Skólavarðan - 01.09.2004, Side 4
Nýr og öflugur Grunnskóli Snæfellsbæjar 8
Grunnskólinn í Ólafsvík og Grunnskólinn á Hellissandi voru sameinaðir í haust.
Sveitarstjórnarmenn og íbúar á Snæfellsnesi leituðu lausna á vanda grunnskóla
síns. Við segjum frá þeim í viðtali við Þorkel Cýrusson aðstoðarskólastjóra.
Fjölbrautaskóli Snæfellinga 10
Skólavarðan heimsótti nýja Fjölbrautaskólann í Grundarfirði og tók Guðbjörgu
Aðalbergsdóttur skólameistara tali. Hún og hennar fólk var í óðaönn að byggja
upp nýjan og nútímalegan skóla.
Hugsað um barn 14
Hér er sagt frá óvenjulegri kynfræðsu þar sem ungmenni fá að kynnast foreldra-
hlutverkinu. Markmiðið er að vekja þau til umhugsunar um afleiðingar kynlífs.
Skólasókn sextán ára ungmenna aldrei meiri 16
Í þessari grein segir frá skólasókn og brottfalli í framhaldsskólum landsins. Töl-
ur sýna m.a. að fleiri stúlkur sækja um skólavist en piltar.
Gerum þjóðarsátt um grunnskólann 17
Elna Katrín Jónsdóttir formaður Félags framhaldsskólakennara og varaformað-
ur KÍ skrifar um kjaradeilu Félags grunnskólakennara og Launanefndar sveitar-
félaga. Hún bendir á að ásættanleg laun og hæfileg kennsluskylda séu lykill að
lausn deilunnar.
Tækifæri í fjölbreyttu samfélagi 20
Í október verður haldið málþing í Kennaraháskóla Íslands sem ber yfirskrift-
ina Rannsóknir - nýbreytni - þróun. Þar verður fjallað um lýðræði og jafnrétti
í fjölmenningarlegu samfélagi. Aðalfyrirlesarar eru níu erlendir og innlendir
fræðimenn.
ICME -10 Alþjóðleg ráðstefna um stærðfræðimenntun 22
Kristín Bjarnadóttir lektor í KHÍ segir frá alþjóðaþingi um stærðfræðimenntun
sem haldið var í Kaupmannahöfn í sumar. Íslenskir stærðfræðiunnendur flykkt-
ust þangað og hlýddu á fyrirlestra og málstofur.
Ekkert mál að fara á milli 23
Kristín Elfa tók viðtal við Valdimar Másson skólastjóra í Tónlistarskóla Austur-
byggðar en hann leiðir skóla sem orðinn er til við sameiningu tónlistarskólanna
á Fáskrúðsfirði og Stöðvarfirði. Eins og á Snæfellsnesinu er mannfæð mætt með
því að sameina krafta og tvíeflast. Diddú finnst að þeir þurfi að eignast flygil!
Vefnámskeiðið Icelandic Online 25
Birna Arnbjörnsdóttir málfræðingur segir lesendum Skólavörðunnar frá glæsi-
legu íslenskunámskeiði sem er á netinu. Það var formlega tekið í notkun nú í
haust og kemur í góðar þarfir fyrir nemendur sem læra íslensku sem annað mál.
Formannspistill 3
Finnbogi Sigurðsson formaður FG skrifar.
Gestaskrif 5
Álfrún Gunnlaugsdóttir er gestapenni og veltir upp spurningum um hvernig
tíma skólamanna sé best varið. Er hið nútímalega í alvörunni nútímalegt?
Smiðshöggið 30
Matthildur L. Hermannsdóttir leikskólastjóri á Laufásborg fjallar um starf leik-
skólakennara og launakjör þeirra. Er eðlilegt að starfsmaður í krefjandi starfi
þurfi að sinna öðru starfi að auki til að ná endum saman?
Skóladagar 12
Myndasaga Skólavörðunnar.
Að auki
er blaðið stútfullt af fréttum, kjaramálum, tilkynningum og fleiru
að ógleymdum leiðara.
Ritstjórar: Guðlaug Guðmundsdóttir gudlaug@ki.is
Ábyrgðarmaður: Helgi E. Helgason helgi@ki.is
Hönnun: Zetor ehf.
