir greiddu atkvæði á þennan hátt
úr hverju kjördæmi og í hverju kjördæmi á landinu, og í 4. yfirliti (bls.
17) er sýnt, hve margir það voru í hlutfalii við þá, sem atkvæði greiddu
úr hverju kjördæmi.
5. Ðréfleg atkvæði.
Votes par lettre.
Við bannatkvæðagreiðsluna voru 743 bréfleg atkvæði eða 2.6 o/o af
öllum greiddum atkvæðum. Er það svipað hlutfall eins og við síðustu
landskosningar. I töflu II (bls. 24) er sýnt, hve mörg bréfleg atkvæði
voru greidd í hverju kjördæmi og á 4. yfirliti (bls. 17) sést, hve mörg
þau voru hluffallslega við greidd atkvæði. Langflest voru þau filfölulega
í Rangárvallasýslu, þar sem meir en J/io af öllum greiddum afkvæðum
voru bréfleg atkvæði. í töflu III (bls. 25—31) sést, hve mörg atkvæði
hafa verið greidd bréflega í hverjum hreppi á landinu.
6. Ógild atkvæði.
Bulletins nuls.
Ógild atkvæði urðu alls 672 eða 2.4 °/o af öllum greiddum atkvæð-
um. Er það svipað hlutfall, sem verið héfur við kjördæmakosningar síðari
árin, en töluvert hærra heldur en við landskosningar. Tæpur fjórði hluti