Morgunblaðið - 18.08.2015, Blaðsíða 17

Morgunblaðið - 18.08.2015, Blaðsíða 17
FRÉTTIR 17Erlent MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 18. ÁGÚST 2015 Kristján Jónsson kjon@mbl.is Minnst 16 létu lífið í öflugu sprengjutilræði í mið- borg Bangkok, höfuðstað Taílands, í gærkvöldi að staðartíma og tugir að auki særðust. Sprengjunni hafði verið komið fyrir í mótorhjóli í grennd við þekkt hindúahof, Erawan, sem margir ferðamenn skoða, einkum fólk frá öðrum Asíulöndum. Einnig eru mörg dýr hótel og verslanamiðstöðvar á svæð- inu. Óttast er að tilræðið ýti undir ókyrrð og átök. Síðdegis í gær var ekki vitað hver eða hverjir hefðu staðið fyrir tilræðinu. Á síðustu árum, áður en Mannskætt sprengjutilræði í Bangkok  Minnst 16 manns létu lífið og óttast er að tilræðið ýti undir ný átök  Ráðamenn segja að markmiðið með sprengjunum sé að skaða ferðaþjónustuna herinn tók völdin, hefur oft verið efnt til fjölmennra mótmæla á svæðinu sem kennt er við Rajprasong-gatnamótin. Lík- amspartar sáust í grennd við djúpa holu þar sem sprengingin varð. Sjónarvottar sögðu að al- ger ringulreið hefði ríkt í fyrstu og fjöldi særðra verið fluttur til bráðabirgða á nálægt hótel. Ráðamenn sögðu ljóst að til- ræðinu hefði verið beint gegn ferðaþjónustunni sem er mikilvæg gjaldeyrislind í Taílandi. Tvær Prayut Chan-o cha sprengjur að auki fundust á svæðinu í gær. „Það gæti orðið önnur sprenging svo að við höfum girt svæðið af og biðjum fólk að koma sér burt,“ sagði Prawut Thawornsiri, yfirmaður ríkislögreglunnar. Prawit Wongsuwan, aðstoðarforsætisráðherra og varnarmálaráðherra Taílands, sagði of snemmt að segja hverjir hefðu verið að verki. „En það er ljóst að árásarmennirnir vildu valda tjóni á efna- hagnum og ferðaþjónustunni vegna þess að þetta gerðist í hjarta viðskiptahverfisins,“ sagði hann. Ferðaþjónusta er eina atvinnugreinin sem hefur blómstrað að undanförnu en aðrar greinar hafa bar- ist í bökkum um skeið. Valdarán í fyrra » Herinn rændi völdum í maí í fyrra en það hefur hann oft gert í sögu Taílands. » Þing þar sem herinn réð öllu kaus einum rómi Prayut Chan-o-cha, hershöfðingja og yfirmann alls heraflans, í embætti forsætisráðherra. » Prayut hefur bannað allt andóf og gagnýni á stjórn- völd. Mörg hundruð þúsund manns tóku þátt í mótmælum í Brasilíu gegn Dilmu Rousseff forseta á sunnudag og kröfðust þess að hún segði af sér fyrir að hafa ekki brotið spillingu á bak aftur. Efnahagur landsins hefur einnig versnað mjög að undanförnu. Hrópað var „Út með Dilmu“ í stærstu borg landsins, Sao Paulo. Rousseff var endurkjörin fyrir átta mánuðum en nú er hún með aðeins um 8% stuðning í skoðanakönnunum. AFP Krefjast afsagnar Rousseff Kristján Jónsson kjon@mbl.is Nokkrir tugir manna í kínversku borginni Tianjin efndu í gær til mótmæla við Mayfair-hótelið þar sem embættismenn hafa haldið blaðamannafundi eftir spreng- inguna mikla sem varð í hafnar- borginni sl. miðvikudag. Fólkið krafðist skaðabóta fyrir skemmdir á húsum sínum. Allt bendir til þess að gámar með sprengiefni og öðrum hættulegum efnum hafi verið geymdir allt of nálægt íbúðarhús- um. Enn er óljóst hvað olli spreng- ingunni en verið er að rannsaka málið. Mikið er um ólöglegt andóf og verkföll í Kína en í þessu tilfelli virðast ráðamenn í Peking hafa ákveðið að leyfa mótmæli í Tianjin, a.m.k. fyrst um sinn. Í gær var sagt að minnst 114 hefðu týnt lífi í sprengingunni en um 70 væri enn saknað, aðallega slökkviliðsmanna. Nær 700 manns voru enn á sjúkra- húsi í gær og minnst 6.000 manns hafa misst heimili sín. Mörg þúsund hús að auki skemmdust vegna höggbylgjunnar frá sprengingunni. Vitað er að fyrirtækið Ruhai International Logistics geymdi mikið af hættulegum efnum, þ. á m. nokkur hundruð tonn af natríum- sýaníði, í vöruhúsi í aðeins um 500 metra fjarlægð frá íbúðarhúsum í Tianjin. Lög segja að lágmarksfjar- lægð skuli vera þúsund metrar. Umrætt efni er m.a. notað við gull- og silfurvinnslu og mjög hættulegt fólki, þar sem það getur truflað getu líkamans til að nýta súrefni. Líkt við tímasprengju „Heimili okkar gætu verið í nánd við tifandi tímasprengju,“ sagði einn mótmælenda við hótelið. Í opnu bréfi til stjórnvalda sagði fólk- ið að grunnvatn á svæðinu gæti ver- ið mengað, einnig að flutningafyr- irtæki og losunarsvæði fyrir efnaúrgang væru rétt hjá íbúðar- hverfum. Fólkið sagðist jafnvel ekki vilja snúa heim þótt húsin væru metin örugg. „Nágrannar okkur dóu þarna. Við munum heyra óp þeirra lengi enn. Hvernig getum við búið róleg á þessum aftökustað?