Skólavarðan - 01.05.2006, Side 3
3
FORMANNSPISTILL
SKÓLAVARÐAN 4.TBL. 6. ÁRG. 2006
Aðalheiður Steingrímsdóttir
Norrænu kennarasamtökin (NLS) eru samstarfsvettvangur
um það bil 600 þúsund kennara og skólastjórnenda í leik-,
grunn- og framhaldsskólum frá öllum Norðurlöndunum. Eitt
af meginmarkmiðum NLS er að efla fagmennsku og gæði
í kennslu og skólastarfi og styrkja samfélagslega stöðu
kennarastéttarinnar. Í gegnum NLS hafa íslenskir kennarar og
samtök þeirra beinan aðgang að faglegri og menntapólitískri
umræðu í Evrópu en þar eru m.a. neðangreind atriði mjög
áberandi nú um stundir.
Laun og ráðningakjör
Breytingar á samnings- og starfsumhverfi kennarastéttarinnar,
s.s. fjölgun einkarekinna skóla, samkeppni og valfrelsi um skóla,
áhrif grenndarsamfélags á innra starf skóla. Fleiri vinnuveitendur
en ríki og sveitarfélög; stofnanansamningar og einstaklingslaun í
stað miðstýrðra samninga. Umræðan snýst um hvernig kennarar
og samtök þeirra geti nýtt sér þessar breytingar í sókn til betri
launa og öflugri samfélagslegrar stöðu í ljósi þarfa samfélags,
atvinnulífs og einstaklinga fyrir menntun allt lífið.
Samstarf skólastiga
Samstarf kennara milli skólastiga til að efla einhug og samstöðu.
Mikilvægi allra skólastiga fyrir menntun og þroska einstaklinga.
Innsýn kennara á einu skólastigi í starf, starfsaðferðir og viðhorf
á öðrum skólastigum. Kennarar starfi saman óháð skólastigum
og líti á starf sitt sem hlekk í einni heild. Umræðan snýst um
hvernig kennarar og samtök þeirra geti unnið að meiri heildarsýn
yfir skólastigin, m.a. vegna áherslunnar á gæði og mælanlegan
árangur á einstökum skólastigum. Að kennarar og samtök þeirra
taki þátt í að skapa samstöðu um þau grundvallaratriði sem
skipta höfuðmáli fyrir þroska hvers og eins í ljósi áherslunnar um
menntun allt lífið.
Brottfall
Réttur allra barna til leikskólagöngu, gjaldfrjáls leikskóli til
að jafna mismunandi félags- og efnahagslega stöðu heimila,
mikilvægi leikskólans sem fyrsta skólastigs í námi barna. Brottfall
í grunn- og framhaldsskólum sem er mest meðal nemenda
af erlendum uppruna en eykst líka meðal annarra nemenda
og ekki eingöngu vegna félagslegra aðstæðna. Í hnotskurn er
brottfallið bæði lýðræðis- og samfélagsvandi. Kröfur samfélags
og vinnumarkaðar um lengri menntun, ábyrgð skóla á að skila
frá sér nemendum með tilskilda þekkingu og færni. Umræður
um gæði í skólastarfi og kröfur um mælanlega þekkingu sem geri
kennurum erfitt um vik að sinna samtímis menntun og þroska
nemendahópsins og einstaklingsþörfum nemenda. Niðurskurður
í fjárveitingum til skóla. Meira vinnuálag meðal kennara.
Samkeppni fjölmargra um tíma og athygli nemenda. Skólinn
verði bæði að vera spennandi og krefjandi. Þetta er vandasamt
verkefni sem gerir miklar kröfur til kennara og samtaka þeirra.
Umræðan snýst um þátt skóla í að minnka brottfall og stefnu og
aðgerðir stjórnvalda í þeim efnum.
Svipaðar breytingar einkenna starfsumhverfi íslenskra kennara.
Framhaldsskólinn er kominn inn í dreifstýrt samningsumhverfi
og líklegt má telja að fleiri félög kennarasamtakanna muni
taka þessa tegund samningagerðar til skoðunar á næstunni.
Kjarasamningar snúast samt ekki um einhverja tískustrauma
í samningagerð heldur að bæta kjör kennara, náms- og
starfsráðgjafa og skólastjórnenda. Samfélagið gerir kröfu um
góða menntun barna og ungmenna og að íslenskir skólar standi
í fremstu röð. Til að skólar geti staðið undir þessum kröfum þarf
að meta kennarastarfið að verðleikum og menntakerfið að fá
nægt fé.
Umræðan um samstarf milli skólastiga er brýn. Breytingar á
kennaramenntun og vinna að heildarendurskoðun á lögum, námi
og námskipan leik-, grunn- og framhaldsskóla mun efla samstarfið
ef vel tekst til með samkomulag KÍ og menntamálaráðherra.
Íslenskir kennarar, náms- og starfsráðgjafar og skólastjórnendur
starfa í einum samtökum og hafa því einstaklega góða aðstöðu
til að efla samstarf sín á milli.
Í desember 2004 gengu tæplega 81% drengja og um 80%
stúlkna á aldrinum 1 – 5 ára í leikskóla á Íslandi. Mikill þungi
hefur færst í umræðuna um gjaldfrjálsan leikskóla í tengslum við
komandi sveitarstjórnakosningar. Vonandi fara þar saman orð
og efndir. Í ráðstefnuriti um brottfall úr námi á Norðurlöndum
(2002) kemur fram að almennt megi skipta nemendum sem
flosna úr námi á Íslandi í tvo hópa; þá sem hætta námi til að
fara út á vinnumarkaðinn og þá sem finna ekki nám við hæfi eða
eru ekki ánægðir með aðstæður sínar. Í ritinu kemur einnig fram
að um 65% íslenskra nemenda ljúka lokaprófi út framhaldsskóla
en 75-80% í Noregi, Svíþjóð, Danmörku og Finnlandi. Í norrænu
ríkjunum hætta um 5% nemenda námi eftir grunnskóla og um
15-30% hefja nám í framhaldsskóla án þess að ljúka því.
Íslenskir skólar eiga í erfiðleikum með að sinna þeim breiða
nemendahópi sem þar stundar nám. Fjölmennur hópur nemenda
verður hornreka og hluti hans lendir utangarðs í samfélaginu.
Þess vegna er brottfall úr námi bæði lýðræðis- og samfélagsvandi.
Hér er verk að vinna fyrir stjórnvöld í samvinnu við skóla,
kennarasamtökin og heimilin í landinu.
Aðalheiður Steingrímsdóttir
Skólar og starfsumhverfi kennara
- sömu málefni rædd á Íslandi og öðrum Norðurlöndum