Skólavarðan - 01.09.2004, Side 29
SKÓLAVARÐAN 7.TBL. 4. ÁRG. 2004
Ráðstefna um lestur og lestrarerfiðleika
haldin á Akureyri 16. apríl 2005
Skólaþróunarsvið kennaradeildar Há-
skólans á Akureyri efnir til ráðstefnu um
lestur og læsi.
Markmið ráðstefnunnar að fjalla um
hver staðan er hér á landi og hvert beri að
stefna á næstu árum. Ráðstefnan er vett-
vangur fræðslu, umræðu og skoðanaskipta
fagfólks og áhugamanna um bætt læsi.
Aðalfyrirlesarar verða:
Dr. Jörgen Frost, senior adviser, Bredtvet
National Resource Centre of Logopedic.
Dr. Maureen Lewis, Primary National
Strategy, Regional Director í Englandi.
Rósa Eggertsdóttir, M.Ed. sérfræðing-
ur við skólaþróunarsvið Háskólans á Akur-
eyri.
Dr. Þorbjörn Broddason, prófessor við
Félagsvísindadeild Háskóla Íslands.
Þóra Björk Jónsdóttir, M.Ed. sérkennslu-
ráðgjafi við Fjölskylduþjónustu Skagfirð-
inga.
Auk aðalfyrirlestra verða á ráðstefn-
unni málstofur þar sem reifuð verða ýmis
mál er varða læsi. Í hverri málstofu verða
tvö 20 mínútna erindi auk tíma til um-
ræðna.
Auglýst er eftir erindum á málstofur
frá fræðimönnum, kennurum, kennsluráð-
gjöfum og öðrum áhugasömum aðilum.
Sóst er eftir nýlegu efni um læsi, sem ekki
hefur hlotið kynningu áður á ráðstefnum.
Einkum er leitað er eftir:
• Fræðilegri umfjöllun um strauma og
Stjórn Sjúkrasjóðs KÍ hefur lokið við árlega
endurskoðun úthlutunarreglna. Helsta nýj-
ungin er að sjóðurinn styrkir nú kostnað-
arsamar tannlækningar. Þurfi sjóðsfélagi
að greiða tannlæknakostnað umfram
50.000 kr. greiðir sjóðurinn 40% af þeirri
upphæð. Þetta er að fyrirmynd annarra
sambærilegra sjóða auk þess sem töluvert
hefur borist af umsóknum frá sjóðsfélög-
um með háan tannlæknakostnað. Eldri
greinar úthlutunarreglna voru einnig end-
urskoðaðar, til dæmis var hækkuð upp-
hæð sjúkradagpeninga, upphæðir í með-
ferðarflokkum voru einnig hækkaðar og
styrktímabil þeirra, sem þurfa sjúkradag-
peninga vegna veikinda maka og barna,
var lengt.
Núna er líka skilgreindur réttur þeirra
sjóðsfélaga sem eru atvinnulausir eða í
fæðingarorlofi og greiða félagsgjald.
Endurskoðaðar reglur taka gildi 1.
október 2004. Reglur sjóðsins og umsókn-
areyðublað eru aðgengileg á heimasíðu
Kennarasambandsins. www.ki.is
Auglýst eftir erindum á málstofur
Læsi á 21. öldinni - Hvar stöndum við? Hvert stefnum við?
stefnur varðandi lestur, lestrarerfiðleika
og mat á lestri.
• Fræðilegri umfjöllun um árangursrík-
ar leiðir í lestrarkennslu.
• Kynningu á nýlegum íslenskum rann-
sóknum.
• Kynningu á árangursríkum þróunar-
verkefnum.
Frestur til að senda inn lýsingu á erindi,
að hámarki 300 orð, er til 1. október 2004.
Svör um samþykki frá ráðstefnunefnd
munu berast fyrir 15. nóvember.
Allar nánari upplýsingar gefa Rósa
Eggertsdóttir sími 4630568, netfang:
rosa@unak.is og Trausti Þorsteinsson sími
4630980, netfang: trausti@unak.is.
FRÁ SJÚKRASJÓÐI
Breyttar og bættar reglur
Sjúkrasjóðs KÍ
Svæðisþing tónlistarskóla verða nú
haldin öðru sinni í samstarfi Félags
tónlistarskólakennara, Samtaka tón-
listarskólastjóra og Félags íslenskra
hljómlistarmanna. Haldin verða þrjú
þing um land allt á eftirfarandi stöðum.
Fyrir Vesturland og Vestfirði, 17. og 18.
september á Ísafirði. Fyrir Reykjavík,
Reykjanes og Suðurland, 24. septem-
ber í Reykjavík. Fyrir Norður- og Austur-
land,1. október í Mývatnssveit. Vænst
er góðrar þátttöku tónlistarskólakenn-
ara.
Meðal efnis á þingunum er reynsla af
fyrstu áfangaprófum í tónlistarskólum,
stefna í faglegum málum stéttarinnar,
menningarlegur fjölbreytileiki og kjara-
mál. Menningarlegur fjölbreytileiki hefur
haft víðtæk áhrif og einnig í tónlistinni.
Breytinga er farið að gæta innan skólakerf-
isins þar sem þarfir og óskir nemendanna
taka breytingum í samræmi við breytta
menningarhætti. Á þingunum munu góð-
ir gestir kynna hvernig hægt sé að nýta
gagnvirk menningaráhrif á jákvæðan hátt
í tónlistarkennslu, jafnt fyrir nemendur
sem kennara.
Leiðbeinendur á þingunum verða m.a.
Lance D´Souza, stjórnandi World Musik
Center í Danmörku og aðstoðarskóla-
stjóri Århus Musikskole, Eva Saether,
deildarstjóri fjölmenningardeildar í Musik-
högskolan í Malmö í Svíþjóð, og Robert
Faulkner, skólastjóri Tónlistarskóla Hafra-
lækjarskóla.
Í framhaldi af svæðisþingi sem haldið
verður í Reykjavík mun Lance D´Souza
ásamt aðstoðarfólki sínu halda námskeið
25. september fyrir tónlistarskólakenn-
ara þar sem kynntar verða aðferðir við
kennslu á tónlist annarra menningar-
heima. Kennarar á námskeiðinu eru frá
Senegal og Kúbu og meðal annars verður
farið í afríska og kúbanska tónlist. Frekari
upplýsingar um námskeiðið verða sendar
til tónlistarskóla en skráning fer fram á
skrifstofu Félags tónlistarskólakennara.
Svæðisþing tónlistarskóla
29
FRÉTTIR OG TILKYNNINGAR