Skólavarðan - 01.10.2008, Blaðsíða 10
10
LEIKLIST
SKÓLAVARÐAN 6.TBL. 8. ÁRG. 2008
Hún er ótrúlega öflug og flink konan sem
stýrir fræðsludeild Þjóðleikhússins, Vigdís
Jakobsdóttir heitir hún. Henni er annt um að
efla samstarf skóla í landinu og leikhússins
og beitir til þess ýmsum leikhúsbrellum.
Starfið ber enda ávexti hér og þar og nú
síðast á Austurlandi í samvinnuverkefni sem
ber titilinn Þjóðleikur.
Þjóðleikur er leiklistahátíð fyrir ungmenni
á öllu Austurlandi, tilraunaverkefni sem
fræðsludeild Þjóðleikhússins stendur fyrir í
samstarfi við Menningarmiðstöð Fljótsdals-
héraðs (miðstöð sviðslista á Austurlandi) og
Vaxtarsamning Austurlands. Verkefnið nær til
alls Austurlands, allt frá Vopnafirði til Hafnar
í Hornafirði.
Um er að ræða leiklistarhátíð ungs fólks
og einu skilyrðin fyrir þátttöku hóps voru
þau að a.m.k. einn fullorðinn einstaklingur
(yfir tvítugu) leiddi hópinn, að í hópnum
væru að lágmarki átta manns og á aldrinum
13-20 ára.
Þrjú glæný 45 mínútna leikrit voru skrifuð
sérstaklega fyrir Þjóðleik:
• Ísvélin eftir Bjarna Jónsson
• Eftir lífið eftir Sigtrygg Magnason
• Dúkkulísa eftir Þórdísi Elvu
Þorvaldsdóttur Bachmann
Leikskáldin voru beðin um að setja sig ekki í
sérstakar stellingar eða líta á þetta verkefni
sem hliðarspor frá ferli sínum, heldur skrifa
krefjandi og safaríkan leiktexta fyrir unga
leikara. Hver hópur í Þjóðleik valid sér svo
eitt af þessum verkum til uppsetningar og
auðvitað endurgjaldslaust.
Af þrettán hópum sem taka þátt í verk-
efninu í vetur eru níu grunnskólahópar og
þrír framhaldsskólahópar. Leikhóparnir
velja eitt af þremur leikritum sem skrifuð
voru sérstaklega fyrir verkefnið í lokaðri
samkeppni. Í lok október mættu stjórnendur
leikhópanna á undirbúningsnámskeið í Þjóð-
leikhúsinu og hittu leikskáldin sem kynntu
verk sín og hugmyndirnar að baki þeim.
Hópstjórarnir fræddust líka um vinnuferli
í leikhúsi, leikmyndahönnun, sviðstækni,
leikstjórn og fleira. Framundan er sjálft
æfingaferlið auk þess sem haldið verður
tækninámskeið og veittur ýmis stuðningur
svo sem ráðgjöf á netinu og heimsókn
leikstjóra. Verkin eru svo sýnd í heimabyggð
leikhópa og í lok apríl verður sameiginleg
uppskeruhátíð með sýningum á öllum verk-
unum, málþingi og að sjálfsögðu partíi!
keg
Vigdís var í hópi þeirra sem héldu erindi
á núliðnu málþingi menntavísindasviðs HÍ
þar sem áherslan var á skapandi skóla-
starf. Þótt málþingið hafi verið í mótun um
alllanga hríð getur tímasetningin ekki verið
betri – alltaf er þörf á listum og nýsköpun
í skólastarfi (málþingið breiddi sig yfir
hvorttveggja) en aldrei eins og nú. Við eig-
um eftir að koma nánar að málþinginu í
næsta tölublaði Skólavörðunar.
Ungt fólk á Austurlandi
flykkist í leikhúsið
Hér má sjá ungt fólk í tilraunaleikhúsinu Proud
Theater í Madison BNA. Þar er reynt að ná til
samkynhneigðra, tvíkynhneigðra, transa og
annarra ungmenna sem eru að spá í kynhneigð
sína, tilheyra minnihlutahópi sökum kynhneigðar
eða eiga foreldra sem eru ekki gagnkynhneigðir.
Leikhúsið (almennt) getur meðal annars gefið
ungu fólki færi á að skoða málefni sem því finnst
ekki aðgengilegt að ræða um og vinna með á
öðrum vettvangi.
Ekki bara stundargaman
Vigdísi finnst brýnt að leiklist fái viður-
kenningu sem fullgild kennslugrein í
íslenskum skólum og í erindi sínu fór
hún meðal annars yfir markmið fræðslu-
deildar: Að efla tengsl Þjóðleikhússins
við skóla í landinu (leikskóla, grunnskóla
og framhaldsskóla), hafa frumkvæði að
umræðu um leiklist í skólum, gera leik-
húsið sýnilegra í samfélaginu og færa
það nær almenningi og loks að breikka
áhorfendahóp Þjóðleikhússins og örva
þann sem fyrir er. Þetta er gott og blessað
en hvernig hyggst leikhúsið ná þessum
markmiðum? Vigdís fór yfir starfið sem
unnið er í þessa þágu í fræðsludeildinni:
Reglulegt námskeiðahald fyrir kennara,
kynnisferðir skólahópa og starfskynn-
ingar, útgáfa fræðslupakka í tengslum við
sýningar, örleikritasamkeppni framhalds-
skólanema, leikferðir í framhaldsskóla,
stök námskeið og umræðukvöld fyrir
almenning og síðast en ekki síst það sem
hún kynnti sérstaklega á málþinginu:
Þjóðleikur.
Markmið Þjóðleiks:
• Að vekja áhuga ungs fólks á leiklist og
efl a læsi þeirra á listformið.
• Að tengja Þjóðleikhúsið á lifandi hátt
við landsbyggðina.
• Að miðla af fagþekkingu leikhússins til
leikhúsáhugafólks í landinu.
• Að styrkja íslenska leikritun.
Lj
ós
m
yn
d
f
rá
V
ig
d
ís
i
Ja
ko
b
sd
ót
tu
r