Bændablaðið - 25.06.2015, Blaðsíða 8
8 Bændablaðið | Fimmtudagur 25. júní 2015
Í nokkur ár hefur verið haldinn
Hrútadagur á Raufarhöfn, í ár er
hann laugardaginn 3. október, og er
nefndin þegar farin að funda enda
að ýmsu að hyggja. Í nefndinni
eru bæði Raufarhafnarbúar
sem og ungir bændur úr
nágrannasveitum þorpsins.
Blaðamaður Bændablaðsins hitti
þau fyrir á nefndarfundi og alveg
óhætt að segja að þar hafi verið
glatt á hjalla.
Raufarhöfn er í Norður-
Þingeyjarsýslu sem er hreint svæði
og má því ekki flytja fé inn á svæðið.
Hins vegar hefur sala lífgimbra og
hrúta verið nokkuð sterk af svæðinu
og er Hrútadagurinn hugsaður til að
hafa gaman af, smala bændum og
búaliði saman og versla með hrúta.
Þeir sem hafa áhuga á að kaupa
þurfa hins vegar að sækja um leyfi
fyrir 1. júlí sem kaupendur en það er
MATÍS sem sér um þær skráningar. Í
ár verður Gísli Einarsson kynnir og
skemmtanastjóri, þá verður einnig
grín og glens og meðal annars keppt
í stígvélakasti en það ku aðeins vera
fyrir þaulvana stígvélasérfræðinga.
Þá verður einnig kvöldskemmtun
með góðum veitingum, hagyrðingum
og almennri gleði. Þeir sem vilja
fylgjast með dagskránni er bent á
facebook.com/hrutadagurinn eða
raufarhofn.is, þá er einnig hægt
að fá upplýsingar í netfanginu
hrutadagurinn@gmail.com – nú eða
hringja í einhvern af þessum hressu
nefndarmeðlimum. /GBJ
Fréttir
Stefnt á öflugan Hrútadag í ár
Helstu kostir kerranna eru:
7 blaða blaðfjaðrir tryggja góða fjöðrun.
Lágbyggðar kerrur og góðar í drætti.
Stórar legur í hjólnáum og 195/50 R 13 dekk.
Öryggislæsing á dráttarkúlu.
Heildarþyngd allt að 3,5 tonn
Slyskjugeymsla undir palli staðalbúnaður
og slyskjur valbúnaður.
80 cm Gripagrindur ofaná skjólborð
fáanlegar sem aukabúnaður.
Kr. 1.450.000
Einnig sturtukerrur,
flatvagnar og vélakerrur!
+
vs
k
Kr. 1.798.000 með vsk.
Fjölnotakerrur
Höfum hafið innflutning á vönduðum breskum
fjölnotakerrum frá framleiðandanum Indespension.
Austurvegur 69 - 800 Selfoss Lónsbakki - 601 Akureyri Sólvangi 5 - 700 Egilsstaðir
Sími 480 0400 jotunn@jotunn.is www.jotunn.is
Ve
rð
o
g
bú
na
ðu
r b
irt
ur
m
eð
fy
rir
va
ra
u
m
p
re
nt
vi
llu
r o
g/
eð
a
m
yn
da
br
en
gl
.
Mynd / GBJ
Nýtt búminja- og dráttarvélasafn opnað í Skagafirði:
„Bara að beygja hjá Staðarréttinni“
Sunnudaginn 28. júní nk.
verður opnað nýtt búminja- og
dráttarvélasafn í Lindarbæ í
Sæmundarhlíð í Skagafirði.
Þar hefur Sigmar Jóhannsson
landpóstur byggt upp glæsilega
aðstöðu til sýningarhalds þar
sem getur að líta fjölda gamalla
dráttarvéla, bæði uppgerðar og
óuppgerðar. Einnig má sjá gömul
hestaverkfæri og sitthvað fleira sem
tilheyrir fornum búháttum.
