Skólavarðan - 01.10.2008, Blaðsíða 8
8
RASMUS.IS
SKÓLAVARÐAN 6.TBL. 8. ÁRG. 2008
Þeir bræður Hugo og Tómas Rasmus hafa
vakið athygli og aðdáun víða í skólakerfinu
fyrir stærðfræðivefinn sinn fína, Rasmus.is.
Ekki einungis vegna þess að vandað er til
verksins og hugmyndin góð, heldur líka af
því að vefurinn er unninn af hugsjón en ekki
með skjótfenginn gróða í forsæti. Enda er
það fyrst nú nýverið sem bræðurnir gátu
farið að borga sér örlítil laun, fram að því
fór innkoman í þýðingar en verkefnið hefur
verið styrkt af nokkrum aðilum og þar á
meðal Verkefna- og námsstyrkjasjóði KÍ.
Fyrsta spurningin sem kviknar þegar Hugo
Rasmus sest fyrir framan blaðamann á skrif-
stofunni í Kennarahúsinu er hvaðan nafnið
Rasmus kemur? Er þetta kannski danskt? „Nei,
það er þýskt“, segir Hugo. „Pabbi hét Hendrik
Rasmus og þáði eftirnafnið frá þýskætt-
uðum eiginmanni móðursystur sinnar, en
þau hjón ættleiddu hann.“ Var pabbi þinn
kennari eða stærðfræðingur? „Nei“, segir Hugo
og brosir, þetta er líka röng ágiskun hjá þér.
En hann var góður námsmaður og mikill
tungumálamaður. Hann lærði verkfræði í
nokkurn tíma úti í Þýskalandi en svo togaði
tónlistin í hann og hann var meira og minna
að spila á píanó og semja lög eftir það, auk
þess að vinna við húsamálun. Mamma var
ekki kennari heldur. Við alsystkinin erum hins
vegar öll kennarar; ég, Tómas og Steinunn,
en Margrét hálfsystir okkar er lögfræðingur.“
Of snemmt er að segja til um hvort
eitthvert barna Hugos eða Tómasar feti
í kennarafótsporin, það væri þá ef til
vill íþróttakonan og menntskælingurinn
Þóra Hugosdóttir. Hrefna systir hennar er
hjúkrunarfræðingur en Rósa, miðdóttir
Hugos og konu hans, Maríu Játvarðardóttur
félagsráðgjafa, er að læra verkfræði í
HR. Þar er líka í verkfræðinámi Hendrik,
yngri sonur Tómasar en sá eldri, Erling, er
endurskoðandi.
Kláruðu kennaranámið á svipuðum tíma
Auk óbilandi áhuga á skólamálum eiga
þeir bræður sér mörg fleiri hugðarefni.
Skákin er fyrirferðarmikil í lífi Tómasar og
hann hefur ásamt Smára Teitssyni og síðar
Hrannari Baldurssyni þjálfað nemendur í
Salaskóla í skák með frábærum árangri en
nemendur í Salaskóla urðu sem kunnugt er
heimsmeistarar í grunnskólaskák árið 2007.
„Svo fylgist hann með formúlunni“, upplýsir
Hugo, sem sjálfur er hins vegar trillukarl
og reyndar nátengdur sjónum - hann var á
árum áður stýrimaður og skipstjóri á ýmsum
gerðum báta, kláraði skipstjórnarpróf, II.
stig, árið 1975. „Ég er samt aðallega bara
að fiska nemendur á netið núorðið!“ Hugo
spilar líka golf og „oldboys“ fótbolta, og það
er greinilegt að eins og títt er um frumkvöðla
hafa þeir bræður að því er virðist endalausa
orku og gaman af lífinu.
Tómas er sá bræðranna sem sér um
tölvumálin á Rasmus.is og hefur mikinn
áhuga á öllu sem snýr að tölvum og tækni.
Hann hefur kennt tölvufræði, eðlisfræði,
stærðfræði og smíðar og vann einnig sem
kerfisfræðingur um árabil. Áður en hann fór í
kennaranámið nam hann byggingaverkfræði
um nokkra hríð. Tómas kennir nú við Sala-
skóla í heimabænum Kópavogi. Hugo kennir
auðvitað líka í Kópavogi, nema hvað! Nánar
tiltekið við menntaskólann sem staðsettur
er í, og kenndur við, bæinn. „Við bræðurnir
kláruðum kennaranámið á svipuðum tíma
en æddum ekkert beint í Kópavoginn“,
segir Hugo kankvís. „Ég fór að Reykhólum
þar sem afi og amma bjuggu og Tómas
bróðir á Varmaland. Hann kenndi svo á
Eyrarbakka og víðar á Suðurlandi, til dæmis
í fjölbrautaskólanum á Selfossi, og kom ekki
heim fyrr en hann fór að kenna í Salaskóla
fyrir nokkrum árum.“
Hugo fór beint í Kópavoginn eftir að
dvölinni á Reykhólum lauk en síðustu þrjú
árin þar var hann skólastjóri. „Eftir að við
fjölskyldan komum frá Reykhólum fór ég að
kenna í Kópavogsskóla“, segir Hugo, „þá í
Dalbrautarskóla og loks í Hjallaskóla. Hjalla-
skóli var þá kominn í samstarf við Mennta-
skólann í Kópavogi vegna nemenda sem voru
getumiklir í bóknámi. Þá var þetta smátt í
sniðum en var fljótt að vinda upp á sig og
núna taka fleiri hundruð grunnskólanema
valáfanga í hinum ýmsu greinum í MK. Það
endaði með því að ég færði mig yfir og er nú
búinn að kenna í Menntaskólanum í fimm ár.“
Hugo og Tómas hjá Rasmus.is
Trillukarlinn og skákþjálfarinn
Kennarar í fjölskyldu Hugos
og Tómasar
Hlíf Erlingsdóttir eiginkona Tómasar,
kennari í Breiðholtsskóla.
Steinunn Rasmus systir bræðranna,
kennari í Reykhólaskóla.
Stefán Magnússon tengdasonur
Hugos, íþróttakennari í Reykhólaskóla
Margrét Rasmus ömmusystir sem
ættleiddi pabba þeirra, skólastjóri
Heyrnleysingjaskólans um langt
árabil.
Hjörtur Þórarinsson móðurbróðir,
lengi starfandi skólastjóri á
Kleppjárnsreykjum.
Hjörtur Hjálmarson ömmubróðir,
lengi starfandi skólastjóri á Flateyri.
Það er nú málið, við markaðssettum aldrei vefinn. Ég
man að ég lét nemanda sem átti heima í götunni og
þurfti aðstoð við stærðfræðina fá eitthvað af þessum
verkefnum og það spurðist út.
Tómas hjá Salaskóla