Hagskýrslur um kosningar - 01.01.1954, Page 10

Hagskýrslur um kosningar - 01.01.1954, Page 10
8 Alþingiskosmngar~1953 í töflu I (bls. 16) sést, live margir af kjósendum hvers kjördæmis hafa greitt atkvæði við kosningarnar 1953. Hve mikil kosningahluttakan var hlutfallslega í einstökum kjördæmum, sést í 1. yfirlitstöflu (bls. 6). Mest var kosningahluttakan á ísafirði (96,8 %), en minnst var hún í Norður-Þingeyjarsýslu (81,6%). Á Siglu- firði var kosningahluttaka karla hæst (98,7%), en kvenna á Isafirði (95,7 %). Kosn- ingahluttaka karla var minnst í Suður-Þingeyjarsýslu (87,8%), en kvenna í Norður- Þingeyjarsýslu (73,1%). Hluttaka kvenna var minni £ 17 kjördæmum (af 28) heldur en hluttaka karla, þar sem hún var minnst, en í 1 kjördæmi, Seyðisfirði, var hluttaka kvenna meiri en karla. í töflu II (bls. 17—20) er sýnt, hve margir kjósendur greiddu atkvæði í liverjum hreppi á landinu 1953. Er þar hver kjósandi talinn í þeim hreppi, þar sem hann stóð á kjörskrá, en ekki þar, sem hann greiddi atkvæði, ef liann liefur greitt atkvæði utanhrepps. Með því að bera tölu greiddra atkvæða saman við kjósendatöluna í sömu töflu fæst kosningahluttakan í liverjum hreppi. Hvernig hrepparnir innan hvers kjördæmis og á landinu í heild sinni, að meðtöldum kaupstöðimum, skiptust eftir kosningahluttöku, sést í 2. yfirlitstöflu (bls. 7). 53% af hreppum og kaup- stöðum voru með hluttöku meiri en 90%. í þessurn 3 hreppum var kosningalilut- takan meiri en 98%: Hvammslireppur í Dalasýslu ................................ 100,0% Alftavershreppur í Vestur-Skaftafellssýslu ................ 100,0 „ Haukadalslireppur i Dalasýslu ............................. 98,2 „ í kosningunum 1949 voru 7 hreppar með kosningahluttöku 98% og þar yfir, en ekki nema 3 hreppar 1953. Hins vegar var kosningahluttaka 90—100% i 117 hreppum og 5 kaupstöðum 1953, en ekki nema í 102 hreppum og 4 kaupstöðum 1949. í 6 hreppum var hluttakan minni en 75%: í Múlahreppi í Barðastrandarsýslu (72,4%), í Svalbarðsstrandarhreppi (73,9%) og Grýtubakkahreppi (71,4%) í Suður- Þingeyjarsýslu, í Þórshafnarhreppi (73,1%) og Sauðaneshreppi (73,2%) í Norður- Þingeyjarsýslu, og í Loðmundarfjarðarhreppi (73,3%) í Norður-Múlasýslu. Heimildin til þess að hafa fleiri en einn kjörstað í hreppi eða kaupstað hefur verið notuð á ýmsum stöðum, svo sem sjá má í töflu II (bls. 17). í Reykjavík voru 48 kjördeildir, en annars staðar voru þær flestar 6, á Akureyri. Eftir tölu kjördeilda skiptust hreppar og kaupstaðir þannig: 1 kjördeild ................... 150 2 kjördeildir .................. 45 3 20 48 ..................... 1 228 3. Atkvæðagreiðsla utanhreppsmanna. Voters Casting Votes outside their Communes. Samkvæmt kosningalögunum má kjörstjórn leyfa manni, sem ekki stendur á kjörskránni, að greiða atkvæði, ef hann sannar það með vottorði sýslumanns, að liann 6tandi á annarri kjörskrá í kjördæminu og að hann hafi afsalað sér kosninga- rétti þar. Við kosningarnar 1953 greiddu 215 menn atkvæði í öðrum hreppi heldur cn þar, sem þeir stóðu á kjörskrá, og var það 0,3% af þeim, sem atkvæði greiddu alls. En með því að slíkar utanhrcppskosningar geta aðeins átt sér stað í sýslunum,

x

Hagskýrslur um kosningar

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Hagskýrslur um kosningar
https://timarit.is/publication/1173

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.