Skólavarðan - 01.09.2004, Blaðsíða 16

Skólavarðan - 01.09.2004, Blaðsíða 16
16 SKÓLASÓKN OG BROTTFALL SKÓLAVARÐAN 7.TBL. 4. ÁRG. 2004 Um 92% sextán ára ungmenna á Íslandi sóttu skóla haustið 2003. Skólasókn sextán ára nemenda hefur aldrei verið meiri, en hún hefur mælst yfir 90% tvö ár í röð. Sé litið yfir lengra tímabil sést að sífellt fleiri unglingar halda skóla- göngu áfram að lokinni skólaskyldu. Til samanburðar voru 85% sextán ára ung- linga skráðir í dagskóla framhaldsskól- anna árið 1992. Strax að loknu fyrsta ári í framhalds- skóla dregur hins vegar verulega úr skóla- sókn. Haustið 2003 voru 87% sautján ára unglinga skráð í dagskóla og 74% átján ára unglinga og hefur skólasóknin þá minnkað um 17 prósentustig miðað við sextán ára aldurshópinn. Þetta kemur fram í frétt um skólasókn 16-29 ára ung- menna á Íslandi haustið 2003 á vef Hag- stofu Íslands. Bent er á að minnkandi skólasókn á fyrstu árum framhaldsskólans megi að einhverju leyti skoða sem vísbendingu um brottfall. Þó verði að hafa í huga að minnk- andi skólasókn með hækkandi aldri skýrist af fjölmörgum þáttum, m.a. því að sumir nemendur hafi verið brautskráðir úr skóla. Aðrir hafi hugsanlega aðeins gert tíma- bundið hlé á námi sínu. Fleiri stúlkur sækja en piltar Þegar tölur um skólasókn eru skoðaðar með tilliti til kynjaskiptingar kemur í ljós að 94% sextán ára stúlkna sækja fram- haldsskóla en 90% pilta og er þá miðað við öll kennsluform. Mismunur á skóla- sókn kynjanna er mestur við tuttugu og fimm ára aldur en þá er hann 11%. Athyglisverður er munur á skólasókn kynjanna við nítján og tuttugu ára ald- ur. Við nítján ára aldur dregur skyndilega sundur með kynjunum og er skólasókn kvenna þá 9 prósentustigum meiri en karla (skólasókn karla 66% en kvenna 75%). Við tuttugu ára aldur er skólasókn kynjanna hins vegar jöfn (56%). Um tví- tugt eru nemendur að jafnaði að útskrif- ast úr framhaldsskólum og má því leiða að því líkur að stúlkur hafi þá þegar útskrifast og sumar þeirra tekið sér tímabundið hlé frá námi meðan piltarnir eru ennþá skráð- ir í skóla. Eftir tvítugt, þegar komið er á háskólaaldur, dregur aftur sundur með kynjunum og helst sá munur að jafnaði ná- lægt 9 prósentustigum, allt til tuttugu og níu ára aldurs. Brottfall úr framhaldsskólum 2003 var 19,3% Hagstofa Íslands hefur einnig skoðað brottfall nemenda úr framhaldsskólum með því að bera saman upplýsingar um skráða nemendur og skrá um námslok. Niðurstöðurnar sýna að brottfall nemenda frá hausti 2002 til hausts 2003 var 19,3%, sem jafngildir því að 4.100 nemendur hafi hætt eða gert hlé á námi sínu. Brottfall er mest við upphaf náms í framhaldsskólum. Brottfall er minnst meðal nemenda í fullu námi í dagskóla, 12,4%, en mest með- al nemenda í hlutanámi í fjarnámi, 54,2%. Brottfall er meira meðal karla en kvenna og meira í starfsnámi en í bóknámi. Fyrir fimm árum var brottfall úr fram- haldsskólum rúmum þremur prósentustig- um hærra, eða 22,3%. Rúmlega helming- ur hópsins sem hætti eða gerði hlé á námi sínu fyrir fimm árum hefur hafið nám að nýju og um fimmtungur hefur útskrifast á þessu fimm ára tímabili. Um fjórðungur hópsins gerði aðeins eins árs hlé á námi sínu. Nánar er fjallað um brottfall úr fram- haldsskólum í sérstakri umfjöllun um skólamál í nýjasta hefti Hagtíðinda: „Brott- fall nemenda úr framhaldsskólum 2002 - 2003“. Hægt er að nálgast hana á vef Hag- stofu Íslands: http://www.hagstofa.is HEH Skólasókn sextán ára ungmenna aldrei meiri Ú r m y n d a sa fn i

x

Skólavarðan

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Skólavarðan
https://timarit.is/publication/1179

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.