Morgunblaðið - 18.08.2015, Blaðsíða 16

Morgunblaðið - 18.08.2015, Blaðsíða 16
16 FRÉTTIRViðskipti/Atvinnulíf MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 18. ÁGÚST 2015                                    !  !!" # $ $!$" $!"   !$% " % %  &'()* (+(     ,-&.&+/0 -'+(1(23& 45+(2/5 # !$ !! #$ # % " %## !# "%$% %$# $ !$ !! # #$$# $! $  !$ "# %$" !!$"%$ Skannaðu kóð- ann til að sjá gengið eins og það er núna á ● Steinar Þór Guð- geirsson lögfræð- ingur hefur sagt sig úr stjórn VÍS frá og með deg- inum í gær. Engar ástæður eru til- greindar í tilkynn- ingu til Kaup- hallarinnar. Steinar Þór var fyrst kjör- inn í stjórn VÍS í lok maí 2013. Aðrir í stjórn félagsins eru Ásta Dís Óladóttir, Bjarni Brynjólfsson, Guðrún Þorgeirsdóttir og Helga Jónsdóttir. Varamenn stjórnar eru Ásta Sóllilja Sigurbjörnsdóttir og Davíð Harðarson. Breytingar á stjórn tryggingafélagsins VÍS Steinar Þór Guðgeirsson ● Þrjú félög í Kauphöllinni, Sjóvá, VÍS og Fjarskipti, keyptu eigin bréf sam- kvæmt endurkaupaáætlunum fyrir 79,5 milljónir króna í síðustu viku, nán- ar tiltekið dagana 12.-14. ágúst. Sjóvá keypti fyrir 12,8 milljónir króna í fernum viðskiptum, Fjarskipti keypti fyrir 24,2 milljónir króna í tvennum viðskiptum og VÍS keypti fyrir 42,6 milljónir króna í fernum viðskiptum. Kaup á eigin bréfum fyr- ir 79,5 milljónir króna STUTTAR FRÉTTIR ... arða króna á síðasta ári. Mikil um- skipti hafa orðið frá árinu 2004 þegar vöruskiptajöfnuður var óhagstæður um 407 milljónir króna. Þegar horft er til ársins 1999 var verðmæti út- flutnings til Rússlands einungis 421 milljón króna og vöruskiptahallinn þá 3,1 milljarður króna. Mest flutt út til Hollands Mestur útflutningur fer til Hol- lands, eða 172 milljarðar, sem er 29% af heildarútflutningi síðasta árs. Auður Ólína Svavarsdóttir, deildar- stjóri utanríkisdeildar Hagstofunnar, segir að það skekki myndina töluvert hve Holland er með hátt hlutfall þar sem útflutningur fer í gegnum upp- skipunarhöfnina í Rotterdam. Þegar farmur fer úr landi á að skrá neyslu- landið í tollskýrslum. „Við vitum að í einhverjum tilvikum vita útflytjendur ekki hvert neyslulandið er fyrr en eft- ir á. Ef farmurinn fer til dæmis í vöru- geymslur í Hollandi vita þeir ekki hvar hann endar því þá er selt beint úr vörugeymslunum.“ Hún segir að áform séu um að rannsaka þetta til að fá betri mynd af því hvar vörurnar raunverulega endi. Ál er til dæmis flutt til Hollands en ekki er vitað hvort það endar þar eða fer lengra. Útflutningur til Rússlands margfaldast síðustu árin Útflutningur eftir löndum Fob verðmæti 2014 Heimild: Hagstofa Íslands 180 160 140 120 100 80 60 40 20 0 H ol la nd B re tla nd Sp án n Þý sk al an d Fr ak kl an d Rú ss la nd B an da rík in N or eg ur N íg er ía B el gí a D an m ör k Ja pa n G ræ nl an d Íta lía Sv is s Po rt úg al U ng ve rja la nd Li th áe n Fæ re yj ar Ka na da Kí na Pó lla nd Ás tr al ía Sv íþ jó ð Ty rk la nd Ír la nd Ví et na m Sl óv ak ía Ú kr aí na Su ðu r- Kó re a G rik kl an d milljarðar króna Útflutningur til Rússlands Milljarðar króna Sjávarafurðir 23,9 Makríll 9,1 Síld 7,5 Loðna 3,9 Iðnaðarvörur 1,9 Landbúnaðarvöru 0,3 Aðrar vörur 2,9 Samtals 29 Rússland » 82% útflutnings eru sjávar- afurðir. » 7% útflutnings eru iðnaðar- vörur. » 1% útflutnings eru landbúnaðarvörur. » 57% af innflutningi eru hrá- vörur og rekstarvörur. » 31% af innflutningi eru elds- neyti og smurolíur.  