Bændablaðið - 25.06.2015, Síða 49

Bændablaðið - 25.06.2015, Síða 49
49 Bændablaðið | Fimmtudagur 25. júní 2015 Stutt hettupeysa PRJÓNAHORNIÐ garn@garn.is Stærð: 4 ára. Yfirvídd: 62 sm. Garn: Kartopu Basak nr K792 bleikur, 2 dokkur. Basak er til í 33 litum sjá nánar á www.garn.is Prjónar: Hringprjónn 60 sm nr 4 eða sú prjónastærð sem þarf til að fá 23 lykkjur = 10 sm í sléttu prjóni Perluprjón: Umferð 1: *1 slétt, 1 brugðin* endurtakið *-* út umferðina Umferð 2: *1 brugðin, 1 slétt* endurtakið *-* út umferðina Endurtakið þessar tvær umferðir Aðferð: Peysan er öll prjónið fram og til baka, hvert stykki fyrir sig. Bakstykki: Fitjið upp 70 lykkjur og prjónið stroff 2 slétt, 2 brugðið fram og til baka, 4 sm. Skiptið yfir í perluprjón og prjónið þar til stykkið mælist 15 sm (mælt með stroffi). Fellið af fyrir handvegi í annarri hverri umferð 2, 1, 1 lykkju. Prjónið áfram perluprjón þar til heildarlengd mælist 31 sm. Geymið stykkið. Forstykki: Aukið er út jafnt og þétt þeim megin á framstykki sem er nær miðju að framan. Athugið að um leið og lykkjum fjölgar bætist við kaðall og perluprjón að honum loknum; 6 lykkjur perluprjón, 11 lykkjur kaðalmunstur, 17 lykkjur perluprjón eftir að útaukningu er að fullu lokið. Fitjið upp 4 lykkjur og prjónið perluprjón 2 umferðir, aukið út í upphafi umferðar frá réttu: 3, 3, 3, 2, 2 lykkjur (munið eftir kaðli) og síðan 1 lykkju í annarri hverri umferð alls 17 sinnum. Þegar stykkið mælist 11 sm er fellt af fyrir handvegi eins og á baki 2, 1, 1 lykkjur. Prjónið áfram þar til stykkið mælist 27 sm fella þá af í hálsmáli 5, 3, 2, 1, 1 lykkjur = 18 lykkjur á öxl. Prjónið þar til stykkið mælist 31 sm. Prjónð annað framstykki en speglið. Ermar: Byrjað er á að prjóna kaðalinn og lykkjur síðan teknar upp á hvorri langhlið fyrir stroff og ermi. Fitjið upp 13 lykkjur og prjónið kaðal, fram og til baka, 17 sm fellið af. Takið upp meðfram annarri langhliðinni 32 lykkjur og prjónið fram og til baka stroff (2 slétt, 2 brugðið) 4 sm. Fellið af. Takið upp meðfram hinni langhliðinni 48 lykkjur og prjónið perluprjón fram og til baka. Aukið út í 8. hverri umferð í upphafi og enda umferðar þar til 62 lykkjur eru á prjóninum. Prjónið áfram þar til ermin mælist 26 sm (stroff og kaðall mælt með). Fellið af fyrir handvegi og síðan með því að móta ermakúpul; 3, 2, 10x1, 2, 3, 4 lykkjur í upphafi hverrar umferðar. Fellið af þær lykkjur sem eftir eru. Prjónið aðra ermi eins. Listi á framstykki: Takið upp 82 lykkjur (deilanlegt með 4+2) og prjónið stroff 2 slétt, 2 brugðið, 4 sm. Fellið laust af. Á hægra framstykki er gert ráð fyrir tveimur hnappagötum. Lykkið eða saumið saman axlir, saumið saman hliðar, saumið ermar í. Hetta: Takið upp lykkjur í hálsmáli (ekki lykkjurnar af listanum) 15 lykkjur af hægra framstykki, 26 lykkjur af baki, 15 lykkjur af vinstra framstykki. Prjónið slétt prjón fram og til baka, 2 umferðir, aukið út í 3. umferð í 72 lykkjur þannig; prjónið 1 lykkju slétt, (aukið út um 1 lykkju, prjónið 3 lykkjur slétt) x8, (aukið út um 1 lykkju, prjónið 2 lykkjur slétt) x3, (aukið út um 1 