Skólavarðan - 01.05.2006, Side 7
7
SKÓLAVARÐAN 4.TBL. 6. ÁRG. 2006
ÁRSFUNDUR KÍ
Ársfundur KÍ var haldinn á Hótel
Loftleiðum þann 28. apríl sl. Hann var
innihaldsríkur og sýndi í hnotskurn
hversu mörg viðamikil mál eru til umræðu
og úrvinnslu innan kennarasamtakanna.
Mikil vinnustemmning, samstaða
og einbeiting sveif yfir vötnum á
fundinum.
Á dagskrá fundarins voru, auk venjulegra
ársfundarstarfa, erindi og umfjallanir um
nokkur stór og miklvæg málefni sem varða
félagsmenn sambandsins í heild:
1. Staða mála í samkomulagi KÍ og
menntamálaráðherra. Greinargerð
verkefnisstjórnar var lögð fyrir fundinn
en í henni sitja fulltrúar beggja aðila,
þ.á.m. Elna Katrín Jónsdóttir, sem
sagði fá störfum hennar og innihaldi
greinargerðar. Vinnunni miðar vel
áfram. Verkefnisstjórnin vinnur
nú að drögum að erindisbréfum
fyrir starfshópa um ýmsa þætti
samkomulagsins og aðrar kröftugar
stuðningsaðgerðir við breytta
námskipan eru í deiglunni ásamt með
aukinni endurskoðun á námskrám.
2. Aldurstenging lífeyrisréttinda og
séreignarsparnaður, í umfjöllun Hauks
Hafsteinssonar, framkvæmdastjóra
Lífeyrissjóðs starfsmanna ríkisins.
Í setningarávarpi ársfundar sagði
Eiríkur Jónsson það vera nokkuð ljóst
að þegar flestallir lífeyrissjóðir yrðu
búnir að taka upp þetta nýja kerfi yrði
erfitt fyrir LSR að halda úti kerfi með
jafnri réttindaávinnslu.
3. Tillögur starfshóps um framtíðarskipan
kennaramenntunar sem lágu fyrir í
marsbyrjun og starfshópurinn leggur
áherslu á að komist til framkvæmda
sem allra fyrst. Tillögurnar fela m.a.
í sér stofnun kennsluráðs sem væri
byltingarkennd nýjung hérlendis en á
sér fyrirmyndir erlendis, t.d. á Írlandi.
Öllum þessum erindum og umræðum verða
gerð nánari skil ýmist í ágústtölublaði
Skólavörðunnar og/eða á www.ki.is auk
skýrslu stjórnar og eftirfarandi sem einnig
var til umræðu á ársfundinum:
4. Úttekt á starfsemi Kennarasam-
bandsins sem unnin var af fyrirtækinu
PARX.
5. Kynning á niðurstöðum viðhorfs-
könnunar vegna Skólavörðunnar sem
Nánar verður fjallað um stöðu mála í samkomulagi KÍ og
menntamálaráðherra í næsta tbl. Skólavörðunnar og á
www.ki.is. Öðrum erindum og umfjöllunum ársfundar
verða gerð skil á sama vettvangi. Fylgist með umræðunni.
Mikil yfirferð á ársfundi
unnin var af Félagsvísindastofnun.
Könnunin leiddi í ljós almenna ánægju
félagsmanna með blaðið, eða hjá
71,6% svarenda.
Loks voru á ársfundi stuttar framsögur
um starfsemi sjóða Kennarasambandsins,
umræður og önnur mál.
Tvær ályktanir voru samþykktar samhljóða
á fundinum sem hér segir:
• Ársfundur KÍ haldinn á Hótel
Loftleiðum 28. apríl 2006 skorar á
Alþingi Íslendinga að taka nú þegar
frumvarp Jóhönnu Sigurðardóttur
o.fl. um breytingu á lögum um
tekjuskatt á dagskrá og samþykkja á
yfirstandandi þingi. Með samþykkt
frumvarpsins fellur niður skattheimta
ríkisins á framlögum og styrkjum
til einstaklinga úr styrktar- og
sjúkrasjóðum stéttarfélaga.
