Skólavarðan - 01.09.2004, Blaðsíða 14
14
KYNFRÆÐSLA
Fræðsluefnið Hugsað um barn hefur
vakið athygli undanfarið. Markmið
þess er að vekja unglinga til umhugsun-
ar um afleiðingar kynlífs og leitast við
að hafa áhrif á að þeir byrji að stunda
kynlíf eldri en nú þekkist og af meiri
ábyrgð. Nemendur fá í hendur dúkku
sem þeir eiga að annast eina helgi og
kynnast þannig þeirri ábyrgð sem því
fylgir að annast ungbarn.
Í sumar hafa m.a. skólahjúkrunarfræð-
ingar og námsráðgjafar hér á landi kynnt
sér þetta fræðsluefni og aðferðina við
það. Skólavarðan kynnti sér málið og
ræddi við Ólaf Grétar Gunnarsson hjá
ÓB-ráðgjöf sem stendur fyrir útgáfu náms-
efnis, fræðslu og ráðgjöf fyrir foreldra og
uppeldisstéttir.
Námskeið til Íslands
Hugmyndin að Hugsað um barn er upp-
haflega bandarísk. Ólafur Grétar Gunnars-
son og Bjarni Þórarinsson hjá ÓB-ráðgjöf
áttu frumkvæði að námskeiðinu og halda
það fyrir skólahjúkrunarfræðinga og aðra
áhugasama. Það fyrsta sem þeir heyrðu um
þetta verkefni var í fréttum Ríkissjónvarps
árið 2003 og leiddi eitt af öðru þar til þeir
komust í samband við Stephanie A. Rowe,
kennara í heilbrigðisfræðum frá Wiscons-
in í Bandaríkjunum, en hún hefur notað
þetta fræðsluefni í sjö ár. Þeir heilluðust af
framgöngu hennar, ákváðu að bjóða upp
á námskeið á Íslandi og fá Stephanie til að
kenna. Landlæknisembættið mælir með
þessari fræðslu og telur hana nýstárlega
útfærslu á kynfræðslu sem muni höfða til
unglinga. Námskeiðið var haldið í tvígang
fyrir íslenska hjúkrunarfræðinga og starfs-
fólk skóla í ágúst sl. fyrir fullu húsi og við
mjög góðar undirtektir.
Ólafur Grétar sagði að sér þætti heið-
ur að því að leiða saman ríki og sveitar-
félög í því mikilvæga verkefni að fræða
nemendur í efstu bekkjum grunnskóla um
afleiðingar kynlífs og ábyrgð foreldrahlut-
verksins. „Við Íslendingar höfum sofið á
verðinum og gleymt að kenna börnunum
okkar að mikilvægt sé að hefja kynlíf ekki
of snemma. Það skyldi enginn hefja iðkun
kynlífs fyrr en hann getur rætt um það við
þann sem hann ætlar að iðka það með,“
sagði Ólafur Grétar og bætti því við að
unglingsárin gætu verið sá tími sem best
hentaði til að fræða unglinga um foreldra-
hlutverkið.
„Að vísu er það rétt að unglingurinn
finnur e.t.v. ekki hjá sér hvöt til að hugsa
af alvöru um hvernig hann ætli að ala eig-
in börn upp í framtíðinni. En hugmyndir
Piagets ganga út á það að vitræn þróun
unglingsins geri honum kleift að sjá fyrir
veröld möguleikanna fremur en að vera
bundinn þeirri félagslegu og pólitísku ver-
öld sem er. Það er þessi eiginleiki sem birt-
ist í hugsjónum unglinga. Þar sem flestir
unglingar eru að eðlisfari áhugasamir um
mannlegt eðli og siðgæði og færir um að
hugsa um það á frumlegan hátt, virðast
unglingsárin vera heppilegur tími til að
mennta fyrir foreldrahlutverkið.“
Brýnt að bæta kynfræðslu
Nemendur við Háskólann í Reykjavík
gerðu könnun á viðhorfi til kynfræðslu fyr-
ir ÓB-ráðgjöf meðal 200 nemenda og átta
kennara í 8. og 9. bekk í fjórum grunnskól-
um. Niðurstöður þeirrar könnunar voru
afgerandi. Yfirgnæfandi meirihluti nem-
enda er þeirrar skoðunar að kynfræðsla
þyrfti að byrja fyrr en nú, en hún hefst
yfirleitt í 9. bekk. Þar kemur líka fram að
90% nemenda í 8. bekk segjast ekki farin
að stunda kynlíf en í 9. bekk hefur talan
lækkað niður í 84%. Um 95% telja sig ekki
tilbúin til að eignast barn, langflestir telja
hæfilegt að hefja barneignir milli tvítugs
og þrítugs. Nemendurnir telja mikilvægt
að læra um sjálft kynlífið, getnaðarvarn-
ir, kynsjúkdóma og ótímabærar þunganir.
Allir kennararnir sem tóku þátt í könnun-
inni töldu brýnt að bæta kynfræðslu í
skólum og þeir eru sammála nemendum
sínum um að fræðslan eigi að hefjast fyrr
en nú er. Um helmingur þeirra álítur að
SKÓLAVARÐAN 7.TBL. 4. ÁRG. 2004
Hugsað um barn
Dúkkuleikur til að seinka kynlíf i og
prófa ábyrgð foreldrahlutverksins
Smáraskóli er fyrsti skólinn á landinu til að takast á við
þetta verkefni og munu allir í áttunda og níunda bekk
fá að spreita sig á því.