Sýningin verður fyrst um sinn
opin frá 13.00–17.00 alla daga, fram
til 15. ágúst. Nánari upplýsingar í
síma 846-9237 eða 453-8187.
Sæmundarhlíðarvegur er númer
762 eða eins og Simmi segir: „Bara
beygja hjá Staðarréttinni.“
Dagskráin hefst á sunnudaginn kl.
14.00 og eru allir velkomnir.
Dýrahald:
Reglugerð um eldishús
tekur gildi
Reglugerð um eldishús alifugla,
loðdýra og svína hefur tekið
gildi og samhliða því breyting
á reglugerð nr. 941/2002 um
hollustuhætti.
Í reglugerð um eldishús alifugla,
loðdýra og svína er m.a. kveðið
á um á hvaða svæðum má byggja
eldishús og um varnir gegn mengun
og fjarlægðarmörk.
Meginreglan er að eldishús
skuli byggja á svæðum sem
skipulögð eru fyrir landbúnað,
iðnað eða þar sem hefur verið
mörkuð stefna í aðalskipulagi um
staðsetningu eldishúsa. Sveitarstjórn
á að taka ákvarðanir um fjarlægðir
að teknu tilliti til hugsanlegra
umhverfisþátta, í samræmi við
ákvæði reglugerðarinnar en þar eru
settar fram lágmarksfjarlægðir að
teknu tilliti til mengunarálags og
hollustuhátta.
Fram að þessu hefur gilt sú regla
að fjarlægðarmörk fyrir loðdýrabú,
alifuglabú og svínabú séu 500 metrar
frá mannabústöðum, matvæla-
fyrirtækjum eða vinnustöðum
annarra en sjálfs búsins. Undanfarin
ár hefur ráðherra veitt undanþágur
til eldisbúa, eins og heimilt er
samkvæmt lögum, að teknu tilliti
til stærðar þeirra, tegundar eldis,
tæknibúnaðar og fjarlægðar frá
aðliggjandi byggð og hefur komið
í ljós að ekki er unnt að hafa ein
fjarlægðarmörk fyrir allt eldi.
Með nýrri reglugerð eru sett
mismunandi fjarlægðarmörk að
teknu tilliti til tegundar eldis, eðlis
og umfangs.
Þá er í reglugerðinni fjallað um
mengunarvarnir og kveðið á um að
fara skuli eftir bestu fáanlegu tækni
við hönnun og byggingu eldishúsa.
/VH
Sveitarfélög á Vestfjörðum:
Greiða með málefnum fatlaðra
Sveitarstjórn Reykhólahrepps
telur að málaflokkur fatlaðs fólks
á Vestfjörðum sé betur kominn í
höndum sveitarfélaganna, að
sveitarfélögin veiti betri þjónustu
í nálægð við íbúa sína.
Þetta kemur fram í fundargerð
sveitarstjórnar Reykhólahrepps
sem tók erindi frá verkefnastjóra
Byggðasamlags Vestfjarða um
málefni fatlaðs fólks til umfjöllunar
nýverið.
Fram kemur í fundargerð að
framlög gefi til kynna, að ef fer
fram sem horfir þurfi sveitarfélögin á
Vestfjörðum að greiða 118 milljónir
með málefnum fatlaðra árið 2015,
þar af greiðast 4,5 milljónir af
Reykhólahreppi. Þessi mismunur
skapast af mismun á útreikningi
ríkisins á fjárþörf málaflokksins
á Vestfjörðum og áætlunum
sveitarfélaganna á útgjaldaþörf.
„Við núverandi framlög frá
Jöfnunarsjóði er ekki grundvöllur
fyrir Reykhólahrepp frekar en önnur
sveitarfélög á Vestfjörðum að reka
málaflokkinn. Reykhólahreppur
telur það óásættanlegt að mæta
aukinni fjárþörf með niðurskurði
á þjónustu við fatlaða,“ segir í
fundargerð. /MÞÞ