Morgunblaðið - 18.08.2015, Blaðsíða 10

Morgunblaðið - 18.08.2015, Blaðsíða 10
Yfir 20 þúsund keppnisbréfdúfum sleppt AFP Til himins Þessar fallegu dúfur flugu í átt til himins. Yfir 20 þúsund keppnisbréfdúfum var sleppt við Kilton-skóg í Nottingham-skíri á Bretlandi um helgina þegar þær tóku þátt í árlegri bréfdúfnakeppni. Dúfunum var sleppt í sex hollum sem skipt var eftir fyrirhugaðri vegalengd. Sumar dúfurnar munu fljúga yfir 200 mílur. Fögur fuglamergð í keppni 10 DAGLEGT LÍF MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 18. ÁGÚST 2015 Skóla- og frístundasvið Grunnskólar Reykjavíkur verða settir mánudaginn 24. ágúst. Nánari upplýsingar um hvenær nemendur í 2.–10. bekk eiga að mæta svo og 1. bekkingar eru á heimasíðum skólanna. Þar má einnig sjá hvenær almenn kennsla hefst og innkaupalista. Einnig er hægt að fá upplýsingar hjá skóla- og frístundasviði Reykjavíkurborgar í síma 411 1111, 411 7007 og á www.skolarogfristund.is. Á sömu vefslóð eru upplýsingar um frístundaheimili fyrir 6–9 ára börn, félagsmiðstöðvar fyrir 10–16 ára og skólahljómsveitir. GRUNNSKÓLAR REYKJAVÍKUR SKÓLASETNING HAUSTIÐ 2015 Þórunn Kristjánsdóttir thorunn@mbl.is Ég byrjaði sjálf í hest-unum eftir að hafa farið áreiðnámskeið sem barn.Ég varð alveg sjúk eftir það og reyndi að fara á eins mörg námskeið og ég gat. Ég fékk svo fyrsta hestinn minn 11 ára,“ segir Halla María Þórðardóttir, eigandi reiðskólans Eðalhesta í Garðabæ sem er í hestamannafélaginu Spretti, spurð hvernig hún hafi smit- ast af hestabakteríunni. En þetta er stutta útgáfan af þeirri sögu. Halla María stofnaði umrædd- an reiðskóla fyrir þremur árum, árið 2012, ásamt manni sínum Magnúsi Líndal, þá var hún 26 ára gömul. Hún segir að það hafi hvorki verið flókið né erfitt að stofna fyrirtæki þrátt fyrir að hafa verið tiltölulega ung að árum. Halla María hefur unnið í kringum hesta að stórum hluta ævi sinnar, m.a. í reiðskóla og við tamningar og þjálfun hrossa. Hún hefur lokið tveggja ára námi frá Hólaskóla á hestabraut. Hún veit því hvað hún syngur. Reiðskólinn stækkar ört Í upphafi var reiðskólinn mun minni í sniðum, en hefur farið ört stækkandi ár frá ári. Fyrsta árið var hún með um fimm til sex börn á dag. Í dag koma að meðaltali yfir 50 börn á hverjum degi í reiðskólann, 26 fyr- ir hádegi og annað eins eftir hádegi. Námskeiðin eru í viku í senn og hægt er að velja annaðhvort hálfan Alltaf glöð og ánægð eftir góðan reiðtúr Hestar hafa átt hug hennar allan frá því hún fór á sitt fyrsta reiðnámskeið sex ára gömul. Hún var sú eina í fjölskyldunni sem hafði áhuga á hestum en dró foreldra sína inn í hestaheiminn eftir að hún fékk sinn fyrsta hest 11 ára gömul. Í dag hefur hún stofnað eigin reiðskóla og tekur á móti stórum hópi af áhugasömum börnum á sumrin sem vilja ólm komast á hestbak og fræðast um þennan vinalega ferfætling. Morgunblaðið/Styrmir Kári Reiðskóli Alltaf er líf og fjör í kringum hestana og börnin ánægð. Morgunblaðið/Styrmir Kári Gaman Mjög gefandi er að læra að umgangast hrossin. Á dögunum kom út í Bandaríkjunum geisladiskurinn Clockworking með Nordic Affect. Platan hefur þegar fengið frábærar viðtökur í erlendum miðlum og m.a. verið spiluð á NPR og verið plata vikunnar á Q2 Music. Af því tilefni verður hóað í útgáfugleði í Mengi á morgun kl. 17. Á plötunni spila meðlimir Nordic Affect verk eftir Önnu Þorvalds- dóttur, Hildi Guðnadóttur, Hafdísi Bjarnadóttur, Þuríði Jónsdóttur og Maríu Huld Markan Sigfúsdóttur. Um upptöku sá Georg Magnússon en hljóðblöndun og eftirvinnsla var í höndum Valgeirs Sigurðssonar í Gróðurhúsinu. Útgefandi er Sono Luminus. Endilega... ...tryggið ykkur góða tóna Morgunblaðið/Kristinn Tónskáld Anna Þorvaldsdóttir tón- skáld á meðal annarra efni á plötunni. Í Borgarbókasafninu í Grófinni verður haldin vinnusmiðja í skapandi skrif- um frá kl. 13-17 á morgun. Erla Steinþórsdóttir, leikkona og listkennari, stendur fyrir vinnusmiðj- unni sem haldin verður í allt haust á ensku. Öllum er velkomið að taka þátt, hvort sem þeir eru ferðamenn eður ei. Vinnusmiðjan ber heitið Human Writes og er innblásin af hug- tökum sem finna má í Mannréttinda- stefnu Reykjavíkurborgar, á borð við aldur, kyn efnahag, fötlun, uppruna, kynhneigð, litarhátt, heilsufar og trúarbrögð. Einnig er stuðst við nátt- úru og menningu sem eru í göngu- færi í miðborginni en ávallt er farið út úr húsi til þess að virkja sköpunar- kraftinn. Vinnusmiðjan verður haldin alla jafna á þriðjudögum og laugar- dögum út haustið. Skráning er á humanwrites.is eða í tölvupósti á er- la@humanwrites.is. Þátttökugjald er 3.000 kr. Skapandi skrif á ensku gætu höfðað til ferðamanna Morgunblaðið/Styrmir Kári Ferðamenn Kannski munu ferðamenn reka inn nefið í Grófinni og skrifa. Skrifað um mannréttindi

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.