Rússland með 5% af útflutningsverðmæti  Vöruskiptajöfnuður 26 milljarðar BAKSVIÐ Margrét Kr. Sigurðardóttir margret@mbl.is Útflutningsverðmæti sem fer til Rússlands nemur 5% af heildar- útflutningi Íslands samkvæmt upp- lýsingum frá Hagstofu Íslands. Af 134 viðskiptalöndum er Rússland í 6. sæti þegar horft er til fob (e. free on board) verðmætis. Útflutningur til Rússlands nam á síðasta ári rúmum 29 milljörðum króna, sem er svipað og flutt var út til Frakklands og Banda- ríkjanna. Rússland er því í hópi mik- ilvægustu útflutningslandanna ásamt Hollandi, Bretlandi, Spáni, Þýska- landi, Frakklandi, Bandaríkjunum og Noregi. Heildarverðmæti útflutnings síðasta árs nam 590 milljörðum króna. Útflutningur margfaldast Vöruútflutningur til Rússlands hef- ur margfaldast síðustu ár. Árið 2004 var flutt út til Rússlands fyrir 2,3 milljarða króna í samanburði við 29 milljarða króna á síðasta ári. Þar er því um nærri þrettánföldun að ræða á tíu ára tímabili. Stærsti hluti útflutn- ings til Rússlands er sjávarafurðir, eða 82%. Þar er aðallega um makríl, síld og loðnu að ræða. Um þriðjungur af heildarútflutningi á uppsjávarfiski á síðasta ári fór til Rússlands. Innflutningur frekar lítill Innflutningur frá Rússlandi hefur haldist nokkuð stöðugur, en á síðasta ári nam verðmætið 3,1 milljarði króna á cif (e. cost, insurance, freight) verði. Frá Rússlandi er mest flutt inn af olíu og álblendi. Þar sem mun meira er flutt út til Rússlands en inn var vöruskiptajöfn- uður því hagstæður um rúma 26 millj- Hlutafélagið Jörundur, sem er í eigu Reykjavíkurborgar, hefur gengið til samninga við fasteignafélagið Regin um sölu á fasteignunum að Lækjar- götu 2, Austurstræti 22 og Austur- stræti 22a. Þær voru endurreistar eftir mikinn bruna á svæðinu árið 2007 þar sem sögufrægar byggingar urðu eldi að bráð. Nýbyggingarnar voru reistar á grundvelli verðlauna- tillögu frá arkitektastofunni Studio Granda. Þær eru alls 2.386 fermetr- ar að stærð samkvæmt birtu flatar- máli. Tilboð það sem Reginn hefur gert hljóðar upp á 1.360 milljónir króna. Helgi S. Gunnarsson, forstjóri Reg- ins, segir samninginn jákvæðan fyrir Reykjavíkurborg og Regin. „Það er gott að sjá borgina draga sig út úr samkeppnisrekstri í miðbænum en á því svæði er mikil samkeppni í út- leigu á verslunar- og skrifstofuhús- næði,“ segir hann. Húsnæðið er að öllu leyti í útleigu og meðaltal leigusamninga er rúm- lega 5 ár. Tekjur miðað við núver- andi leigusamninga nema 81 milljón króna á ári. Í húsinu eru í dag starfrækt fyr- irtæki af ýmsum toga, meðal annars Grillmarkaðurinn, Caruso veitinga- hús, Listaháskóli Íslands, Nordic Store og Lögmenn Lækjargötu. Helgi segir að Reginn meti það svo að innan fárra ára muni afkoma tengd húsunum sem fylgja kaupun- um styrkjast og að arðsemi verði yfir 6%. Gert er ráð fyrir því að EBITDA Regins hækki um tæp 2% miðað við núverandi rekstrarspá. Fasteignasalan Eignamiðlun sá um söluferli eignarinnar fyrir hönd Jörundar ehf. Fasteignir Húsin sem Reginn hefur keypt setja svip á miðborgina. Reginn kaupir fast- eignir af borginni  Byggingar sem reistur voru í kjöl- far bruna árið 2007 FÁRÁNLEG VERÐ! ALLTAÐ 50% AFSLÁTTUR HJÓLA-OGSPORTVÖRUVERSLUNIN · FAXAFENI 7 · REYKJAVÍK · SÍMI 5 200 200 VERSLAÐU Á WWW.GÁP.IS 68.940 114.900

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.