Í þessu samhengi er ekki hægt að láta hjá
líða að nefna þátt Árna Heimis Jónssonar
sem öðrum fremur hefur beitt sér gegn
þessari umdeildu skattheimtu. Árni Heimir
vakti meðal annars mikla og almenna
athygli á málinu í viðtali í Kastljósi í mars sl.
• Ársfundur KÍ haldinn þann 28. apríl
2006 samþykkir að útgáfa og dreifing
Skólavörðunnar verði í megindráttum
á sama veg og verið hefur. Þó skal
leita allra leiða til að lækka enn frekar
kostnað við útgáfu blaðsins og styrkja
það í sessi.
Í setningarávarpi fundarins sagði Eiríkur
Jónsson formaður KÍ meðal annars:
„Hagfræðingar virðast almennt
nokkuð sammála um að sá órói sem nú
er í efnahagslífinu sé fyrst og fremst
tilkominn vegna rangrar hagstjórnar... Ég
óttast að framundan séu tímar í íslensku
atvinnu- og efnahagslífi sem geti reynst
launafólki erfiðir. Það kann að reyna á
forystufólk verkalýðshreyfingarinnar á
næstu mánuðum og árum. Það er því
mikilvægt að við leggjum okkur öll fram
í að standa vörð um réttindi félagsmanna
og kjör þeirra í víðum skilningi. Við skulum
vera minnug þess að kjarabarátta er eilíf
og aldrei vinnst fullnaðarsigur.“
Síðar í ávarpi sínu fjallaði Eiríkur um
kjarasamningsmál einstakra aðildarfélaga
KÍ og sagði m.a.:
„Á haustmánuðum gripu sveitarfélög-
in til þess ráðs að hækka einhliða laun
ákveðinna hópa. Í þeim hópi voru leik-
skólakennarar. Hækkunin mun að mínu viti
auðvelda þeim baráttuna sem framundan
er og eflaust hjálpa fleiri hópum til að
sækja fram og verja kaupmátt sinn. Það er
ekkert nema jákvætt um það að segja að
þeir sem lægst höfðu launinn í leikskólum,
þ.e. að segja þeir ófaglærðu, fengju
launahækkun og aðrir á lágum launum
fylgdu síðan í kjölfarið. Það vekur hins
vegar upp þá spurningu hvernig forysta
sveitarfélaganna gat boðið ófaglærðum
starfsmanni í leikskóla hærri laun en
þeir hinir sömu treystu sér til að bjóða
grunnskólakennurum eftir sjö vikna verk-
fall.
Mér finnst sveitarfélögin skulda þjóð-
inni skýringu á því hvernig hægt var að
halda grunnskólum landsins lokuðum
vikum saman, og skýra það með óraunsæj-
um launakröfum kennara, en bjóða
síðan ófaglærðum hópum hærri laun
nokkrum mánuðum síðar. Til að forðast
misskilning vil ég sérstaklega undirstrika
þá skoðun mína að allir sem fengu þessar
launahækkanir fyrr í vetur áttu þær
fyllilega skilið - en samhengi hlutanna er
oft skrítið.
Um þessar mundir er síðasti hluti
kjarasamninga framhaldsskólanna að
koma til framkvæmda, þ.e.a.s. innleiðing
stofnanasamninga, (stofnanasamningarnir
tóku svo gildi 1. maí, innskot keg) og
verður fróðlegt að sjá hvernig til tekst. Til
þess að auðvelt verði að mæla áhrif þeirra
samninga er mikilvægt að kjararannsóknir
séu virkar. Á því sviði stöndum við hins
vegar frammi fyrir stóru vandamáli. Nú er
nefnilega svo komið að kjararannsóknir á
opinberum markaði liggja næstum alveg
niðri og nær ógerlegt er að fá upplýsingar
um launaþróun einstaka hópa. Úr þessu
verður að bæta og það fyrr en síðar.“
keg