Bændablaðið - 25.06.2015, Síða 7

Bændablaðið - 25.06.2015, Síða 7
7Bændablaðið | Fimmtudagur 25. júní 2015 æstu tveir vísnaþættir verða helgaðir fram lagi Hjálmars Freysteins- sonar til hagyrðinga samkomu Karlakórs Eyjafjarðar frá sl. páskum. Birgir Sveinbjörnsson, stjórnandi samkomunnar, innir Hjálmar eftir sjálfslýsingu: Á mig þú ekki mæna skalt margan hef ég gallann, en blessuð sólin elskar allt og allra heitast skallann. Og framtíðarsýnin er björt: Á Tenerife er tíræð frú tímanum löngum eyðir sú á krám og börum á karlaförum. Það heitir að lifa hér og nú. Til sessunauta sinna orti Hjálmar: Fyrst að Birni verður vikið vænsti skólabróðir minn, afrekað hefur margt og mikið en mætir illa á Kontorinn. Lasburða mér liðið finnst, lítið þar um andlit ný. Árna þekki ég einna minnst, – óráðlegt að breyta því. Um samstarfsmann sinn Pétur lækni: Húmor aldrei hefur skort, hendir að mörgu gaman. Fallega hef ég um hann ort áratugum saman. Um nýjan liðsmann samkomunnar, Jóa á Gunnarsstöðum: Baráttan má vera býsna hörð bölmóðinn að létta. Þurfi að sækja í Þistilfjörð Þetta! Nokkru fyrir samkomuna sendi Birgir stjórnandi mynd frá ferðalagi sínu á Filippseyjum, og kvaðst vera þar á flótta undan hagyrðingum. Hjálmar orti þá: Birgir skoðar heiminn hrifinn heldur sig með öðrum þjóðum. Á Hauganesi á heimaslóðum hætt er við ´ann yrði rifinn. Þá flutti Hjálmar samkomunni forskrift að bréfi til Evrópu sambandsins: Orð sem nota aldrei má og enginn vill í bréfi sjá, hætta, slíta, höggva á, hurðum skella er af og frá. Að tvíræðni er gott að gá, gefa í skyn og blekkja smá, meiningunni skjóta á ská svo skiljast megi nei eða já. Engin vopn ég vil þeim ljá, veit ég hvað þeir eru að spá, Evrópusambands þrjótar þrá þjóðmenningu vora fá að hnýsast í og skoða og skrá, skrifræði frá hvirfli að tá, en þeir skulu aldrei ná í okkur Sigmund Davíð – þrjá. Svo spyr Birgir Hjálmar um ferðalög fatlaðra með Strætó í Reykjavík: Ferlega er það flókið að flytja ekki megi réttan mann á rangan stað á röngum degi. En Strætó heldur stíft í það að stundum flytja megi rangan mann á réttan stað á röngum degi. Og ekki er málið einfaldað sé ekið um ranga vegi með réttan mann á rangan stað á réttum degi. En skiljanlegt og skýrt er að skaðað getur eigi rangur maður á röngum stað á röngum degi. Umsjón: Árni Geirhjörtur Jónsson kotabyggð1@gmail.com Líf og starf Þrátt fyrir ungan aldur ákváðu systurnar Sara Bjarnadóttir, þrettán ára og Linda Bjarnadóttir, sextán ára, að stofna húsdýragarð heima hjá sér á Hraðastöðum í Mosfellsdal fyrir tveimur árum þegar þær vantaði sumarvinnu. Nú taka þær á móti fjöldanum öllum af gestum á hverju sumri og vonast til að húsdýragarðurinn sé kominn til að vera. „Þetta var eiginlega hugmynd út í loftið sem við fengum árið 2013. Foreldrar okkar höfðu tekið á móti leikskólahópum í rúm 10 ár svo það var allt hér til staðar fyrir okkur. Við höfðum enga sumarvinnu á þessum tíma nema þá hjá Mosfellsbæ og okkur fannst þetta vera betri kostur fyrir okkur. Draumurinn er síðan að mamma og pabbi geti hætt að vinna og að við getum öll verið hér heima að sjá um reksturinn,“ útskýrir Sara en þær systur hafa tekið á móti um 30 hópum það sem af er sumri. Vonandi framtíðarstarfið Það er ýmislegt sem þær systur bjóða upp á þegar kemur að sveitaheimsóknunum og fyrir utan leikskóla- og skólahópana koma starfsmannahópar til þeirra og einnig er í boði að halda afmælisveislur á staðnum þannig að fjölbreytnin er í fyrirrúmi. „Það er rosalega gott að geta unnið heima hjá sér, mér finnst það mikill kostur og því lá það beinast við þegar okkur vantaði sumarvinnu og við vorum með öll dýrin hér á staðnum að prófa að opna húsdýragarð. Ég vonast til að þetta geti orðið framtíðarstarfið okkar beggja. Í fyrra breyttist traffíkin mikið hjá okkur því þetta spurðist meira út og við finnum hvað það virkar vel að vera á Facebook,“ segir Linda og aðspurðar um hvað starfsemin gefi þeim helst eru þær systur fljótar til svars: „Það er svo skemmtilegt að upplifa hvað fólk er ánægt og áhugasamt um dýrin og sveitalífið,“ segir Linda og Sara bætir við: „Þetta er alveg æðislegt og það sem mér finnst svo gaman er hvað foreldrar hafa mikinn áhuga á að skoða og sýna börnunum sínum sveitina.“ /EHG Kornungar systur á Hraðastöðum í Mosfellsdal skelltu sér út í atvinnurekstur: Reka dýragarð heima á hlaði N MÆLT AF MUNNI FRAM 132 Þegar blaðamann Bændablaðsins bar að garði voru nemendur úr Ísaksskóla í heimsókn á Hraðastöðum og skein áhugi fyrir lífinu í sveitinni úr hverju andliti. Myndir / ehg Systurnar Linda og Sara Bjarnadætur. Heimalningurinn Freyja fylgir finnsku aðstoðarkonunni, Sonju Kuusela, eftir hvert fótmál og finnst gott að fá strokur frá henni og heimasætunni Söru. Það eru meira að segja refir til sýnis í dýragarðinum og er mjög spennandi hjá gestum að fá að klappa yrðlingunum.

x

Bændablaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Bændablaðið
https://timarit.is/publication/906

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.