Skólavarðan - 01.05.2006, Page 10
10
SKÓLAVARÐAN 4.TBL. 6. ÁRG. 2006
STOFNUN TILRAUNAHÚSSINS
Málþing um náttúrufræðimenntun var
haldið í Kennaraháskólanum dagana
31. mars og 1. apríl sl. í minningu
Ólafs Guðmundssonar kennara sem
lést 9. september 2005. Hátt á þriðja
hundrað manns tóku þátt, þar á meðal
fjöldi kennara í náttúrufræði af öllum
skólastigum.
Mikil ánægja var með þingið og ljóst að
þörf er fyrir reglulegan vettvang af þess-
um toga til að ræða inntak, framkvæmd
og framtíð náttúrufræðimenntunar á
Íslandi sem flestir geta verið sammála
um að hefur ekki fengið nægan stuðning
yfirvalda jafnt sem almennings til að
eflast sem skyldi. Meðal fyrirlesara var
Ari Ólafsson dósent í eðlisfræði við HÍ
sem sagði frá hugmyndum um svokallað
Tilraunahús á Íslandi, umræðu um málið
og framgangi og stöðu hugmyndarinnar
sem nú hyllir undir að verði að veruleika.
Ari situr í stjórn Undirbúningsfélags
Tilraunahúss sem stofnað var í ársbyrjun
og Skólavarðan fékk góðfúslegt leyfi hans
til birtingar á hluta úr fyrirlestrinum.
Tilraunahús á málþingi
um náttúrufræðimenntun
Í janúar síðastliðnum tóku Háskóli Íslands, Kennaraháskóli Íslands og Orkuveita
Reykjavíkur höndum saman og stofnuðu Undirbúningsfélag Tilraunahúss til að
móta þessar hugmyndir. Félagið hefur 8 milljón króna fjárhag og því er ætlað að
starfa í eitt ár. Félagið hefur einn starfsmann í hálfu starfi. Að árinu liðnu verður
tekin afstaða til hvort hugmyndirnar eru orðnar nægilega burðugar til að stofna
sjálft Tilraunahúsið.
VERKEFNI UNDIRBÚNINGSFÉLAGSINS ERU AÐ:
• safna hagsmunaaðilum saman til að útfæra hugmyndirnar
• móta fjárhagslíkan fyrir rekstur
• safna vilyrðum um þjónustusamninga
• safna hlutafé
Ari Ólafsson
Ljósmyndir frá höfundi. Myndirnar voru teknar á námskeiði
fyrir bráðger börn þar sem m.a. var fengist við loftbelgjagerð.
M
O
T
IV
-M
Y
N
D