Bændablaðið - 25.06.2015, Side 36
36 Bændablaðið | Fimmtudagur 25. júní 2015
Helstu nytjaplöntur heimsins
Allt sami bananinn
Bananar vaxa ekki á trjám. Þeir
eru ber en ekki ávextir og þrátt
fyrir að um þúsund afbrigði af
bönunum séu í ræktun erum við
nánast öll að borða sama bananann
sem er yrki sem kallast Cavendish.
Áætluð heimsframleiðsla á
bönunum árið 2013 var milli 110
og 120 milljón tonn. Stærstu
framleiðslulöndin eru Indland
með 25 milljón tonn, Kína tæp 11
milljón, Úganda 10, Filippseyjar
9 og Ekvador og Brasilía sem
framleiða um 7 milljón tonn hvort
land. Í öllum þessum löndum er mest
af framleiðslunni neytt heima fyrir.
Í sumum framleiðslulöndum er ekki
gerður greinarmunur á bönunum og
plantian sem svipar mjög til banana
og vex á plöntu sem er náskyld
bananajurtinni. Plantian hafa verið
kallaðir mjölbananar á íslensku.
Ekvador er það land sem mest
flytur út af bönunum, rúm 5
milljón tonn, í öðru til þriðja sæti
eru Kosta Ríka og Kólumbía sem
flytja út tæp 2 milljón tonn hvort
land. Stærstu innflytjendur banana
eru lönd Evrópusambandsins sem
samanlagt flytja inn tæp 4, 5 milljón
tonn, Þýskaland og Bretland eru
stórtækust. Bandaríkin flytja inn um
2,7 milljón tonn, Rússland tæp 1,25
og Japan 1,1 milljón tonn.
Innflutningur á bönunum til
Íslands árið 2014 nam um 7.000
tonn og er mest flutt inn frá Ekvador,
Kosta Ríka og Panama. Auk þess er
flutt inn lítilræði af mjölbönunum
eða plantian.
Smábændur og bananabarónar
Stærstur hluti bananaframleiðslu
í heiminum á sér stað á litlum
fjölskyldubúum og er neytt heima eða
framleiðslan seld á heimamarkaði.
Bananar gefa uppskeru árið um kring
í hitabeltinu og hluti af daglegri
fæðu yfir 500 milljóna manna þar
á hverjum degi. Bananar eru með
mest neyttu plöntuafurðum í heimi.
Stór framleiðslufyrirtæki eins
og Chiquita, Del Monte, Dole,
and Fyffes rækta banana á stórum
landsvæðum í löndum eins og
Ekvador, Kólumbíu, Kosta Ríka,
Gvatemala og Hondúras. Öll hafa
þessi fyrirtæki verið sökuð um að eiga
þátt í stórfelldri eyðingu frumskóga
í Mið- og Suður-Ameríku. Um tíma
áttu bananaræktarfyrirtækin stóran
hluta af öllu landi í einkaeigu í Kosta
Ríka, Hondúras, Panama og fleirum.
Fyrirtækin höfðu einkaleyfi á ræktun
og sölu á bönunum í löndunum
og borguðu nánast engan skatta.
Vegna sterkra stöðu fyrirtækjanna í
þessum löndum voru þau uppnefnd
bananalýðveldi.
Bandaríski bananaframleiðandinn
United Fruit átti um 80% af öllu
einkalandi í Gvatemala í upphafi
fimmta áratugar síðustu aldar og
var talsverður kurr í landinu vegna
þess. United Fruit vann náið með
bandarísku leyniþjónustunni CIA og
í samvinnu við hana tókst fyrirtækinu
að fá kosna stjórn og forseta í landinu
sem var því hliðhollt. Þannig tryggði
fyrirtækið stöðu sína í landinu í mörg
ár í viðbót.
Árið 2014 sameinuðust Fyffes og
Chiquita í stærsta bananaframleiðslu
og dreifingarfyrirtæki í heimi,
ChiquitaFyffes. Áætluð ársvelta
fyrirtækisins er áætluð 160 milljón
bananakassar, að verðmæti um einn
milljarður Bandaríkjadala eða um
132 milljarðar íslenskar krónur.
Neysla á bönunum er víða ólík því
sem við eigum að venjast. Þeir eru
tíndir óþroskaðir og matreiddir ekki
ósvipað og við gerum við kartöflur.
Steiktir, soðnir, bakaðir og skornir í
flögur. Fjöldi hitaeininga í kartöflum
og bönunum er svipaður.
Grasafræði og ræktun
Jurtin sem bananar vaxa á er
þróttmikil fjölær planta sem getur
náð tíu metra hæð og líklega hæsta
planta í heimi sem ekki er með
trékenndan stöngul. Afbrigði sem
mest er ræktað er dvergvaxið í þeim
samanburði og verður sjaldnast
hærra en þrír metrar. Stöngullinn
vex upp af fjölærum jarðstöngli
sem liggur grunnt. Blöðin stór og
bátlaga. Blómin tvíkynja og aldinið
stórt mjölmikið ber með þykka húð,
60 til 150 saman í stórum klasa.
Aldin banana eru misþétt í sér og
geta verið græn, gul, rauð, brún
og blá en bananar í verslunum eru
yfirleitt gulir.
Stöngullinn sölnar eftir að aldinið
nær þroska en nýr vex fljótlega upp
af rótinni. Ræktunaryrki eru þrílita
og ófrjó og þess vegna eru bananarnir
sem fást í verslunum frælausir.
Kjöraðstæður bananaplöntunnar
er í hitabeltinu þar sem daglengd er
tólf tímar, hitastig liggur á milli 26
og 30° á Celsíus og loftraki um 50%.
Plantan hættir að vaxa fari hitinn
undir 18° og yfir 38°. Við góðar
aðstæður tekur um átján mánuði frá
því að stöngullinn vex frá rótinni þar
til aldinið nær fullum þroska.
Plantan kýs næringarríkan,
Vilmundur Hansen
vilmundur@bondi.is
Jurtin sem bananar vaxa á er þróttmikil fjölær planta sem getur náð tíu metra hæð.
Ræktaðir eru sérstakir bjórbananar sem notaðir eru til að brugga úr
bananabjór.