Morgunblaðið - 18.08.2015, Síða 26
26 ÍSLENDINGAR
MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 18. ÁGÚST 2015
Nethyl 2 110 Reykjavík Sími 568 1245
Veitum fría ráðgjöf
fyrir tjónþola
Pantaðu tíma: fyrirspurnir@skadi.is
skadi.is
Þ. Skorri Steingrímsson,
Héraðsdóms-lögmaður
Steingrímur Þormóðsson,
Hæstaréttar-lögmaður
Sérfræðingar í
líkamstjónarétti
Það hefur gengið mjög vel í sumar og búið að vera fullt út úr dyr-um síðustu vikur,“ segir Silja Baldvinsdóttir, sem á og rekurFarfuglaheimilið á Bíldudal sem er eitt af 33 heimilum í Far-
fuglakeðju Íslands. „Veðrið hefur verið frekar gott í sumar hér á Bíldu-
dal miðað við annars staðar á landinu. Það rignir reyndar núna [mánu-
dag] en það er, held ég, fyrsta rigningin í rúmar sex vikur.
Á farfuglaheimilinu er svefnpláss fyrir fjörutíu manns. Herbergin
eru prívat en baðherbergin eru sameiginleg og ódýrasti valmöguleik-
inn á gistingu er í svokölluðu dormi sem er herbergi með rúm fyrir sex
manns.“ Farfuglaheimilið er lokað yfir veturinn frá 31. október. Hvað
tekur þá við?
„Ég er viðskiptafræðingur að mennt með MSc-gráðu í alþjóða-
viðskiptum og sé um bókhald fyrirtækisins og einnig fyrirtæki manns-
ins míns, en hann rekur útgerð.“ Maðurinn hennar er Björn Magnús
Magnússon viðskiptafræðingur og á útgerðina Mardöll. Hann átti og
var skipstjóri á Jóni Hákoni BA 60 sem sökk við Aðalvík í byrjun júlí sl.
„Hann er búinn að ná sér líkamlega og er allur að koma til.“ Börn Silju
og Björns eru Mardís Ylfa, fimm ára, og Magnús Kristján, sex mánaða.
Áhugamál Silju eru ferðalög, góður matur og hreyfing. „Við kom-
umst í smá ferðalag í sumar. Vorum á Laugarvatni og keyrðum um Suð-
urlandið. Það var æðislegt og veðrið yndislegt. Við stefnum svo á út-
landið í vetur.
Ég ætla að eiga að góða kvöldstund með eiginmanninum á afmælis-
daginn og hann á eflaust eftir að elda góðan mat handa mér ef ég þekki
hann rétt. Svo sjáum við til með haustinu hvernig við höldum betur upp
á stórafmælið.“
Mæðgurnar Silja með dóttur sinni, Mardísi Ylfu, við Gullfoss í lok júlí.
Rekur Farfugla-
heimilið á Bíldudal
Silja Baldvinsdóttir er þrítug í dag
Á
rni Björn fæddist í
Kaupmannahöfn 18.8.
1935 en ólst upp í
læknisbústaðnum á
Grenivík: „Pabbi var
læknir þar og við áttum heima í hús-
inu Grenivík sem stendur norðan við
kirkjuna. Það var læknisbústaður
staðarins.
Barnaskólinn var tvískiptur og
því ekkert of mikil viðvera í skóla-
stofunni. Við byggðum snjóhús og
renndum okkur á skíðum á veturna
en spiluðum fótbolta á sumrin.
Það voru heldur ekkert mikil
þægindi; kolaeldavél og olíulampar
þar til ég varð tíu ára. Þá kom vind-
rafstöð til lýsingar og ég man enn
eftir þeim galdri er ég sá kvikna á
fyrstu ljósaperunni.
Pabbi ætlaði aldrei að stoppa
þarna lengi en var þó læknir á
Grenivík í rúm fjörutíu ár frá 1937.“
Árni Björn var í barnaskóla á
Grenivík, lauk landsprófi frá MA,
lærði vélvirkjun í Vélsmiðjunni
Sindra á Patreksfirði 1957-61, lauk
sveinsprófi í vélvirkjun og öðlaðist
meistarabréf í þeirri grein.
Árni Björn vann í Vélsmiðjunni
Odda og Vélsmiðjunni Val á Akur-
eyri 1961-64 og starfaði síðan í
Slippstöðinni hf. á árunum 1964-
2004, í 40 ár upp á dag.
Árni Björn sinnti ritstörfum
vegna ritstjórnar Verkstjórans um
árabil. Hann hefur skráð báta sem
smíðaðir hafa verið á Íslandi með
upplýsingum um það hverjir smíð-
uðu þá og safnað þeim skráningum
inn á vefinn www.aba.is, en þar eru
auk þess upplýsingar og greinar um
einstaklinga og fyrirtæki.
Árni Björn var gjaldkeri Verk-
Árni Björn Árnason, verkstjóri og verkefnastjóri – 80 ára
Gömul fjölskyldumynd Kristín Sóley Árnadóttir, Aðalsteinn Árnason, Þórey Aðalsteinsdóttir, Árni Björn héraðs-
læknir með Þóreyju Árnadóttur, Kristín Þórdís Loftsdóttir með Laufeyju Árnadóttur og Líney Árnadóttir.
Ætíð hress og lífsglaður
Skíðakappinn Árni Björn keppti á
skíðum og hefur engu gleymt.
Stefanía Lind Guðmundsdóttir og
Alma Rut Einarsdóttir bjuggu til
skartgripi og seldu í Innri-Njarðvík.
Þær söfnuðu 8.795 krónum sem þær
gáfu til styrktar Rauða krossinum.
Hlutavelta
Íslendingar Kjartan Gunnar Kjartansson,Pétur Atli Lárusson islendingar@mbl.is
Ábendingar um brúðkaup, afmæli, barnsfæðingar og önnur tímamót í lífi fólks má
senda á netfangið islendingar@mbl.is. Einnig geta þeir, sem óska eftir því að nafn
þeirra birtist ekki í þessum dálkum, sent beiðni þar að lútandi á sama netfang.
Unnið í samvinnu við viðmælendur.
Á opnunni „Íslendingar“ í Morgunblaðinu
er sagt frá merkum viðburðum í lífi fólks,
svo sem stórafmælum, hjónavígslum,
barnsfæðingum og öðrum tímamótum.
Börn og brúðhjón
Allir þeir sem senda blaðinu mynd af nýjum borgara eða mynd
af brúðhjónum fá fría áskrift að Morgunblaðinu í einn mánuð.
Hægt er að senda mynd og texta af slóðinni
mbl.is/islendingar eða á islendingar@mbl.is
Bíldudalur Magnús Kristján fæddist á
Landspítalanum 10. febrúar 2015.
Hann var 18 merkur og 54 cm. For-
eldrar hans eru Silja Baldvinsdóttir
og Björn Magnús Magnússon.
Nýr borgari