“ sagði í bréfinu. „Við munum heyra óp þeirra lengi enn“  Íbúar í Tianjin krefjast skaðabóta vegna sprengingarinnar  Hættuleg efni voru geymd of nálægt íbúðarbyggð AFP Ósátt Mótmæli íbúa í Tianjin. Mikið rætt á netinu » Fjölmiðlar í Kína hafa sumir tekið undir gagnrýni á ráða- menn í Tianjin. » Ein ástæðan fyrir þessu tjáningarfrelsi gæti verið að útilokað var fyrir ritskoðara stjórnvalda að stýra um- ræðunni á netinu. Margir al- mennir borgarar fóru strax að tjá sig á kínverskum sam- skiptasíðum um sprenginguna. Gerðar hafa verið tilraunir með óvenjulega bók í Suður-Afríku, Gana og Bangladess, en hægt er að nota blaðsíðurnar til að hreinsa mengað vatn og gera það drykkjarhæft. Pappírinn hefur verið meðhöndlaður með nanó-ögnum úr kopar og silfri sem sía svo mikið af hættulegri mengun burt að hreinsaða vatnið er jafn hreint og venjulegt kranavatn í Bandaríkjunum, að sögn BBC. Búnaðurinn er hannaður af vís- indamönnum við háskóla í Banda- ríkjunum og Kanada. Í bókinni eru upplýsingar um notkun hennar og jafnframt um nauðsyn þess að hreinsa vatn. Hægt er að nota eina blaðsíðu til að hreinsa allt að 100 lítra af vatni, bakteríur taka í sig kopar- og silfurjónir og um 99% þeirra drep- ast, ef marka má tilraunir á mjög menguðum svæðum í löndunum þremur. Örlítið af kopar og silfri er í hreinsaða vatninu en magnið er sagt langt innan öryggismarka. Helstu kostir búnaðarins eru sagð- ir þeir að hann sé afar einfaldur og auðvelt að læra að nota hann, en auk þess kostar hann mun minna en annar vatns- hreinsibúnaður sem nú er einkum notaður í löndum þar sem vatns- mengun er mikil. Óljóst er hvort hægt er að nota sams konar tækni til að sía úr vatni aðrar örverur en bakteríur. Búnaðurinn var kynntur á fundi Bandaríska efnafræðifélagsins í Boston nýverið. „Það eina sem þarf að gera er að rífa síðu úr bókinni, láta hana í einfalda síuhöldu og hella í hana vatni úr ám, lækjum, brunnum og þess háttar stöðum. Út kemur hreint vatn – og líka dauðar bakt- eríur,“ segir einn vísindamannanna, dr. Teri Dankovich, en hún starfar við Carnegie Mellon-háskóla í Pitts- burgh. Um 660 milljónir manna í heim- inum, aðallega í fátækum ríkjum þriðja heimsins, hafa ekki aðgang að hreinu drykkjarvatni. kjon@mbl.is Nýr búnaður til að hreinsa mengað vatn Sían í notkun. Kristján Jónsson kjon@mbl.is Yfirmaður mannúðar- og neyðar- hjálpar hjá Sameinuðu þjóðunum, Stephen O’Brien, fordæmdi í gær árásir á óbreytta borgara í Sýr- landi. Þriggja daga heimsókn hans til landsins lauk í gær, en O’Brien ræddi við háttsetta embættismenn í stjórn Bashar al-Assad forseta og fór einnig til borgarinnar Homs. „Mig hryllir við því hvernig líf óbreyttra borgara er gersamlega hundsað í þessum átökum,“ sagði O’Brien. Á sunnudag gerðu liðs- menn Assads loftárás á markað í Douma, einu af úthverfum höfuð- borgarinnar Damaskus, og er nú álitið að nær 100 manns hafi fallið. Einnig var ráðist á hverfið Harasta. Skotmörkin þar voru sögð hafa ver- ið bækistöðvar Íslamska hersins, eins af mörgum hópum sem berjast gegn stjórn Assads. Nokkrum dög- um fyrr hafði Íslamski herinn gert árásir á Harasta sem stjórnarher- inn ræður og féllu 13 manns. Árásin á Douma er ein af þeim mannskæðustu sem gerðar hafa verið í stríðinu milli Assads og stjórnarandstæðinga. Átökin í Sýr- landi hófust þegar efnt var til mót- mæla gegn einræði Assads árið 2011 og nú er álitið að allt að 250 þúsund manns hafi fallið. Nær helmingur þjóðarinnar, um 11 millj- ónir manna, hefur orðið að flýja heimili sín, þar af nokkrar milljónir til annarra landa. AFP Stríð Drengir í úthverfinu Douma í Damaskus bíða þess að fá læknishjálp. Fordæmir árásir á óbreytta borgara  Talið að nær 100 hafi fallið í Douma

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.