Bændablaðið - 25.06.2015, Síða 27

Bændablaðið - 25.06.2015, Síða 27
27Bændablaðið | Fimmtudagur 25. júní 2015 „Snæbjörn Viðar Narfason, maðurinn minn, er frá Hoftúnum, sem eru hér í þriggja kílómetra fjarlægð. Þegar við kynntumst árið 2011 bað hann mig um að koma með og hjálpa við að smala um haustið,“ segir Þórunn Hilma Svavarsdóttir Poulsen, á Neðra- Hóli í Staðarsveit á sunnanverðu Snæfellsnesi, um forsögu þess að þau hefja þar búskap. „Eftir þá reynslu vildi ég strax flytja í sveit,“ segir hún. Þórunn og maður hennar tengjast verkefnum svæðisgarðsins á ýmsa lund, enda hefur hún sótt mjög í leiðsögn og hjálp frá Ragnhildi Sigurðardóttur, framkvæmdastjóra Svæðisgarðs Snæfellsness, eftir að þau hófu búskap fyrir tveimur árum. Þórunn er afar áhugasöm um heimavinnslu og -sölu afurða sinna, auk þess sem hún er einn af þátttakendum í sögufylgjuverkefni svæðisgarðsins, sem minnst er á hér á opnunni í viðtalinu við Ragnhildi. „Við vorum svo heppin að geta keypt hér – en við höfðum ekki efni á að kaupa nema að kaupa húsakostinn og tæki. Við fengum 20 kindur í meðgjöf frá fyrri ábúendum. Svo fengum við 20 kýr lánaðar hjá bróður Snæbjarnar – og það má segja að það hafi orðið til þess að við keyptum kýr og svo kvóta, sem við keyptum á þessu ári. Nú erum við komin með 40 kýr, 90 kálfa og kindurnar eru 230. Svo erum við með landnámshænur og þeim fer fjölgandi hjá okkur í sumar,“ segir Þórunn og bendir á 24 egg sem bíða útungunar. Fjölbreytt staðbundin matvælaframleiðsla Þórunn sér mikla framtíðar- möguleika fyrir fjölbreytta staðbundna matvælaframleiðslu og landnytjar af ýmsu tagi frá Neðra- Hóli. „Við erum hér með æðarvarp, svo erum við með veiðirétt í Langavatni og Hagavatni. Í þessum vötnum er bæði sjóbirtingur og urriði – og jafnvel er von á laxi. Þá eru þarna tvær tegundir af áli. Neðri-Hóll er sjávarjörð og þar eru söl að finna og seli til dæmis – þannig að þetta er eiginlega bara dálítið spurning um hvað þú vilt gera,“ segir Þórunn sem greinilega iðar í skinninu vegna þessara tækifæra og er með vef í smíðum til kynningar á því hvað bærinn hefur upp á að bjóða. Hreyfanlegt svæðisbundið sláturhús er draumurinn Hún veltir upp þeim möguleikum hvort það væri ekki þess virði að skoða alvarlega að bændur þarna á sunnanverðu Snæfellsnesi komi sér upp hreyfanlegu sláturhúsi. „Ég hef talað um það við Ragnhildi á Álftavatni um þennan möguleika og mér skilst að þetta þekkist. Við þurfum núna að senda alla leið norður á Hvammstanga eða Blönduós, eða þá suður á Selfoss og koma afurðunum aftur til baka til að geta fullunnið þær hér. Það er auðvitað ekki mikið vit í því. Það eru líka fleiri hér í nágrenninu áhugasamir um þennan möguleika. Sóttu pylsugerðarnámskeið í Grundarfjörð Við höfum einmitt fullan hug á því að fara út í ýmislegt tengt vinnslu á okkar kjötafurðum og fórum á pylsugerðarnámskeið í Grundarfirði fyrir skemmstu. Þá kemur allt til greina; reyking og þurrkun til dæmis. Við erum með nokkuð mótaðar hugmyndir um hvers konar pylsur við viljum gera og erum að hugsa um að leita eftir aðstoð Matís við að þróa þær.“ Sögufylgjuhlutverk Þórunnar er enn sem komið er einungis bundið við bæinn hennar og skepnurnar þar. „Ég fylgi ferðafólki um bæinn minn – aðallega hafa það verið skólakrakkar – og það sem þar er að sjá og segja frá. Í nánustu framtíð og þegar ég er komin með betri staðarþekkingu á söguslóðum hér hef ég fullan áhuga á því að taka meiri þátt í þessu sögufylgjuverkefni. Svo starfa ég líka sem almennur leiðsögumaður, en það er utan við þetta sögufylgjuverkefni.“ /smh Neðri-Hóll í Staðarsveit: Margvísleg egg í mismunandi körfum Þórunn Hilma Svavarsdóttir Poulsen á Neðra-Hóli. Hún ætlar að vera með fjölbreytta smáframleiðslu. Mynd /smh Við hönnun vélarinnar var þess gætt að hún væri notendavæn og þægileg en jafnframt einföld og laus við óþarfa rafbúnað og tækni. Mótor 5C seríunnar er hinn nýji Deutz TCD 3.6 L04 sem stenst núverandi mengunarstaðla án nokkurs aukakostnaðar eins og fylgir AdBlue eða DPF síum. Við kynnum með stolti nýju 5C seríuna frá DEUTZ-FAHR Helsti búnaður: 4 cylindra Deutz TCD3.6 L04 mótor 5 gíra kassi með 3 kúplingsfríum milligírum (30 gírar afturábak og 30 gírar áfram) Kúplingsrofi í gírstöng Kúplingsfrír vendigír með stillanlegu átaki (5 stillingar) Stop&Go (turbokúpling) - hægt að hemla og stöðva án þess að kúpla 2ja hraða aflúrtak (540/540E), sem valbúnað er hægt að fá 4 hraða aflúrtak Rofar fyrir lyftu og aflúrtak á afturbrettum. Lyftigeta 3-tengibeislis 4.855 kg. Eco vökvadæla sem skilar hámarksflæði við aðeins 1.600 snúninga SSD - töföld stýrisdæla, fækkar snúningum á stýri Heildarstærð vökvakerfis: 100 l/mín Dekkjastærð 480/65R24 að framan - 540/65R34 að aftan ÞÓR HF Reykjavík: Krókháls 16 110 Reykjavík Sími 568-1500 Akureyri: Lónsbakka 601 Akureyri Sími 568-1555 Vefsíða: www.thor.is Steypumót til sölu eða leigu Mjög góð flekamót með öllum fylgihlutum. Mótin eru sérstaklega fljótleg í notkun með góðum áföstum vinnupöllum en þarfnast krana við reisingu. Mótin eru sérlega þægileg í 2 hæða (eða hærri) byggingum. Hægt er að aðlaga mótin þannig að þau passi nákvæmlega að hverri byggingu. Lengd hvers fleka er allt að 13m og hæð 3,05. Einnig til sökkulmót. Upplýsingar í síma 840-6100.

x

Bændablaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Bændablaðið
https://timarit.is/publication/906

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.