Skólavarðan - 01.09.2004, Side 22

Skólavarðan - 01.09.2004, Side 22
22 ALÞJÓÐAÞING UM STÆRÐFRÆÐIMENNTUN SKÓLAVARÐAN 7.TBL. 4. ÁRG. 2004 Dagana 4.-11. júlí 2004 héldu Norð- urlöndin alþjóðaþing um stærðfræði- menntun, ICME-10, International Congress on Mathematics Education. Þingið var haldið í Kaupmannahöfn og sátu það á þriðja þúsund manns. Íslend- ingar áttu sæti í undirbúningsnefndum þingsins og voru meðal fjölmennustu hópa þátttakenda, alls 76 manns, auk Íslendinga sem starfa erlendis. Íslenskir kennaranemar í grunn- og framhaldsnámi, fjölmargir kennarar í grunn- og framhaldsskólum og allir stærð- fræðikennarar Kennaraháskólans auk ann- arra íslenskra háskólakennara mynduðu skemmtilega liðsheild sem ræddi saman á göngum, fjölmenntu á fyrirlestra og út að borða á kvöldin. Ekki spillti fyrir að dagskráin var brotin upp í vikunni miðri og haldið í ferðalag, m.a. út í eyjuna Hven þar sem stjörnufræðingurinn Tycho Brahe gerði hárnákvæmar mælingar á 17. öld. Allur aðbúnaður ráðstefnunnar ein- kenndist af einfaldleika, fyrirhyggju og nákvæmni og gat hver sem var unað sér á ráðstefnustað 10-12 tíma á dag. Reynt að stuðla að farsæld námsgrein- arinnar Dagarnir hófust á fyrirlestrum fyrir alla þinggesti. Þá tóku við samhliða fyrirlestrar í minni sölum og síðan dagskrá rannsókna- hópa og minni hópa. Aðalfyrirlesararnir, sem voru virtustu fræðimenn heims á sviði stærðfræðimenntunar, ræddu margir um hin nánu tengsl stærðfræði sem fræði- greinar við skólastærðfræði og einlægan áhuga þeirra sem fræðigreinina stunda á að stuðla að farsæld hennar sem náms- greinar. Það sem eftir situr hjá hlustend- um og hæst ber, eru hugleiðingar um að ná til barna og ungra námsmanna þannig að náttúrleg námsgleði þeirra sem eru að hefja skólagöngu varðveitist í stærðfræði- náminu. Um 16-18 samhliða fyrirlestrar voru haldnir hverju sinni. Þar sem saman voru komnir fjölmargir stærðfræðikennarar og -nemar af öllum skólastigum og allflestir fræðimenn stærðfræðimenntunar í heim- inum var um margt að velja og þarfirnar jafnframt ólíkar. Anna Kristjánsdóttir pró- fessor flutti erindi um stærðfræðikennslu og upplýsingatækni. Stærðfræðileg greining á hruni síldar- stofnsins Alls höfðu 29 rannsóknarhópar starf- að sl. vetur og undirbúið dagskrá hver á sínu sviði. Þær spönnuðu allt frá nýjustu rannsóknum og straumum á sviði barna- kennslu, kennslu í unglingaskólum og há- skólum, verkefna fyrir ofurgreind börn, börn með sérþarfir, fólk í símenntun og fólk í starfi, kennslu í reikningi, algebru, rúmfræði, líkindareikningi og tölfræði, stærðfræðigreiningu og ýmsum sérsvið- um, nýmæla í nálgun stærðfræðikennslu, þrautalausna, röksemdafærslu og sannana ásamt tengslum stærðfræðinnar við ýmsar listgreinar og tungumálið, menntun stærð- fræðikennara, viðhorfum nemenda og kynjamun til sagnfræðilegra rannsókna á sviði stærðfræði og stærðfræðimennt- unar. Þórir Sigurðsson kynnti stærðfræði- lega greiningu á hruni síldarstofnsins í 20. hópi, Ólöf Steinþórsdóttir ræddi í 22. hópi um rannsókn á hlutfallaskilningi barna sem hún hafði gert ásamt Kristjönu Skúla- dóttur og Maríu Sophusdóttur og Kristín Bjarnadóttir ræddi í 29. hópi um breyting- ar á stærðfræðikennslu á sjöunda áratug 20. aldar á Íslandi. Stærðfræðimenntun í einstökum lönd- um Síðdegis á þriðjudag voru kynningar á stærðfræðimenntun í einstökum löndum. Rússneska kynningin þótti mjög merkileg sökum umfangs, innihalds og góðra veit- inga. Norðurlöndin héldu sameiginlega dagskrá. Íslensku fagfélögin, Flötur, Fé- lag raungreinakennara og Íslenzka stærð- fræðafélagið, kynntu starfsemi sína svo að eftir var tekið undir forystu þeirra Birnu Hugrúnar Bjarnardóttur, Þórunnar Jóns- dóttur og Guðmundar Birgissonar auk margra fleiri sem veittu liðsinni. Ennfrem- ur héldu þær Hildur Karen Aðalsteinsdóttir og Ásta Egilsdóttir frá Akranesi kynningu á samþættingu stærðfræði og íþrótta sem vakti verðskuldaða athygli og Anna Krist- jánsdóttir kynnti framhaldsnám. Tvenn verðlaun voru veitt fyrir frum- kvöðlastarf; Celia Hoyles frá Lundúnahá- skóla fyrir óþreytandi starf að því að nýta tölvutækni til að kynna ungmennum und- ur stærðfræðinnar og Frakkinn Guy Brous- seou frá Háskólanum í Bordeaux fyrir fjöl- þætt starf á fræðasviðinu. ICME-þingið var skemmtilegur vett- vangur til að þjappa saman alþjóðlega stærðfræðisamfélaginu. Kristín Bjarnadóttir. Höfundur er lektor í stærðfræðimenntun við KHÍ ICME-10 - Alþjóðleg ráðstefna um stærðfræðimenntun

x

Skólavarðan

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Skólavarðan
https://timarit.is/publication/1179

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.