Hagskýrslur um kosningar - 01.01.1954, Page 11

Hagskýrslur um kosningar - 01.01.1954, Page 11
Alþingiskosnmgar 1953 9 en ekki í kaupstöðum, sem eru sérstök kjördæmi, er réttara að bera tölu þessara atkvæða saman við greidd atkvæði utan kaupstaðarkjördæma. Með því móti verður lilutfallstalan 1953 0,6%, en hún var 0,5% við forsetakjör 1952, 0,9% við alþingis- kosningar 1949, og 0,7% við alþingiskosningar 1946. Af þeim, sem kusu á kjörstað utanhrepps 1953, voru 120 karlar, cn 95 konur. í töflu I (bls. 16) er sýnt, hve margir kusu á þennan hátt í hverju kjördæmi álandinu. og í 1. yfirliti (bls. 6), hve margir það hafa verið í samanburði við þá, sem atkvæði greiddu alls í kjördæminu. Tiltölulega flestir hafa það verið í Norður-Þingeyjar- sýslu (2,2%). 4. Bréfleg atkvæði. Votes by Letter. Þeir, sem staddir cru, eða gera ráð fyrir að vera staddir, utan þess hrepps eða kaupstaðar, þar sem þeir standa á kjörskrá, þá er kosning fer fram, og ekki neyta hins almenna réttar til þess að greiða atkvæði á öðrum kjörstað í sama kjördæmi, mega greiða atkvæði bréflega fyrir kjörfund í skrifstofu sýslumanns eða bæjar- fógeta, hjá hreppstjóra, um borð í íslenzku skipi, hjá íslenzkum sendiráðum og útsendum ræðismönnum erlendis, svo og hjá íslenzkum kjörræðismönnum, sem eru af íslenzku bergi brotnir og skilja íslenzku. Við kosningarnar 1953 greiddi bréflega atkvæði 7 151 maður eða 9,1% af þeim, sem atkvæði greiddu alls. Við kosningar frá og með 1934 hefur þetta hlutfall verið: 1934 7,9% 1944 18,8% 1937 12,2 „ 1946 12,7 „ 1942 °/7 11,4 „ 1949 7,9 „ 1942 “/io 6,5 „ 1953 9,1 „ Bréfleg atkvæðagreiðsla var langmest notuð við þjóðaratkvæðagreiðsluna 1944, er framundir J/6 atkvæðanna voru bréfleg atkvæði, enda voru þá leyfðar heima- kosningar I ríkum mæli vegna sjúkleika, elli og heimilisanna. Áður hafa heima- kosningar aðeins verið leyfðar við einar kosningar, 1923, og þá aðeins þeim, sem ekki voru ferðafærir á kjörstað sakir elli eða vanheilsu, en sú heimild var aftur úr lögum numin 1924. í töflu I (bl8. 16) er sýnt, hve mörg bréfleg atkvæði voru greidd í hverju kjör- dæmi við kosningarnar 1953, og í töflu II (bls. 17), hvernig þau skiptust niður á hreppana. En í 1. yfirliti (bls. 6) er samanburður á því, hve mörg koma á hvert 100 greiddra atkvæða í liverju kjördæmi. Sést þar, að Siglufjörður hefur verið hæstur, með 17,9% allra greiddra atkvæða, en Gullbringu- og Kjósarsýsla og Austur- Skaftafellssýsla lægstar, báðar með 5,8%. Við kosningarnar 1953 voru 3 002 af bréflegu atkvæðunum eða 42,0% frá konum. Af hverju 100 karla og kvenna, sem greitt hafa atkvæði, hafa kosið bréflega: Karlar Karlar Karlar Konur 1934 ■ • 7,7 % 5,2 % 1944 17,7 % 19,7 % 1937 .. 15,3 „ 6,4 „ 1946 15,1 „ 10,3 „ 1942 s/7 • ■ 13,2 „ 9,4 „ 1949 10,0 „ 5,8 ,, 1942 ”/10 .... 8,1 „ 4,8 „ 1953 10,3 „ 7,8 „ Hin liáa tala kvenna 1944 stafar eingöngu af heimakosningunum, því að konur notuðu sér þær miklu meira en karlar. í skýrslu Hagstofunnar um kosningarnar 1949 er gerð grein fyrir bréflegri atkvæðagreiðslu við alþingiskosningarnar allt aftur til ársins 1916, og vísast til þess.

x

Hagskýrslur um kosningar

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Hagskýrslur um kosningar
https://timarit.is/publication/1173

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.