Skólavarðan - 01.09.2004, Qupperneq 8
8
GRUNNSKÓLI SNÆFELLSBÆJAR
SKÓLAVARÐAN 7.TBL. 4. ÁRG. 2004
Merkir þetta að þjónusta við nemendur
skerðist á einhvern hátt?
„Nei, þvert á móti. Mannfæðin í skólan-
um á Hellisandi stóð orðið skólastarfi þar
fyrir þrifum. Þar voru tíu bekkjadeildir fyrir
níutíu börn. Fámennustu árgangarnir fóru
jafnvel niður í 6 - 7 nemendur. Það segir
sig sjálft að það gengur ekki. Þegar svona
er komið er nauðsynlegt að samkenna
mörgum árgöngum og það er einfaldlega
erfitt. Auk þess var orðið mjög snúið að
manna kennarastöður. Helsti kosturinn
við sameiningu er að kennararnir nýtast
betur og þar af leiðandi fá nemendur
væntanlega betri kennslu. Þessi lausn er
leið til að bæta skólastarfið. Það að hafa
einn grunnskóla er líka hagkvæmara fyrir
sveitarfélagið.“
Nýir kennsluhættir í efstu bekkjunum
Skólinn markaði þá stefnu við upphaf
þessa skólaárs að auka vægi list- og verk-
greina svo og valgreina hjá elstu nemend-
um. Áður var ekki hægt að bjóða upp á
margar valgreinar vegna mannfæðar en
með auknum fjölda nemenda hefur ræst
úr því. Hluti nemenda 10. bekkjar fær nú
meira val en gerist og gengur og það er
í náinni samvinnu við fyrirtæki í sveitar-
félaginu. Þar má nefna að Sparisjóðurinn
fræðir nemendur um fjármál, en þeir geta
líka valið að heimsækja fyrirtæki eins og
Vélsmiðju Árna Jóns, Netagerð Aðalsteins
og Bylgjuna sem er fiskvinnslufyrirtæki.
Þeir hjá Bylgjunni kalla framlag sitt mat-
vælaiðn. „Það hefði ég valið,“ segir Þor-
kell. „Þar fá nemendur að fylgja hráefn-
inu frá því það kemur úr sjónum og þar
til það lendir á diski neytenda. En svo eru
líka kenndar aðrar valgreinar eins og fata-
saumur, myndmennt, ítalska, spænska,
þýska og fleira. Alls bjóðum við upp á 15
valgreinar. Venjulega eru þær kenndar tvo
tíma í senn þrisvar í viku en ákveðinn hóp-
ur sem kýs örlítið minna bóknám fær kost
á því að vera heilan dag úti hjá fyrirtæk-
inu. Dálítill hópur nemenda, einkum nýbú-
ar af pólsku eða filipeysku bergi brotnir,
lærir til dæmis ekki dönsku en nýtir þenn-
an möguleika í staðinn. Þeir sem stefna
ekki á bóklegt nám fá tækifæri til að kynn-
ast vinnumarkaðnum af eigin raun. Þeir
njóta handleiðslu og fá að reyna sig í dag-
legu starfi fyrirtækisins. Krakkarnir eru
keyrðir á vinnustaðinn að morgni og eru
fram að hádegi í þessu vali. Þeir fá þetta
síðan metið sem nám. Það eru launin sem
þeir fá,“ segir Þorkell. „Þessi tilraun hefur
mælst vel fyrir og bætir líðan margra nem-
enda sem hafa átt í erfiðleikum í bóklegu
námi. Þetta er síðan allt saman liður í að
sveigja kennslu, nám og mat í átt að ein-
staklingsmiðuðu námi í skólanum,“ segir
Þorkell Cýrusson að lokum.
GG
Grunnskóli Snæfellsbæjar var settur
í fyrsta sinn 25. ágúst eftir að Grunn-
skólinn í Ólafsvík og Grunnskólinn á
Hellissandi höfðu verið sameinaðir.
Það kom til vegna þess að árgangar
voru orðnir allfámennir, einkum á Hell-
issandi, en nemendur þar náðu ekki
einu hundraði og erfiðlega gekk að
manna kennarastöður. Eftir sameining-
una eru tæplega 240 krakkar í skólan-
um. Kennsla fer fram á báðum stöðum,
yngri börnin, í 1. - 4. bekk, sækja skóla á
Hellissandi, alls hundrað börn, en nem-
endur í 5. - 10. bekk, 135 talsins, sitja
skólabekk í Ólafsvík.
„Litlu krakkarnir úr Ólafsvík þurfa að
sitja í skólabíl um tíu km leið til að komast
í skólann á Hellissandi og auðvitað höfðu
foreldrar áhyggjur en málið var vel kynnt
og foreldrar voru með í ráðum. Þeir una
niðurstöðunni því hún hefur ótvíræða
kosti í för með sér. Þessi lausn gerir okkur
kleift að efla skólastarfið og bjóða börnun-
um betri menntun. Stefna okkar er samt
sú að hlusta á gagnrýnisraddir og bæta
það sem hugsanlega má betur fara,“ segir
Þorkell Cýrusson aðstoðarskólastjóri.
Hver átti frumkvæði að sameining-
unni?
Skólarnir í bænum stóðu frammi fyrir
vandamálum sem brýnt var að leysa. Bæj-
arstjórn skipaði nefnd sem tók þessi mál
fyrir. Í gang fór þróunarvinna sem fæddi
af sér tillögur um sameininguna og út-
færslu hennar. Þær voru samþykktar fyrir
ári. Stjórnendur skólanna höfðu verið fjór-
ir og var þeim öllum sagt upp, síðan voru
störfin auglýst og tveir stjórnendur ráðnir
við nýja skólann. Sveinn Þór Elinbergsson
sem var áður skólastjóri í Ólafsvík varð
skólastjóri og Þorkell Cýrusson aðstoðar-
skólastjóri en hann hafði gegnt þeirri
stöðu í Grunnskólanum á Hellissandi.
Grunnskólinn í Ólafsvík og Grunnskólinn á Hellissandi sameinast
Nýr og öf lugur
Grunnskóli Snæfellsbæjar