lykkju, prjónið 3 lykkjur slétt) x8, aukið út um 1 lykkju, prjónið 1 lykkju slétt. Haldið áfram að prjóna slétt prjón fram og til baka þar til hettan mælist 23 sm eða sú hæð sem þið viljið. Fellið af með þremur prjónum eða lykkið saman hettuna. Frágangur: Gangið frá endum og saumið tölur í. Þvoið flíkina og leggið til þerris. Uppskrift frá KARTOPU TEKSTIL þýdd með leyfi frá þeim af Guðrúnu Maríu Guðmundsdóttur. Góða skemmtun, Inga Þyri Kjartansdóttir Sudoku Galdurinn við Sudoku-þrautirnar er að setja réttar tölur, frá 1–9, í eyðurn ar. Sama talan má ekki koma fyrir tvisvar í línu lárétt og lóð rétt og heldur ekki innan hvers reits sem afmarkaður er af sverari lín um. Létt Þung Miðlungs 3 2 4 1 2 5 4 6 1 6 9 5 9 6 4 3 7 6 9 6 2 7 8 1 8 Þyngst 6 1 7 9 3 8 6 1 9 4 2 6 8 5 4 9 7 6 7 4 3 1 3 4 4 9 6 9 4 8 1 7 9 7 2 4 3 8 7 6 4 2 5 9 3 5 5 3 1 2 7 3 9 8 7 3 5 8 2 8 9 5 3 5 1 8 1 3 5 6 4 8 6 FÓLKIÐ SEM ERFIR LANDIÐ Spilar á píanó og ætlar að verða bóndi Elva María er ellefu ára vatnsberi sem býr að Búlandi í Skaftártungu. Hún heldur upp á hunda og ketti og spilar á píanó. Í fyrrasumar fór hún í skemmtilega ferð til Danmerkur. Nafn: Elva Marín Elvarsdóttir. Aldur: Ég er 11 ára. Stjörnumerki: Vatnsberi. Búseta: Búland í Skaftártungu. Skóli: Kirkjubæjarskóli á Síðu. Hvað finnst þér skemmtilegast í skólanum? Íþróttir. Hvert er uppáhaldsdýrið þitt? Hundur og hestur. Uppáhaldsmatur: Kjöt í karrí sem mamma gerir. Uppáhaldshljómsveit: 1D. Uppáhaldskvikmynd: Shallow Hal og Step up. Fyrsta minning þín? Þegar ég sá bróður minn í fyrsta skipti. Æfir þú íþróttir eða spilarðu á hljóðfæri? Ég spila á píanó. Hvað ætlar þú að verða þegar þú verður stór? Bóndi. Hvað er það klikkaðasta sem þú hefur gert? Þegar ég tók snuð upp úr klósettinu. Hvað er það leiðinlegasta sem þú hefur gert? Að vakna á morgnana til að fara í skólann. Gerðir þú eitthvað skemmtilegt í sumar? Já, ég fór til Danmerkur. Háskólinn á Hólum Auglýst er til umsóknar staða reiðkennara við Háskólann á Hólum Um er að ræða 100% starf sem felst aðallega í reiðkennslu nemenda í BS námi við hestafræðideild. Hluti starfsins er fólginn í þjálfun á hestakosti skólans auk rannsókna- og þróunarvinnu. Um framtíðarstarf er að ræða. Hæfni og menntunarkröfur Reiðkennaramenntun og reynsla af reiðkennslu, keppni og sýningum. Umsókn skal fylgja afrit af prófskírteinum og ferilskrá. Launakjör samkvæmt kjarasamningi viðkomandi stéttarfélags við ríkið. Um starfskjör, réttindi og skyldur gilda að öðru leyti lög um réttindi og skyldur starfsmanna ríkisins nr. 70/1996. Vinsamlegast sendið umsóknir til Háskólans á Hólum, 551 Sauðárkróki eða á netfangið umsoknir@holar.is fyrir 17. júlí 2015. Æskilegt er að viðkomandi geti hafið störf í ágúst. Nánari upplýsingar veita Sveinn Ragnarsson deildarstjóri í síma 861- 1128 eða Mette Mannseth í síma 898-8876. Öllum umsóknum verður svarað þegar ákvörðun um ráðningu hefur verið tekin.

x

Bændablaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Bændablaðið
https://timarit.is/publication/906

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.