Ljósmyndun: Jón Svavarsson / motiv-mynd, nema annað sé tekið fram.
Teikningar: Ingi
Auglýsingar: Öflun ehf. / Kristín Snæfells
kristin@oflun.is / sími: 533 4470
Prentun: Svansprent
Forsíðumynd: Jón Svavarsson
Skólavarðan, s. 595 1118 (Kristín) og 595 1119 (Helgi).
Bárður Snæfellsás prýðir forsíðu Skólavörðunnar að þessu sinni.
Styttan sem minnir á vörðu er á Arnarstapa á Snæfellsnesi. Höf-
undur hennar var Ragnar Kjartansson. Bárðar saga Snæfellsáss
er stórskemmtileg og segir frá hálftröllinu Bárði og mörgu öðru
fólki sem hann átti samskipti við. Ein frægasta persóna sögunnar
fyrir utan Bárð sjálfan er dóttir hans Helga, sem barnung lenti í
þeim hremmingum, að fljóta á rekís alla leið til Grænlands og
tók ferðin heila viku. Þeir sem áttu sök á því að þannig fór guldu
fyrir það með lífi sínu. Í sögunni er farið fáum en skýrum orðum
um að Bárður var kennari. Þar segir að hann hafi lagt ástfóstur
við ungan mann sem Oddur hét og kennt honum lögspeki. „Var
hann síðan kallaður lögvitrari maður en aðrir menn.“ Er hægt að
fá betra mat á starfinu?
Íbúar í fámennum bæjum og byggðarlögum njóta ekki sömu
tækifæra til menntunar og þeir sem skipast í fjölmennari sveit-
ir. Erfitt getur reynst að fá menntaða kennara til starfa og sums
staðar er nauðsynlegt að kenna sameiginlega tveimur eða fleiri
árgöngum nemenda. Í þessu tölublaði Skólavörðunnar segir frá
dugmiklu og hugmyndaríku fólki sem hefur leyst þessi vandamál
með sameiginlegu átaki. Á norðanverðu Snæfellsnesi er nú risinn
glæsilegur framhaldsskóli sem þjónar öllum íbúum á Nesi. Skólan-
um var valinn staður í Grundarfirði til þess að sem skemmst leið
væri fyrir þá sem lengst þurfa að sækja skólann. Nýjasta tækni er
gjörnýtt til að gera námsframboð fjölbreytilegt. Grunnskólarnir
á Hellissandi og Ólafsvík sameinuðust til að efla skólastarfið og á
Austfjörðum er annar hópur sem hleypti nýju blóði tónlistarskól-
ann með sameiningu. Við segjum einnig frá þeim lausnum.
Kjaramál eru áberandi efni í þessari Skólavörðu og skyldi eng-
an undra það. Grunnskólakennarar hafa boðað verkfall 20. sept-
ember hafi ekki náðst samningar fyrir þann tíma. Elna Katrín Jóns-
dóttir sýnir samstöðu og bendir á lausn deilunnar. Við kynnum
samninganefnd FG sérstaklega.
Kristín Elfa Guðnadóttir ritstjóri hefur nú sagt skilið við okk-
ur kennara í bili. Hún fer nú á vit nýrra ævintýra og spennandi
verður að fylgjast með henni á erlendri grund en væntanlega
koma frá henni pistlar um skólalíf í Frakklandi í vetur. Við ósk-
um henni allra heilla. Kristín Elfa hefur stýrt Skólavörðunni með
miklum sóma í fjögur ár og gert hana að því sem hún er. Það er
mikill heiður að fá tækifæri til að leysa hana af á sabbatsári. Ég
þakka fyrir það. Ég treysti því að þið, lesendur góðir, sendið mér
ábendingar um efni. Enginn veit betur um hagi kennara á Íslandi
en þið.
Baráttukveðjur,
Guðlaug Guðmundsdóttir
4
LEIÐARIEFNISYFIRLIT
FASTIR LIÐIR
SKÓLAVARÐAN 7.TBL. 4. ÁRG. 2004
GREINAR
Leysa málin með
sameiginlegu átaki